Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.10.1990, Blaðsíða 11

Víkurfréttir - 18.10.1990, Blaðsíða 11
________u Yíkurfréttir 18. okt. 1990 nn á samstarfiö Vamarliðið varðandi þeirra skolpleiðslu, sem liggur í gegnum Fitjamar. Þegar náðst hefur sam- komulag við þá um flutning á af- rennslinu á um leið að flytja skolp bæjarins í sömu leiðslu, þannig að öllu skolpi verði dælt út á einum stað í Njarðvík". Er ekki um ail rœða gífurlega stóra framkvœmd, þar sem með breyttum reglum þarf að gróf- hreinsa skolp? „Jú, það hafa nýjar reglur tekið gildi sem eru í þá vem að allt skolpafrennsli verði að ná niður á 5 metra dýpi undir stórstraums- fjöm. Þetta þýðir að allt skolp- afrennsli í Njarðvík er ólöglegt. Við höfum ákveðinn tíma til að aðlaga okkur þessum reglum. Við viljum gera þetta varanlegt. Því verða gerðar mengunarrann- sóknir á fjörunum hér og Haf- rannsóknarstofnun fengin til að gera straummælingar þannig að hægt verði að staðsetja leiðsluna á þeim stað sem straumar em mestir. Þetta tekur tíma, en þegar niðurstöður úr þessum rann- sóknum liggja fyrir þá verður ákveðið hvar affallið á leiðslunni verður lagt. Hér er um að ræða framkvæmd upp á hundmðir milljóna og er stefnt að því að þær hefjist á kjörtímabilinu". Hefur verið kannað hvort hagkvœmt sé að gera þessa framkvœmd í samvinnu við Keflvíkinga? „Nei, það hlýtur þó að koma til athugunar, því Ijóst er að skolpið fer á milli nágranna með einum eða öðmm hætti. Eg tel að bæj- aryfirvöld í Njarðvík muni setjast niður með Keflvíkingum og kanna hagkvæmni þess að leysa þetta sameiginlega". Tekjur ofáætlaðar Ef við snúum okkur að fjár- hagsstöðu bœjarins. Hvernig er staða bcejarsjóðs og kemur staða hans til með að hefta fram- kvœmdagetu bœjarins? „Við endurskoðun fjárhags- áætlunar var skorið töluvert af framkvæmdaliðum ársins. Þar var um að ræða framkvæmdir við gatnagerð og leikvallagerð í Fífumóa o.fl. Þetta varð að gera þar sem tekjur vom ofáætlaðar og liðir á fjárhagsáætluninni höfðu farið langt fram úr áætlun. Þess ber að geta að við stórar fram- kvæmdir eins og Gmnnskólann leiðir eitt af öðm. Þegar gert er við gamalt hús kemur ýmislegt í ljós sem ekki var séð fyrir". Er um að rœða stórt gat í fjárhagsáœtlun bœjarins? „Það hefur komið fram að í stað þess að bæjarsjóður skilar afgangi upp á 20 milljónir, þá vantaði 19 milljónir upp á að endar næðu saman. Eg vil þó taka fram að staða bæjarsjóðs er alls ekki slæm. Njarðvík er stöndugt bæjarfélag, þó svo að svona hafi farið í þetta sinn". Samstilltur hópur Hvernig er meirihluti bœj- arstjórnar, sem réði þig? Er þetta góður hópur? „Þetta er góður hópur og sam- stæður og gagnkvæmt traust milli manna". Nú virtist koma upp ágrein- ingur milli þessara tveggja flokka varðandi ráðningu fé- lagsmálastjóra ? „Það em alltaf einhver mál sem eru erfiðari en önnur. Meiri- hlutinn var nýtekinn við þegar þetta mál kom upp og var að stilla strengi sína. Þegar málið hafði verið rætt til hlítar vom