Víkurfréttir - 18.10.1990, Blaðsíða 9
Fréttir
_________9
Xíkurfoéttir
18. okt. 1990
^WM'fpL.l'SAR
'fúSAfl
FLÍSAR
FRÁ FLISfl-
BÚÐINNI ERU
TIL í LITAVAL
f KEFLAVÍK
Baldursgotu 14 - Keflavík
Sími 14737
Suðurnesjamenn!
VERSLUM HEIMA
VÍKURFRÉTTIR
Námsflokkar F.S.
Þáttaka í daufara lagi
Þátttaka í Námsflokkum
Fjölbrautaskóla Suðumesja er
með daufara móti í ár, að sögn
Hjálmars Ámasonar, skóla-
meistara. Um 70 manns hafa
innritað sig í námsflokkana og
það er austurlensk matargerð
sem heillar flesta.
Hjálmar sagði að í ár hafi
ekki fengist þátttaka í alla
flokka sem boðið var upp á, en
ljóst væri að fimm hópar yrðu á
vegum námsflokkanna. „Við
gerum okkur ekki grein fyrir
hvað veldur því að þátttaka er
þetta dauf í ár. Nú er verðið fyrir
námskeiðin í algjöru lágmarki".
Innritun í Námsflokkana verður
haldið áfram út þessa viku og
um helgina verður tekin
ákvörðun um hvað kennt
verður í vetur og hvaða greinar
verða felldar niður.
Um síðustu helgi höfðu um
70 manns skráð sig í náms-
flokkana, en það er nokkm
minni þátttaka en verið hefur
undanfarin ár. Hefur fjöldi
þeirra sem stundar nám í
Námsflokkum F.S. farið upp í
140 manns, og það er fólk á
öllum aldri sem stundar þar
nám.
Húsagerðin h.f.:
Kynning í Smart föstudag 19 okt. kl. 14-18
^Snyrtifrœðingur frá Lancome leiöbeinir
og farðar með nýju haustlitunum.
*Viöskiptavinir sem versla fyrir 2500 kr.
eöa meira fá gjafapakka frá Smart
og Lancome.
^FAIIir fá glaðning frá Smart.
Kraninn sá stærsti sinnar tegundar hér á landi við nýja miðlunartankinn. Ljósm.: hbb.
Miðlunartankur fyrir tvær
milljónir lítra af vatni byggður
Fjör á fínum föstudegi -
Veriö velkomnar
P.S Óvœnnt uppákoma!
SNYRTIVÖRUVERSLUNIN
smaRt
Holmgaröi 2 - Simi 15415
Nýlokið er við að steypa upp
miðlunarvatnstank sem Húsa-
gerðin h.f. er að byggja fyrir
Vatnsveitu Suðumesja og
staðsettur er ofan Reykja-
nesbrautar skammt norðan við
Grænásinn. Er verkið var boðið
út átti Húsagerðin lægsta tilboð
af 22 er bárust.
Að sögn Áskels Agnarssonar
hjá Húsagerðinni er það sér-
stætt við tankinn að sá aðili sem
hann byggir sér sjálfur um alla
hönnun og undirbúning. Ræður
Húsagerðin því gerð hans og
lögun. Mun tankurinn taka tvær
milljónir lítra af vatni og tengj-
ast nýju vatnslögninni til
Keflavíkur og Njarðvíkur.
þegar lögn leiðslunnar er lokið.
Mun nú taka við fram-
kvæmdir við útlit tanksins og
annað það sem Itonum mun
fylgja, en Húsagerðin lét einnig
hanna það.
Við framkvæmdir á verkinu
var á dögunum fenginn á
staðinn stærsti glussakrani sem
til er hér á landi, en Iyftigeta
hans em 120 tonn. Til að hann
kæmist á staðinn þurfti alls 64
hjól. Undir krananum sjálfum
eru átta öxlar með alls 42 hjól-
um, en að auki komu tveir
vagnar með fylgihluti svo sem
ballestina og voru þeir með alls
22 hjól báðir til samans.
I síðustu viku var tankurinn
síðan þrýstiprófaður og þurfti
til þess að dæla í hann 2 millj-
ónum lítra af vatni. Að prófun
lokinni sá Slökkvilið Bruna-
vama Suðumesja um að losa
hann við vatnið út í heiðina.
Slökkviliðsbíll frá Brunavörnum Suðurnesja var notaður til að dæla tveimur milljónum lítra úr
tankinum, er prófun var lokið. Ljósm.: epj.
Sorpeyöingarstöö
Suöurnesja:
Friöfinnur
ráöinn
stöðvarstjóri
Friðfinnur Einarsson fyrrum
pizzuframleiðandi með meiru
het'ur verið ráðinn sem
stöðvarstjóri Sorpeyðingar-
stöðvar Suðumesja. Tók hann
við um síðustu mánaðarmót
starfi því sem Pétur Pétursson
hefur gengt fram að þessu.
Alls sóttu 25 manns um
stöðuna og var Friðfinnur
ráðinn úr hópi umsækjanda.
Elliði GK í
úrelding
Miðnes h.f. í Sandgerði hefur
ákveðið að úrelda stálbát sinn
Elliða GK 445. Elliði er
smíðaður í Noregi 1963 og
mælist 137 brúttórúmlestir að
stærð.
Hefur kvóti bátsins bæði bol-
fisks- og síldar, verið færður
yfir á önnur skip í eigu þeirra
systurfyrirtækja Keflavíkur h.f.
og Miðness h.f. En Elliði hefur
ekki verið gerður út á dæmi-
gerðar veiðar nú um langt skeið,
heldur gerður út af íslenskum
skelfiski til veiða á lifandi
humri í gildrur.
Flugvél í erfiðleikum:
Slökkvilið og al-
mannavarnir í
viöbragösstööu
Almannavamanefnd Suður-
nesja utan Grindavíkur ásamt
Slökkviliði Brunavama Suður-
nesja bárust tilkynningu undir
morgun dags eins í síðustu viku
um flugvél sem ætti í
erfiðleikum og væri á leið til
Keflavíkurflugvallar með 35
manns innanborðs. Var óskað
eftir því að viðkomandi aðilar
ásamt sjúkraliði yrði í
viðbragsstöðu.
Mun flugvélin hafa verið
orðin eldsneytislítil. Tókst flug-
mönnum hennar að ná flug-
vellinum án þess að hjálparliðs
þyrfti.
Erum að taka upp meiriháttar
háttar haustlínu frá WARNER.
Erum níbúinn að taka inn yfir-
stœrðir í st: 34-42 CA, B, C, D, D/D
E og F. WARNER fœst bara í Smart
LANCÓME j&p
PARIS % ^