Víkurfréttir - 18.10.1990, Blaðsíða 20
Fimmtudagur 18. október 1990
Stækkun
- fylgir hverrl
tramköllun.
Sigurjón R. Vikarsson átti fertugsafmæli í síðustu viku.
Starfsmenn Víkurfrétta sendu honum „kaldar“ kveðjur
í morgunsárið, en þeim fylgdi auðvitað hlýhugur með,
eins og ofangreindar myndir Hilmars Braga bera með
sér.
TRE-X ísókn:
Fyrirtækið gert að
almenningshlutafélagi
Síðari hluta nóvember verður
stofnað almenningshlutafélag
um starfsemi Trésmiðju
Þorvaldar Olafssonar h.f., eða
Tré-X eins og flestir kannast við
fyrirtækið. Tekur al-
menningshlutafélagið síðan við
rekstrinum 1. janúar 1991.
Hefur starfsmönnum fyrir-
tækisins, Keflavíkurbæ og
öðrum áhugaaðilum verið gefin
kostur á að kaupa hlutafé. Hafa
bæjaryfirvöld í Keflavík þegar
samþykkt að kaupa 5 milljóna
króna hlut í fyrirtækinu.
Að sögn Þorvaldar Ólafs-
sonar framkvæmdarstjóra fyrir-
tækisins var hafinn undir-
búningur að þessari breytingu á
fyrirtækinu fyrir um ári síðan,
og hafa verið gerðar áætlanir
um rekstur fyrirtækisins til
næstu fjögra ára. Er gert ráð
fyrir að umsvif fyrirtækisins
tvöfaldist á þeim tíma.
Það er álit þeirra sem til
þekkja að nú sé rétti tíminn til
breytinga. Stendur til að auka
hlutafé fyrirtækisins um 50
milljónir og sagðist Þorvaldur
vera bjartsýnn á að það tækist
og yrðu hluthafar að mestu
héðan af Suðumesjum. „þetta
er nýtt þrep í sögu fyrirtækisins,
fyrirtækið hefur starfað í 18 ár
og vaxið í ákveðnum þrepum úr
bílskúrsfyrirtæki í öflugasta
fyrirtæki landsins í trésmíði,
bæði markaðslega og tæknilega
og nú fjárhagslega. Það er ekki
síst að þakka starfsfólki fyrir-
tækisins, sem hefur tekið þátt í
vexti fyrirtækisins að fullum
áhuga", sagi Þorvaldur.
Framundan eru mörg stór-
verkefni bæði innanlands sem
utanlands. Eins og kunnugt er af
fyrri fréttum, hér í blaðinu hefur
fyrirtækið gert stóran sölu-
samning við Frakkland og fer
fyrsti gámurinn frá Tré-x nú um
mánaðarmótin. Að auki er
fyrirtækið að taka að sér fram-
leiðslu fyrir MAT milliveggi.
en Mát var einn af
aðalkeppinautum fyrirtækisins
í framleiðslu á milliveggjum.
Eftir það verður Tré-x nánast
einir um framleiðslu á vegg-
plötum hérlendis.
12 milljónir til
atvinnumála
Keflavíkurbær hefur selt hlutabréf sín í
Olíufélaginu hf. og fengust fyrir bréfin I2.5
milljónir króna.
Að sögn Ellerts Eiríkssonar bæjarstjóra í
Keflavík hefur verið ákveðið að nota þá
upphæð alla til atvinnumála. Verður 5 mill-
jónum varið til hlutabréfakaupa í Eldey hf.,
5 milljónum til kaupa á hlutabréfum í Tré-X
og 2 ntilljónir fær atvinnumálanefnd Kefla-
víkur til ráðstöfunar.
Húsnæðisnefnd Keflavíkur:
Sigurbjörg Gísla-
dóttir ráðin
Bæjarstjóm Keflavíkur hefur samþykkt að
ráða Sigurbjörgu Gísladóttur, Lyngholti 19,
Keflavík í stöðu starfsmanns Húsnæðis-
nefndar. Auk hennar sóttu átta aðilar um
stöðuna. Óskuðu þrír nafnleyndar og einn
hefurdregið umsókn sína til baka.
Hinir eru Indriði Jóhannsson, Jóhannes
Erlendsson, Jóhanna Eyfjörð og Elías
Guðmundsson.
Óvissa um sameiginlegt safnahús:
Ætla Keflvíkingar að rifta samkomulagi við Njarðvíkinga?
„Stjóm Bæjar- og héraðs-
bókasafns Keflavíkur harmar
að bæjarstjóm Keflavíkur
hefur ekki enn tekið ákvörðun
vegna húsnæðismála safnsins
og að enginn fundur hafi verið
haldinn með bæjarstjóm
Njarðvíkur vegna sameigin-
legrar byggingar". Tilefni
þessarar samþykktar sem gerð
var í stjóminni 10. október s.l.
er að Keflvíkingar hafa ekki
tekið sig til eins og bæjar-
stjóm Njarðvíkur og sýnt fram
á vilja til byggingar sameigin-
legs safnahúss Keflavíkinga og
Njarðvíkinga á Samkaups-
svæðinu.
Bæjarstjóm Njarðvíkur hefur
sýnt fullan vilja til samstarfs
um málið og bent á að á næsta
ári gæti legið fyrir fjárveiting til
verkefnisins. En húsnæði það
sem bókasafnið hefur nú til
húsa er svo þröngt að þegar
höfunda- og bókakynning fer
fram þurfa viðstaddir að sitja á
gólfinu. Telur stjómin því
ógjömingur að sinna þeim
verkefnum sem vera ber.
Forsaga samþykktar þessarar
er að síðasta bæjarstjóm skipaði
þriggja manna nefnd til að
skoða húsnæðismál safnsins.
Síðan tók til starfa sameiginleg
nefnd Keflavíkinga og
Njarðvíkinga um byggingu
safnahúss. Sú nefnd skilaði áliti
í október s.l. þar sem lagt var til
að byggt yrði og rekið sam-
eiginlegt safnahúss á Sam-
kaupssvæðinu sem yrði tæpir
3000 fermetrar að stærð og
yrði byggt í áföngum. Lagði
nefndin til að I. áfangi yrði
tilbúinn 1992 og að nú þegar
yrði skipuð bygginganefnd.
Sem fyrr segir hefur ekki
staðið á Njarðvíkingunt í
málinu, en það hefur gert
hvað varðar bæjarstjóm
Keflavíkur. Á síðu 12 í
blaðinu í dag gemm við nán-
ari grein fyrir málinu í viðtali
við Hilmar Jónsson bóka-
vörð.
fircstonc
Vetrarhjólbarðar
NÝIR OG SÓLAÐIR
GREIÐSLUSKILMÁLAR
Hjólbarðaverkstæðið
Grófin 8 - 230 Keflavík - Simi 14650
BILAKRINGLAN
CRÓFIH 7og8
--- KEFIAVÍK --
MUNDII
Sigurjón hefur alltaf
viljaö mikinn ís meö
romminu.