menn einhuga um lausn þess". Biðlaunamálið svokaUaða? „Það mál er frágengið af hálfu bæjarstjómar". Nú hefur legið fyrir að ábyrgð mun falla á bœjarsjóð vegna Olsen-vélsmiðjunnar. Hvernig stendur það mál í dag? „Olsen-málið hefur ákveðna forsögu. Bæjarstjómin fyrrver- andi hafði forgöngu um að ábyrgjast lán í Utvegsbankanum fyrir Vélsmiðju 01. Olsen hf. Um það var samstaða í bæjarstjóm- inni. Menn töldu að þeir væm að styrkja fyrirtæki sem ætti mögu- leika. Akvörðunin var ekki um- deild. En svo gerðist það að áætl- anir reyndust ekki á rökum reistar og fyrirtækið fer í gjaldþrot. Þessi ábyrgð var töluvert há og er nú orðin um 24 milljónir þegar allt er talið. Síðan kemur til önnur ábyrgð gagnvart Iðnlánasjóði. Sú ábyrgð var aldrei borin upp í bæjarstjóm og því formlegt sam- þykki ekki fyrir hendi. En við emm þó krafðir um greiðslu hennar. Samtals em þær ábyrgðir sem bæjarsjóður er að verja sig fyrir upp á 29-30 milljónir króna". Sérðu lausn á þessu máli? „Já, við munum nota okkur færustu lögfræðinga á þessu sviði. Hugsanlega þurfum við ekki að greiða nema hluta þeirra krafa sem á okkur eru gerðar. Það byggist á tæknilegum atriðum og er bæjarsjóður talinn eiga yfir 50% möguleika á því að vinna málið. því er ekki stætt á öðm en að fara í vöm og fá úrskurð dóm- stóla". Er komin lausn á máli þvísem Alþýðuflokkurinn hefur gert ágreining úr vegna setu Leu Oddsdóttur í stjórn S.K.? „Það hafa ekki borist svör frá ráðuneytinu varðandi það mál. En eins og kom fram á bæjarstjóm- arfundi þar sem þetta mál kom fyrir telur meirihlutinn sig ekki vera að brjóta nein lög í þessu efni. Því var jafnframt lýst yfir af hálfu meirihlutans. að ef ráðu- neytið úrskurðaði Leu ólöglega vrði þeim úrskurði hlýtt". Nú gerði bœjarstjórn Njarð- víkur alhugasemd við flugum- ferð yfir Njarðvík. Hafa svör borist varðandi það mál? „Við gerðum athugasemd við óþarfa umferð yfir byggð í Njarðvík og teljum okkur ekki hafa fengið nein viðhlítandi svör um þau mál. Á síðasta bæjar- stjómarfundi var samþykkt ályktun sem send hefur verið samgönguráðherra vegna málsins og hann krafinn gleggri svara en þegar hafa borist. Við viljum að öryggi íbúa í nágrenni flugvalla sé tryggt". ✓ I upphafi skyldi endirinn skoða Fulltrúar Njarðvíkur fluttu tillögu um tekjuskiptingu vegna álvers, á aðalfundi SSS. Hefur eitthvað skýrst varðandi það mál? „Þessi tillaga fékk allnokkra umræðu innan stjórnar SSS og var vísað þaðan til álhópsins, sem mun gera tillögur í þessu máli, en það verður síðan stjómar SSS að ganga endanlega frá þessu máli". Hvernig sérð þú að þcer til- lögur verði? Telur þú að sam- staða verði um tekjuskiptingu? „Eg tel að allt samstarf í at- vinnumálum velti á því að hægt sé að ná samkomulagi um tekju- skiptingu, og held að það sé nauðsynlegt að rifja það upp að 75% af veltuskattinum rennur sem sárabót fyrir aðra landshluta, sem atvinnuuppbyggingarsjóður á þeim svæðum. Suðumes eiga ekki að fá neitt úr þeim sjóði. Aftur á móti er reiknað