Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.10.1990, Síða 5

Víkurfréttir - 18.10.1990, Síða 5
Fréttir Par úr Njarðvík í heims- meistara- keppni í sam- kvæm- isdönsum Fyrstu íslendingamir er taka þátt í heimsmeistarakeppnum áhugamanna, munu taka þátt í tveimur slíkum í Þýskalandi 10. nóvember. Eru það tvenn pör frá Nýja dansskólanum sem öðluðust réttinn til keppni. hér á landi í fyrra. Annað parið er héðan að sunnan, Haukur Ragnarsson úr Njarðvík og unnusta hans Ester Inga Níelsdóttir, Einarssonar Söring. Þau taka þátt í 10 dansa heimsmeistarakeppni í Köln. Hitt parið er úr Hafnarfirði og tekur þátt í unglingakeppni í latín-dönsum í Kalv. Bæði hafa danspörin náð frábærum ár- angri í danskeppnum áhuga- manna hér heima og erlendis. Víkurfréttir 18. okt. 1990 Heimilistæki fyrir 100 þús. kr. eða meira, lánað í 24 mánuði. Afborgun ca. 5000 á mánuði. - Engin útborgun. Þú færð hvergi betri kjör! Komdu og verslaðu allan _______s ..pakkann" i húsið á greiðslukjörum scm eiga sér k——— -------van hiið- -tr:Stæðu FAX Víkurfrétta 12777 Ester Inga Níelsdóttir og Haukur Ragnars- son. Tónlistarfélag Keflavíkur og nágr. Framhaldsaðalfundur á laugardag Verður félagið lagt niður ? Miðvikudaginn 10. október var aðalfundur Tónlistarfélags Keflavíkur og nágr. haldinn í Tónlistarskólanum í Keflavík. Boðað hafði verið til fundarins eins og lög gera ráð fyrir, skrif- lega með a.m.k. viku fyrirvara en þrátt fyrir það var mæting mjög léleg. Umræður urðu verulegar um almennt áhugaleysi félags- manna og kom m.a. fram tillaga um að leggja Tónlistarfélagið niður. Ekki var tekin ákvörðun um það heldur ákveðið að fresta fundi og boða lil framhaldsað- alfundar n.k. laugardag 20. okt. kl. 13.00 á sal Tónlistarskólans í Keflavík. Er hér með skorað á alla félagsmenn, og áhugamenn um tónlist að mæta á fundinn og sýna með því samstöðu og að Fundur um álver í kvöld Ákveðið hefur verið að halda kynningarfund um álver og þá möguleika sem fyrirtæki á Suð- umesjum hafa varðandi verk- efni við það á fimmtudaginn. Eru það Atvinnunefnd Kefla- víkur, Atvinnuþróunarfélag Suðumesja og starfshópur um stóriðju sem boða til fundarins. Er ætlunin að á fundinum verði fyrirtækjum kynntar hug- myndir um samstarf fyrirtækja um ákveðna verkþætti við byggingu álvers eða stofnun samstarfsfyrirtækis um verk- efni. Er fundurinn ætlaður for- ráðamönnum fyrirtækja og öðr- um sem áhuga hafa á mál- efninu. Verður fundurinn eins og áður segir í kvöld á Glóðinni og hefst kl. 20.30. ástæðulaust sé að leggja félagið niður. Ekki þarf að tíunda nauðsyn þess að öflugt tónlistarfélag starfi á jafn stóru svæði og Keflavík-Njarðvík er. Félagið hefur beitt sér fyrir tónleikahaldi á svæðinu og nú síðast voru tón- leikar á vegum þess í Ytri Njarðvíkurkirkju laugardaginn 6. október s.l. Þegar hafur verið gerð tónleikaáætiun vetrarins 1990-1991 svo nú er um að gera að iáta ekki deigan síga. Tónlistarfólk f Keflavík og Njarðvík. Mætum á fundinn og styðjum við bakið á Tón- listarfélagi Keflavíkur og nágr. svo það megi áfram gegna því veigamikla hlutverki sem því er ætlað. BILAHUSIÐ SJALFSÞJONUSTA - SMURSTOÐ Grófin 10 Keflavík Sími 14788 NÚ ER GOTT AÐ KOMA TIL OKKAR AÐ PRÍFA OG BÓNA • Hjá okkur geturðu þrifið og bónað bílinn þinn. Bjart og gott hús- næði. Erum með háþrýstidælu og djúphreinsunarvél. Tökum einnig að okkur þrif, bón, djúphreinsun, ásamt gufuþvotti á öllum gerðum af bílum URVALS BON- OG HREINSI- EFNA FRÁSONAX ATHUGIÐ BREYTTAN OPNUNARTIMA: mán - fös. kl 13 - 22 Laugardaga 13 -18 ( einnig smurstöö) HRINGDU OG PANTAÐU PIZZU OG HÚN VERÐUR TILBÚIN ÞEGAR ÞÚ KEMUR. Alltaf í hádeginu ódýrir kjöt- og fiskréttir með súpu.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.