Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.10.1990, Qupperneq 2

Víkurfréttir - 18.10.1990, Qupperneq 2
2 Fréttir Víkurfréttir 18. okt. 1990 Bókhald/Bókari/Fjármálastjórn: Iðnfyrirtæki óskar eftir starfskrafti með góða þekkingu/ starfsreynslu í almennum bókhaldsstörfum auk tölvukunnáttu og fjármálastjórn til starfa sem fyrst. Um er að ræða sjálfstætt og krefjandi starf. Farið verður með allar um- sóknir sem trúnaðarmál. Þeir sem hafa áhuga vinsamlega sendi skriflega umsókn á skrifstofu Víkurfrétta merk „Bókhald 313“, fyrir 25. október n.k. í Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengda-móður, ömmu og systur. Gíslínu Erlu Eiríksdóttur Reyk janesveg 8 Njarðvík GuömundurKristjánsson Kristrún Guömundsdóttir Jón R. Bjarnason Erla Jónsdóttir Guömundur R. Jónsson Gyöa Eiríksdóttir Meinert Nílssen Þorsteinn Eiríksson Hanna Hersveinsdóttir Siguröur Eiríksson Ása Ásmundsdóttir Atvinna BG Bílakringlan óskar eftir að ráða starfs- kraft til skrifstofustarfa. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi góða þekkingu á al- mennum skrifstofustörfum, auk þess sem tölvuþekking er æskileg. Starfið gæti hentað stúdent af við- skiptabraut/verslunarpróf eða skrifstofu- tækni, þó er sú menntun ekki skilyrði. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrif- stofu Bílakringlunnar, og skal þeim skilað fyrir 25. þ.m. Nánari upplýsingar veitir Sóley Birgisdóttir eða Ragnar Sævarsson í síma 14242. BG Bílakringlan Grórinni 7 Keflavík. Stjörnuspeki, dulspeki og nýaldarhreyfíngin Fróðlegt erindi í Safnaðarheimili aðventista fimmtudaginn 25. okt. kl.20.30. Allir velkomnir. STÆRSTA FRETEA-OG AUGLYSINGABLADIÐ A SUÐURNESJUM Keflavík Aukafjárveitingar upp á 100 milljónir Bæjarráð Keflavíkur hefur lagt til að veittar verði auka- fjárveitingar að upphæð rúmar 100 milljónir króna. Var tillaga þess efnis samþykkt í bæjar- stjóm á þriðjudagskvöldið. Ellert Eiríksson bæjarstjóri sagði í samtali við Víkurfréttir, að um væri að ræða viðbót við áður samþykkta fjárhagsáætlun bæjarsjóðs. „Við stöndum frammi fyrir áður gerðum hlulum og við endurskoðun fjárhagsáætlunar fyrir þetta ár kom í Ijós að þessa upphæð vantaði". Skiptast aukafjárveitingar þannig að tæplega 56 milljónir eru vegna rekstrargjalda. Þar eru stærstu liðir 26 milljónir vegna fjár- niagnskostnaðar, 4.9 milljónir vantaði til vinnuskólans, kostn- aður vegna kosninga fór 1.9 mil- Ijónum fram úr áætlun og rekstur fasteigna fór 2.5 milljónir fram úr áætlun. Til fjárfestinga, gjald- færðra og eignabreytinga, fara 45 milljónir og af því eru 12.7 mill- jónir vegna nýja dagheimilisins Heiðarsels og 10 milljónir vegna Sundmiðstöðvar. Ellert sagði að skorið hefði verið niður áður ákveðin verkefni vegna þessa upp á 23.5 milljónir og þar um að ræða umferðarljós 3 milljónir. gatna- og gang- stéttaframkvæmdir upp á 5 mil- ljónir, fegrunarframkvæmdir voru skomar niður um 2.5 mill- jónir og framlag til safnahúss um 7 milljónir. Þá var skorið niður fjárframlag til áhaldahúss upp á 2 milljónir og vatnsveitu upp á 1.5 ntilljón. Tekjur voru einnig hækkaðar um 11 mill- jónir króna. „Við gerum þetta til að ná endum santan", sagði Ellert og benti á að til Heiðarsels hafi verið tekið auk þessa lán hjá verktakauppá 17.5 milljónirog vegna tækjakaupa við sama dagheimili upp á 5.7 milljónir. Frá nauöungaruppboðinu í Hótcl Kristínu á miövikudag í síðustu