Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.10.1990, Qupperneq 15

Víkurfréttir - 18.10.1990, Qupperneq 15
________15 Víkmfréttir 18. okt. 1990 ✓ Ur ýmsum áttum Húsfyllir var á tískusýningu sem Gloria og verslunin Stórar stelpur hélt í Glaumbergi sl. fimmtudagskvöld. Auk yfirgripsmikillar tískusýningar kom erobikkflokkur frá Lík- amsrækt Onnu Leu og Bróa og tók léttar æfingar í svokölluðu tröppuerobikki, sem vinsælt er um þessar mundir. Að lokum skemmti Diddú, eða Sigrún Hjálmtýsdóttir, gestum með söng og gamanmáium. Kynnir á þessari fjölmennu samkomu var Heiðar Jónsson snyrtir. Auk tískusýningar var svokallað tröppuero- bikk kynnt gestum og sá fólk frá Önnu Leu og Bróa um þá sýningu. Ljósmyndir: hbb. tórar telpur IGLAUMBERGI Almenningur hefur mikinn áhuga á störfum lögreglunnar. Sást þaö vel á sunnudaginn, en þá var haldinn .dagur lögregl- unnar um land allt. I Keflavík og Grindavík voru lögreglustöðvamar opnar frá kl. 14-18 og á þeim tíma lögðu hundmð gesta leið sína á stöðvamar til að skoða það sem fyrir augu bar. Lögreglubílamir og bifhjólin vöktu mesta athygli ungu kyn- slóðarinnar og ekki spillti það fyrir að hafa blá blikkandi ljós og sírenuvæl. Gestum fannst einnig for- vitnilegt að skoða fangageymslur og tæki og tól sem rannsóknar- lögreglan býr yfir eða hafa verið gerð upptæk. Þá fengu allir end- urskinsmerki sem vildu og blöð og bæklinga með ýmsum upp- lýsingum. Meðfylgjandi mynd tók Hilmar Bragi á lögregludeginum í Keflavík. Sjómenn- Utgerðarmenn Til leigu fiskverkunarhús með frystiklefa og aðstöðu fyrir 6 beitingamenn. Laust til afnota strax. Upplýsingar f síma 11303. Ræstingar Oskum eftir starfsmanni til ræstingastarfa. Um er að ræða hálft starf sem unnið er á venju- legum vinnutíma. Uppl. í síma 14088. Skipasmíðastöð Njarðvíkur Föstudagskynningin í Samkaup sl. föstudag var ekki af verri endanum. Þá var viðskiptavinum boðið að kynna sér ítalskan bómullarundirfatnað og fjölmennti fólk á tvær sýningar í fata- deildinni til að berja fatnaðinn augum. Stúlkurnar sem komu fram heita Lovísa Guðmundsdóttir, Bryndís Jónsdóttir, Þórdís Sigurjónsdóttir og Oddný Stefánsdóttir. Tókst sýningin vel og var þeim vel fagnað. Ljósm.: hbb. Kynningarfundur fyrir verktaka og ráðgjafarfyrirtæki vegna byggingar álvers á Keilisnesi verður haldinn á Glóðinni í kvöld kl.20.30. Frummælendur verða: Ámi Ragnar Ámason Oddur Einarsson Andrés Svanbjömsson Sigurður St. Amalds Agnar Olsen Ingólfur Sverrisson Friðfinnur Skaftason frá Atvinnumálanefnd Keflavíkur frá Starfshópi um stóriðjumál á Suðumesjum frá Markaðsskrifstofu Iðnaðarráðuneytisins og Landsvirkjunar frá verkfræðistofunni Hönnun hf. frá Landsvirkjun frá Félagi máímiðnaðarfyrirtækja vélaverkfræðingur Starfshópur um stóriðjumál á Suðurnesjum Atvinnumálanefnd Keflavíkur Atvinnuþróunarfélag Suðurnesja

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.