með að Suðumesin fái sem heild 25% til skiptanna. Það væri nöturlegt ef síðan þessi 25% rynnu til eins sveitarfélags af sjö, sem hafa starfað saman að því að fá ál- verið. Að aðeins eitt sveitarfélag nyti beinna tekna væri óheppilegt og ósanngjöm niðurstaða á ann- ars góðu samstarfi. Það er nauð- synlegt að ganga frá slíkum at- riðum strax í upphafi. Gamalt máltæki segir: „að í upphafi skyldi endirinn skoða“. Eg vil þó taka fram að mér heyrist á Voga- mönnum að þeir séu menn sátta og samlyndis og ég trúi því að á þessu máli fáist niðurstaða sem allir geti sætt sig við". Sérð þú fram á að nýtt álver verði mjög atvinnuskapandi fyr- ir Njarðvík? „Veldur hver á heldur. Eg held að okkar svæði eigi töluverða möguleika. Það byggist á því að forsvarsmenn fyrirtækja og sveit- arfélaga bregðist fljótt við að undirbúa komu álversins. Við þurfum að mennta upp starfs- menn á Suðumesjum til starfa við álverið. Það verðum við að gera í samvinnu við Fjölbrautaskóla Suðumesja, en þau mál .hafa þegar verið rædd. Hvemig við getum fengið sem mest af verkum við uppbyggingu álversins veltur á samstarfi fyrirtækja við að bjóða sameiginlega í verk. Þau verða að standa saman um það. Hefur farið fram umræða um þau mál“. Mynda sveitarfélögin hér, t.d. K efla vík-Njarð vík, heilsteypta atvinnustefnu? „Innan atvinnumálanefnda þessara staða fara fram umræður á hvem hátt megi auka at- vinnuuppbyggingu og miða þá við viðkomandi sveitarfélag. En þegar menn líta á þessi stóru fyr- irtæki eins og álver er ekki hægt að einblína á eitt sveitarfélag. Það hefur komið til umræðu að hafa eina atvinnumálanefnd fyrir Keflavík-Njarðvfk eða jafnvel eina atvinnumálanefnd fyrir Suð- umes, þar sem gerð væri sam- ræmd atvinnustefna og meðal annars ákveðin tekjuskipting milli sveitarfélaga, óháð stað- setningu væntanlegra fyrirtækja. Þess vegna er mikilvægt að fá niðurstöðu í tekjuskiptingu vegna álversins. Það mál er prófsteinn á hvort slíkt samstarf getur gengið. Hér eru fjórir listamenn af fiimli, f.v.: Sjerun on og Lilja Gunnarsdóttir. Ljósm.: hbb. málverkasýningu málaralist. Er á sýningunni mikill fjöldi glæsilegra verka og slá bömin mörgum abstraktlistamönnum við. Eru Njarðvíkingar og aðrir Suður- nesjamenn hvattir til að koma og skoða sýninguna og kaupa sér listaverk, því um sölusýningu er að ræða. Arshátíð Hestamannafélagsins Mána verður haldin í Stapa laugardag- inn 10. nóvemb- er. Haldið verð- ur upp á 25 ára afmæli félags- ins. Hljómsveit Birg- is Gunnlaugs- sonar leikur fyrir dansi. Veislustjóri Gunnar Eyj- ólfsson. Nánar auglýst í fréttabréfi Skemmtinefnd Frá Heilsugæslustöð Suðumesja Bólusetningar við inflúensu hefjast á Heilsugæslustöð Suðurnesja kl. 13.00-15.00, dagana 18., 19., 22. og 23. okt- óber n.k. Forgang hefur fólk ineð langvarandi sjúk- dóma, svo sem hjarta- og lungnasjúkdóma. Ellilífeyris- og örorkuþegar greiða kr. 450. Aðrir greiða kr. 600. Hjúkrunarforstjóri

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.