viku. Ljósm.: hbb. Sparisjóðurinn eignast hótel og verkstæði Við þriðja og síðasta nauðungaruppboð á hús- eignunum Holtsgata 49a og Holtsgötu 49b í Njarðvík í síðustu viku voru eignimar slegnar Sparisjóðnum í Kefla- vík til eignar. Húseignir þessar sem eru sambyggðar voru í eigu Steindórs Sigurðssonar og var rekstur Hótel Kristína í öðru Ráðningafrysting sú sem er hjá Vamarliðinu á Ke- flavíkurflugvelli var rædd á sameiginlegum fundi stjómar, trúnaðarráðs og trúnaðarmanna VSFK og nefndamianna í Var- narmálanefnd Utan- ríkisráðuneytis, sem hatdinn var á Glóðinni í síðustu viku. Að sögn Guðmundar Finnssonar ritara VSFK kom fram margt fróðlegt á fundinunt. Hefur Vamarliðið m.a. ákveðið að aflétta frystingu af húsinu en verkstæði sem leigt var út í hinum. Var hótelhlutinn sleginn á 14 milljónir króna, en verkstæðið á 6,5 milljónir. Að sögn Vil- hjálms H. Vilhjálmssonar hrl, lögmanns Sparisjóðsins verður fljótlega leitað eftir kaupendum að húsunum. slökkviliði og snjó- ruðningsdeild. Auk þess sem önnur störf eru í skoðun. Kont ni.a. fram að nú væru það ekki hemaðaryfirvöld sem ákvæðu í málinu, heldur sjálft bandaríska þingið. Frystingin hefur haft þau áhrif að ekki hefur verið ráðið í um 70 stöður sem Iosnað hafa, en þess í stað hefur álagið komið á þá starfsmenn sem fyrir væru. Uthafskarfa- veiöar ganga illa Úthafskarfaveiðar togarans Hrafns Sveinbjamarsonar GK gengu illa að sögn Eiríks Tómassonar, framkvæmda- stjóra Þorbjamar hf. í Grinda- vík. Togarinn stundaði veiðar á úthafskarfa í sumar, en mun hafa verið búinn óheppilegu trolli fyrir veiðamar. Eiríkur sagði að nú hafi verið fest kaup á nýju trolli og er ætl- unin að togarinn fari að nýju á úthafskarfa. Neyðarblys sást af Reykjanes- braut Lögreglunni í Keflavík barst á laugardagsmorgun tilkynning frá vegfaranda um neyðarblys á hafi úti, út af Garðskaga. Var vegfarandinn staddur á Reykja- nesbraut ofan Keflavíkur. Kom í ljós að um var að ræða rauða neyðarsól sem skipverjar á dráttarbátnum Orion II skutu upp um átta-leytið um morg- uninn. Þar sem Slysavamafélagið og Landhelgisgæslan voru komin í málið var ekki þörf fyrir afskipti lögreglunnar í Keflavík. Sæbjörg, björgunarhraðbátur björgunarsveitarinnar í Sand- gerði og Garði, var send út á móts við dráttarbátinn, þegar skipverjar voru í vandræðum með flutningspramma sem þeir vom með í togi. Sæbjörg varð hins vegar að snúa við sökum veðurs. Eins og greint hefur verið frá í fréttum komst Orion II til Reykjavíkur og annar flutn- ingspramminn. Hinn pramminn týndist út af Garðskaga og hefur enn ekki fundist. V.S.F.K. og Varnamálanefnd: Ráðningafrystingin rædd á sameiginlegum fundi Útgefandi: Víkurfréttir ht . i ' ' " «'■■■ Afgreiösla, ritstjórn og auglýsingar: Vallargötu 15. símar 14717, 15717. Box 125, 230 Keflavík. Póstfax nr. 12777. - Ritstjórn: Eniil Páll Jónsson, hcimas. 12677, bflas. 985-25916. Páll Ketilsson, heimas. 13707. bflas. 985- 25917. - Fréttadeild: Emil Páll Jónsson, Hilmar Bragi Bárðarson. - Auglýsingadeild: Páll Ketilsson. - Upplag: 5800 eintök sem dreift er ókeypis um öll Suðumes. - Aðili að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða og Upplags- eftirliti Verslunarráðs. - Eftirprentun. hljóðritun, notkun ljósmynda og annað er óheimilt nema heimildar sé getið. Setning, filmuvinna og prentun: GRAGÁS hf. Keflavík.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.