Víkurfréttir - 18.10.1990, Side 12
Fréttir
Viltu syngja
Kór Keflavíkurkirkju óskar eftir söngfólki
í allar raddir á öllum aldri. Líflegt starf.
Upplýsingar hjá formanni í síma 12275
(Hrönn) og söngstjóra (Einari Emi) í síma
14563 eða í kirkjunni á
þriðjudagskvöldum.
Ibúð - Bifreið
Lítil íbúð til sölu. Bifreið gæti dugað
sem útborgun. Greiðsla á eftir-
stöðvum svipuð og húsaleiga.
Upplýsingar í síma 14366.
\Í kurfróttir
18. okt. 1990
Íí ® ifl J M j í IfcU nr
pjl
mm Ynnnifi
Hw \\ Uiíifi/n m i nn
Jpp 5 '
«'t
A.: ýýCPBrlKb'
‘iL
Þröngt var á þingi er hópar úr Mvlluhakkaskóla litu inn í síðustu viku, í tilefni af kynningu á
ólæsi. Urðu krakkarnir að láta sér það lynda að sitja á gólfinu. Ljósm.: hbb.
Sameiginlegt safnahús:
Besti og eini kosturinn sem
hægt er að fallast á
Aðalfundur
Neytendafélags Suðumesja
verður haldinn fimmtudaginn 1. nóvember
n.k.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnurmál.
Nánar auglýst síðar.
Stjórnin.
Ferðamálasamtök
Suðumesja
Aðalfundur
Aðalfundur Ferðamálasamtaka Suðurnesja
verður haldin í veitingahúsinu Vitanum,
Sandgerði (við höfnina) mánudaginn 22.
október n.k. og hefst kl.20..00.
DAGSKRÁ
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreyting.
3. Framsöguerindi um ferðamál.
4. Umræður
5. Önnur mál, ef fram koma.
Stjórn Ferðamálasamtaka Suðurnesja.
Málefni Bæjar- og héraðs-
bókasafns Keflavíkur er til
umræðu um þessar mundir.
Hefur m.a. sameiginleg nefnd
Keflvíkinga og Njarðvíkinga
skilað áliti, en þó bólar ekkert á
málinu frá hendi bæjarstjómar
Keflavíkur. En hvað segir
Hiimar Jónsson bókavörður um
málið og um livað snýst það, til
að leita svars við því gefum við
honunt orðið.:
„1958 hóf bókasafnið starf-
semi sína, þá í 101 fermetra
húsnæði á efri hæð íþrótta-
hússins við Norðurtún, sem nú
tilheyrir Myllubakkaskóla.
Fyrir tilstuðlan þeirra Jóhanns
Einvarðssonar bæjarstjóra og
bæjarráðsmannana Hilmars
Péturssonar og Tómasar
Tómassonar flutti það í október
1974 að Mánagötu 7 og fékk
þar 360 fermetra til umráða.
Hefur það húsnæði þjónað
okkur síðan.
Á meðan hefur bóka-
kosturinn vaxið, sem dæmi þar
um lánuðum við út 1600 eintök
af bókum 1958, en nú eru
lánaðar út milli 38 og 39 þúsund
bækur, auk annarra gagna s.s.
myndbanda og geisladiska. Er
nú svo komið að við getum ekki
tekið á móti stærri hópum nema
bjóða þeim að sitja á gólfinu.
Hefur því verið óskað eftir
stærra húsnæði og því hefur
bæjarstjórn svarað tvisvar með
fjárveitingu sem síðan hefur
verið tekin af okkur. I fyrra var
búið að úthluta okkur 7 mill-
jónum til viðbyggingar hér við
Mánagötuna, en hætt var við
það vegna óánægju nágranna.
Nú er það sameiginlegt safna-
húss sem horft er til en þá
stendur á bæjarstjóm Kefla-
víkur.
Vegna þessa lýsi ég yfir
óánægju með það hvemig unnið
er að þessu máli. Sameiginlegt
safnahús er besti og eini kost-
urinn sem hægt er að fallast á.
Það er því slæmt ef Kefl-
víkingar ætla að rifta áður gerðu
samkomulagi bæjarfélaganna
og koma þar með í veg fyrir að
þessi samstarfsmáti komist í
framkvæmd.
Það er slæmt til þess að vita
að við skulunt þurfa að líða það.
að hverju sinni er nýr meirihluti
tekur við í bæjarstjóm, vilji
hann ekkert vita af samþykktum
þess fyrri. Er það með öllu
ótækt að bjóða íbúunum að búa
við slíkt. Lýsi ég yfir andstöðu
minni með að nú skuli aftureiga
að taka af okkur 7 milljóna
króna framlag, sem nýta hefði
átt í undirbúningsvinnu.
Sá meirihluti sem nú starfar í
Keflavík virðist ekki hafa vilja
til að taka á málinu, né skipa í
byggingamefnd safnahúss. I
stefnuskrá hans var notast við
loðið orðalag um safnamálin og
sama er nú ef leitað er svara hjá
bæjarstjóra eða bæjarráðs-
mönnum, aðeins fást loðin
svör.
Húsnæðismálin eru nú
aðalþröskuldurinn, þar sem
starfsemin er vaxandi, enda
hefur eftirspumin í mynd-
bandsspólur og geisladiska far-
ið vaxandi og gefið góðar tekj-
ur. En til að anna því þarf betra
húsnæði. Um það em allir sam-
mála sem vilja skoða málið og
sameiginlegt safnahús Kefi-
víkinga og Njarðvíkinga er
besta leiðin í þeim efnum“ sagði
Hilmar að lokum.
Sanddælupramminn Mjölne:
Togari tefur björg-
unaraögeröir
Töf varð á undirbúningi
björgunaraðgerða á sand-
dæluprammanum Mjölne í
byrjun vikunnar. Togarinn
Olafur Jónsson GK lá við
bryggju og að sögn eins af
björgunarmönnunt var ekkert
hægt að athafna sig neðansjávar
meðan skipið var við bryggju.
Er rætt var við björgunaraðila
á mánudagsmorgun var það
næsta verkefni þeirra að dæla
lofti í tanka sem festir höfðu
verið við skrokk prammans.
Hlutverk tankanna er að gera
prammann léttari, svo hægt sé
að rétta hann við á hafsbotni.
Um 10.000 lítrar af olíu em
ennþá í prammanum en henni
er ekki hægt að bjarga fyrr en
Mjölne er kominn á réttan kjöl.
Almannavamanefnd Suður-
nesja, utan Grindavíkur, hefur
svokallaða olíugildm til staðar
við höfnina í Keflavík, ef eitt-
hvað skyldi út af bera og olía
læki í sjóinn. Lítil hætta hefur
verið á olíuleka hingað til.