Víkurfréttir - 18.10.1990, Qupperneq 13
Viðhorf
Ár
„átakanna“
Á þessu ári sem nú styttist í,
hafa verið í gangi „átök“ í
ýmsu. „Átak í landgræðslu og
trjárækt", gegn ólæsi „ár læsis“
og „átak í spamaði sjúkrahúsa
og heilsugæslu.
Þegar ég fer að hugleiða
þetta og hitt, kemur mér ávalt
fyrst í hug „ Guðs eigið land,
U.S.A.“. Því allt er þar mest og
best. Úr grein í Spiegel eru
þessar upplýsingar, en þetta eru
samkvæmt könnun frá Gallup.
Omótmælanleg
vandræði
Ólæsi í Bandaríkjunum er
slíkt að til ómótmælanlegra
vandræða horfir. Talið er að 40
milljónir séu bæði ólæsir og
óskrifandi. 1988 gátu 700.000
af 3,8 milljónum, 18 ára, ekki
lesið prófskírteini að loknu
framhaldsskólanámi og önnur
700.000 höfðu horfið frá námi
sem fallistar. Sama ár gat
fimmta hvert bam, 12 ára, ekki
bent á Bandaríkin á hnattlíkani.
Enda hafa framlög til skólamála
fallið úr 2,5% af heildar-
fjárlögum 1979 í 1,8% 1989.
Mér dettur í hug að þetta falli
ráðamönnunt menntamála hér á
landi. Allavega var það svo að
Sverrir Hermannsson sá ástæðu
til að reka úr starfi fræðslustjóra
á Norðurlandi, sem hann tali
hafa eitt of miklu í sérkennslu
til þeirra sem miður gengur.
Ymsir varðhundar valdsins eru
enn í dag að hælbíta þennan
sama fræðslustjóra. Er barátta
Víglundar Þorsteinssonar við
byggingu Gagnfræðaskóla í
Vestmannaeyjum, gegn vilja
allra helstu framármanna í
atvinnureksti og Sjálfstæðis-
flokksins, gott dæmi um áhuga
á menntun. (sbr. ritið Blik,
1969, bls. 198)
Auðn og upp-
blástur
Eitt af því sent minnir mig á
auðn og uppblástur er úrklippa
úr Tímanum 28. sept. s.l., þar
sem Óli H. Þórðarson hjá
Umferðarráði telur að slysum á
bömum hafi fækkað. Hann er
sjálfsánægður að vanda og ekk-
ert eða tatt kemst að hjá honum.
nema bílbelti og ökuljós, jafnt
að nóttu sem degi.
Mér sýnist hins vegar í hvert
skipti sem ég fer um Reykja-
nesbraut. að umferðarmenn-
ingin sé á lágu piani. Þó bíl sé
ekið jafn á löglegum hraða, 90
kílómetrum. fer fjöldi bíla fram
úr á leiðinni milli Njarðvíkur og
Reykjavíkur og oft við vafa-
samar aðstæður. Frekan og
þjösnaskapurinn í Reykjavíkur-
umferðinni er náttúrulega eins
og reifarasaga, enda hafa slys á
bömum, sexfaldast í ágúst og
Guðmundur Vigfússon
skrifar
sept. s.l., en þá slösuðust, 26
böm, 6-14 ára. Þar af a.m.k. eitt
dauðaslys.
Á sama tíma og Óli H.
Þórðar geislar af sjálfsánægju í
fjölmiðlum, stendur í Mogg-
anum: „ Slysatíðni á bömum á
Islandi, sú hæsta í Evrópu og
sjálfsvíg drengja 15-14 ára
þriðja hæsta í Evrópu".
Úr samhengi við
umhverfið
Er það virkilega þannig, að
...„ og frekj-
ur og þjösn-
araskapurinn
í Reykja-
víkurumferð-
inni er nátt-
úrulega eins
og reif-
arasaga...."
flestir þeir sem em komnir.
nokkuð sæmilega uppí fastan
bás hjá ríkinu, slitni úr sam-
hengi við umhverfið og eignist
sinn eigin heim, sem þeir kom-
ast ekki út úr.nema þá í sumar-
frí, eða laxveiðitúr í boði ríkis-
ins, eða einhverra þeirra sem
þurfa að hafa viðkomandi sér
vilhallan. Ég velti þessu oft
fyrir mér.
