Víkurfréttir - 18.10.1990, Blaðsíða 10
10
Kristján Pálsson, bæjarstjóri í Njarðvík, í viðtali
\4kurfréttir
18. okt. 1990
Viðtal: Halldór Leví Mynd: Hilmar Ðragi
Prófste
Viðmælandi blaðsins að
þessu sinni er Kristján Páisson,
bæjarstjóri í Njarðvík. Kristj-
án tók við starfi bæjarstjóra
þar í sumar, en hann gegndi
áður starfi bæjarstjóra í Olafs-
vík. Hann er útgerðartæknir og
stýrimaður að mennt og starf-
aði um skeið sem fram-
kvæmdastjóri útgerðarfyrir-
tækis, en varð síðan sveitar-
stjóri á Suðureyri. Því starfi
gegndi hann þar til hann fiutti
til Olafsvíkur. þar sem hann
var bæjarstjóri sl. 4 ár.
En hvernig líkar honum aii
koma til Njarðvíkur?
„Mér líkar mjög vel í Njarð-
vík, mér hefur verið vel tekið hér
og minni fjölskyldu“.
Er ekki erfitt að taka sig upp
og flytja á nýjan stað?
„Auðvitað er erfitt að taka sig
upp, en þetta er alltaf spuming
um hvers vegna menn eru að taka
sig upp og hvað maður er að fara
að gera. Eg kem hingað til að
gegna ákveðnu starfi sambæri-
legu við það sem ég hef gegnt
áður annars staðar. Það er alltaf
léttara að fara til nýrra staða með
fyrirfram ákveðnar áætlanir.
Konan mín er kennari og fékk
strax starf við Grunnskóla Njarð-
víkur, þannig að fjölskyldan hef-
ur verið fljót að að aðlaga sig
nýjum aðstæðum".
Umhverfismál
helsta mál bæj-
arstjórnar
Hver verða helstu mál bœj-
arstjórnar ncesta kjörtímabil?
„Þau mál sem verða efst á
baugi hjá bæjarstjóminni eru mál
eins og umhverfismál, tenging
Innra- og Ytra hverfisins. skolp-
mál, skipulagsmál. atvinnumál
o.fl. Samgöngur milli hverfa er
búið að leysa með því að taka í
notkun nýjan veg sem tengir
hverfin tvö. Þá hefur bæjar-
stjómin gert nýlega samkomulag
við SBK um aukna þjónustu þess
fyrirtækis, þannig að nú er reglu-
bundinn akstur á milli hverfanna
til kl. 22 á kvöldin alla virka daga.
Eins hefur náðst samkomulag við
SBK um að allar áætlunarferðir
þeirra til Reykjavíkur verði með
einni viðkomu í Innri-Njarðvík, á
báðum leiðum, án þess að sér-
staklega sé beðið um það. Þetta er
allt til bóta að mínum dómi“.
Hvaða mál eru það t.d. i um-
hverfismálum sem bcejarstjórnin
mun leggja álterslu á?
„I umhverfismálum verður
fyrst litiö á mál sem varða inn-
komuna í Njarðvík. Við viljum að
innkoman sé aðlaðandi þannig að
fólki finnist strax og það kemur
inn í bæinn að hér sé aðlaðandi og
snyrtilegt. Hugmyndin er að
koma fyrir gróðurbeltum eins og
á höfuðborgarsvæðinu. Get ég
nefnt sem dæmi að meöfram
Njarðarbrautinni verður komið
fyrir gróðri, þannig að iðnaðar-
hverfið á Fitjum verður ekki eins
áberandi. Við erum að tala um að
setja plöntur og tré á umferðar-
eyjur o.s.frv. Einnig að koma upp
gróðurvinjum víða um bæinn.
Þetta er verið að skipuleggja og er
gert ráð fyrir að byrjað verði á
framkvæmdum næsta vor“.
Þú minntist á frekari tengingu
milli hverfa. A hvern hátt verður
það gert?
„Frekari tengingu þarf með
reiðhjólastíg og göngustíga milli
hverfanna. Að öðru leyti tel ég
samgöngur góðar milli Innra og
Ytra hverfis".
Þú nefndir að í um-
hverftsmálum verðitöluvertgert.
Hvað með holrœsa- og hrein-
lœtismál?
„Umhverfis- og hreinlætismál
eru tengd mál. Við erum nú að
vinna að áætlun sem á að taka á
vandamálum varðandi fjöru-
mengun og skolpafrennsli. Það
eru í gangi samningaviðræður við
Atvinna
Laust er til umsóknar 70% tímabundið starf í
heimahjúkrun við Heilsugæslustöðina í
Keflavík. Hluti starfsins er vaktavinna um
helgar og á kvöldin. Sjúkraliðamenntun er
æskileg en ekki skilyrði.
Umsóknarfrestur er til 26. október og skulu
umsóknir berast undirrituðum sem gefur allar
nánari upplýsingar, ásamt hjúkrunarforstjóra
HSS í síma 14000.
Framkvæmdastjóri
Suöurnesjamenn!
Verslum heima
o
Gömlu dansarnir eru
byrjaðir á ný!
og hefjast laugardaginn 20. október. Dansar í
KK-húsinu uppi. Húsið opnað kl.22. Mikið fjör
og góð stemning.
Þingeyingafélagið
^jjj Foreldrar athugið
Litla leikhúsið sýnir leikþáttinn Tröllið týnda
á Garðaseli, á morgun, föstudaginn 19. okt-
óber kl. 14.00. Leikið verður úti á leikvellinum
og eru öll böm á forskólaaldri velkomin.
Enginn aðgangseyrir.
Félagsmálastofnun
Börnin á (Jimli !iuldu listaverkasyningu a sunni
Karisdóttir, Jóhann Árni Olafsson, Steinar Rúi
Börn á Gimli me<
Bömin á Gimli í Njarðvík munu
standa fyrir málverkasýningu á leik-
skólanum Gimli nú á sunnudaginn, 21.
október. Verður sýningin opin frá kl.
13-17.
í haust hafa krakkamir, sem em á
aldrinum 2-6 ára. unnið að ýmsum verk-
efnum sem eru skapandi og þar á meðal