Víkurfréttir - 18.10.1990, Qupperneq 19
Anna Marla
til írlands
Anna María Sveinsdóttir,
einn af burðarásum IBK liðsins
í körfuknattleik lék sinni síð-
asta leik með Keflavíkurliðinu
sl. laugardag, í bili að minnsta
kosti. Hún er á leiðinni til Ir-
lands til að leika körfuknattleik
með l.deildarliðinu Brunell frá
Cork.
„Þetta kom óvænt. Eg hafði
lýst yfir áhuga mínum að leika
erlendis við Lazlo Nemetz,
fyrrum landsliðsþjálfara. Svo
kom allt í einu telefax frá liðinu
og spurt hvort ég gæti komið.
Nú er það frágengið. Forráða-
menn liðsins munu útvega mér
einhverja vinnu eða þjálfun"
sagði Anna María Sveinsdóttir.
Irska kvennadeildin í körfu-
knattleik er mun sterkari en sú
íslenska. „Það er alltaf gaman
að reyna eitthvað nýtt. Ef mér
líkar ekki dvölin kem ég bara
heim aftur. Það verður bara að
koma í Ijós“.
Anna María Sveinsdóttir
Oruggur sigur Keflavíkurstúlkna
Keflvíkingar unnu léttan
sigur á KR í 1. deild kvenna í
körfu í Keflavík sl. laugardag.
Lokatölur urðu 79-56 eftir 34-
24 í leikhlé. ÍBK stúlkumar
náðu strax undirtökum í leikn-
um og bættu jafnt og þétt við
forskotið. Björg Hafsteinsdóttir
var stigahæst hjá ÍBK með 24
stig, Anna María Sveinsdóttir
með 23 og Guðlaug með 14
stig.
Loks sigur hjá Grindvíkingum
Grindvíkingar sigruðu Vals-
menn í úrvalsdeildinni í körfu í
Grindavík í fyrrakvöld. Loka-
tölur urðu 91-81 eftir að staðan
í hálfleik hafði verið 47-47.
Stigahæstir UMFG: Anthony
King 24, Steinþór 22, Guð-
mundur B. 20.
Stigahæstur Vals: Matthías
31, Svali Björgvins 17.
Grindvíkingar hafa rekið
Anthony King, bandaríska
leikmann sinn og er það annar
leikmaðurinn sem þeir láta
fjúka á þessu hausti.
Púttmót I Leiru á föstudagskvöld
Púttmót verða í Leiru í allan
vetur, það fyrsta á morgun,
föstudag. Glæsileg verðlaun
verða í boði fyrir sigurvegara
vetrarins. Mótin verða átta tals-
ins, fjögur fyrir áramót og fjög-
ur eftir áramót. Sex bestu mótin
telja og hlýtur stigahæsti pútt-
arinn golfferð að launum frá
umboðsskrifstofu Helga Hólm.
Fyrsta mótið verður eins og
áður segir kl.20 annað kvöld í
Golfskálanum.
UMFN - KR annað kvöld
Njarðvíkingar fá KR-inga í
heimsókn í úrvalsdeildinni
annað kvöld og hefst leikurinn
kl.20. UMFN tapaði á mánu-
dagskvöldið fyrir Haukum í
Hafnarfirði 76-74 í jöfnum og
spennandi leik.
Stórleikur í Keflavík í körfunni:
Pétur Guðmundsson í leik með ÍR í
Keflavík íyrir nokkrum árum síðan.
t.v. er Björn V. Skúlason, þáverandi
leikmaður ÍBK. Pétur verður í sviðs-
Ijósinu i fþróttahúsi Keflavíkur f
kvöld þegar ÍBK og Tindastóll eigast
við.
Pétur og ..Stólarnir
gegn ÍBK í kvöld
- „Verðum með eitthvað í pokahorninu", segir Jón Kr.
„Þetta verður erfiður leikur, það er engin
spuming. Bæði liðin eru taplaus og hafa
fullan hug á því að halda því áfram" sagði
Jón Kr. Gíslason, þjálfari og leikmaður úr-
valsdeildarliðs ÍBK í körfuknattleik í samtali
við blaðið en í kvöld mæta Tindastólsmenn
með stórjaxla í farteskinu. Þetta eru þeir
Pétur Guðmundsson, stærsti körfuknatt-
leiksmaður íslands, litlir 2.18 m á hæð, Valur
Ingimundarson, fyrrum fyrirliði og þjálfari
UMFN og Tékkinn Ivan Jonas ásamt Einari
Einarssyni, bakverði úr Kefiavík.
„Tindastóll er með fjóra góða lcikmenn,
tveir þeirra vel yfir 2 metra hvor en liðið er
ekki ósigrandi. Við ætlum að sanna það í
kvöld og munum luma á einhverju óvæntu í
pokahominu. Þetta hefur gengið vonum
framar hjá okkur og eftir þcssa góðu byrjun
getur maður ekki verið annað en nokkuð
bjartsýnn á veturinn. Úrslit leiksins í kvöld
spái ég 93-88 fyrir okkur“.