Útkoman af spamaði í
heilsugæslunni er svo ein
skelfmgasaga. Finnur Ing-
ólfsson fallkantídat hjá fram-
sókn. er eftir því sem mér sýnist
af blaðaskrifum, einhverskonar
samnefnari í spamaðaraðgerð-
um hjá heilbrigðisráðherra fyrir
allar hörmungar. Hann er ávallt
í fjölmiðlum með tölur, a.m.k. í
tugum milljóna, en oftast hund-
ruð milljóna eða þá milljarða
stærri upphæðir, en ég skil að
nokkru marki.
Ég skil hinsvegar ekki lokun
deilda í sjúkrahúsum í sumar,
þegar lagburða og farlama
gamalmenni voru flutt að úti-
dyrum bama sinna, eða annarra
vandamanna, hvemig sem þar
stóð á. Þetta átti að spara einar
30 milljónir, en sami ríkiskassi,
getur eitt hátt í 100 milljónum í
styrki til pólitískra blaðasnepla,
sem eru svo borin út á auðar
stofur þessa sama fólks.
Þegar Natóríkin fundu það út
að þeirra vettvangur næði aust-
ur að Persaflóa og það vantaði
aura í herdrasl Kanans þar, stóð
ekki á Jóni Baldvin að telja
120-140 milljónir sanngjamar
greiðslur héðan í það sukk. Það
var verst að ekki skyldi vera jól
þegar kaninn fór að Persaflóa,
eins og þegar þeir réðust á Pan-
ama í myrkri nætur og drápu þar
þúsundir kvenna og bama til að
losna frá að standa við gamlan
samning unt að afhenda Pan-
amabúum skipaskurðinn. En
það styttist nú í jólin og máski
að Natódraslið hressist þá eitt-
hvað.
Ofbeit á
Reykjanesi
Af átakinu í landgræðslu, er
það merkast að við Blöndu-
virkjun sekkur í vatni, 60 fer-
kólómetrum gróins heiðarlands.
Næstmerkast er það að jeppaför
skreyta nú nánast alla staði
landsins, utan vegar, jafnt t
byggð sem óbyggð og jafnvel
hefur þurft á hjálparsveitum að
halda til að bjarga erlendum
ökumönnum á þurrt úr flóum og
graslendi í heiðum landsins.
Nafnlausir menn hafa verið
að rífast í D.V. út af ofbeit hér
á Reykjanesi í dag, þar sem örfá
hundmð kinda eru. Það hljóta
að vera menn sem eru haldnir
ofsóknarbrjálæði gegn dýrum.
Því þessar kindur breyta þar
engu. Hinsvegar er jarðrask af
mannavöldum víða til stórbaga
og stórskammar.
Þessir nafnlausu menn ættu
að fara að Höskuldarvöllum og
þar í hring og sjá hvað valdið
hefur mestu umróti. Bara hér
um Miðnesheiðina. Hinsvegar
eru nokkrar kindur í girðingu
héma við Keflavfkurveginn á
sumrum og ég sé ekki betur en
það land sé að gróa upp.
Er til uppblástur hugans,
gagnvart þeim minnimáttar?
Guðmundur Vigfússon,
Sandgerði
13
\íkurfréttir
18. okt. 1990
Sálarrannsóknarfélag
Suðurnesja auglýsir
Enski skyggnilýsingamiðillinn ZENA
DAVIS mun starfa á vegum félagsins dag-
ana 29. október til 18. nóvember. Miðar til
félagsmanna verða seldir í húsi félagsins að
Túngötu 22, Keflavík sunnudaginn 21.
október.
Stjórnin.
Hjónaklúbbur
Keflavíkur
Nokkur kort laus á fyrsta dansleik sem
verður haldinn í Stapa laugardaginn 20.
október og hefst kl.22.00. Hljómsveitin
Sambandið leikur fyrir dansi. Upplýsingar í
síma 11146 eða í Stapa í síma 12526 eftir
kl.2'1.
Auglýsing um
deiliskipulag iðnsvæðis
við Iðngarða
Deiliskipulagstillaga er til sýnis á skrifstofu
Gerðahrepps að Melbraut 3 Garði, til 20.
nóvember 1990.
Athugasemdir skulu berast til sveit-
arstjórnar fyrir 25. nóvember 1990.
Byggingafulltrúi Gerðahrepps.
Aðalfundur KFK
verður haldinn í íþróttavallarhúsinu við
Hringbraut 25. október kl.20.00.
Stjómin.
GUÐMUNDUR BJÖRGVINSSON (Bói)
Löggiltur rafvirkjameistari
Grófinni 13C - Símar 15868, 13838
Raflagnir - Viðgerðir
Hönnun - Efnissala
Endurnýjum raflagnir í eldri húsum. Fram-
kvæmum skoðun, fólki að kostnaðarlausu.