Morgunblaðið - 07.11.2015, Síða 23

Morgunblaðið - 07.11.2015, Síða 23
FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2015 Hönnun fyrir lífið FyrstaMiele ryksugan var framleidd árið 1927. Síðan þá hafa 50.000.000Miele ryksugur verið framleiddar sember vott umvelgengni þeirra. Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is Lengri ending á vélum Fullkominn hjólabúnaður með 360° hreyfanleika Allt að 99,9%filtrun með notkun HEPA filters P P P Laugavegi 7, 101 Reykjavík - Sími: 551-3033 Flo ttir í fötu m Vönduðu þýsku kjólfötin komin aftur Verð: 76.900,- Frímúrarar – Oddfellowar Hagnaður Sjóvár á fyrstu níu mán- uðum ársins var 2,7 milljarðar króna, sem er sex sinnum meiri hagnaður en á sama tíma í fyrra þegar hann var 415 milljónir króna. Hagnaður á þriðja ársfjórðungi var 1,3 milljarðar króna í samanburði við 209 milljónir króna á sama ársfjórðungi í fyrra. Heildartekjur eftir fyrstu níu mánuðina eru 13,5 milljarðar króna sem er 31% meira en á sama tíma í fyrra. Tekjur ársfjórðungsins voru 4,9 milljarðar króna, 29% meira en í fyrra. Af tekjunum voru eigin iðgjöld 3,4 milljarðar króna sem er 4% meira en á sama tíma í fyrra og fjárfest- ingatekjur voru 1,4 milljarðar króna sem er nærri þrisvar sinnum meira en í fyrra. Afkoma af vátryggingastarfsemi á ársfjórðungnum var 406 milljónir króna og af fjárfestingarstarfsemi 1,1 milljarður. Á fjórðungnum jók fé- lagið mest við eign sína í skráðum hlutabréfum og óverðtryggðum rík- isskuldabréfum. Samsett hlutfall samstæðunnar var 95,9% á þriðja ársfjórðungi í samanburði við 101,3% á sama tíma í fyrra. Fjárfestingareignir án söfnunar- líftrygginga voru 30,4 milljarðar króna í lok september. Eigið fé félagsins var 16,3 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall 36,6%. Handbært fé frá rekstri í lok tímabils voru 996 milljónir í samanburði við 2,8 millj- arða króna í fyrra. Hermann Björnsson forstjóri seg- ir góðan hagnað á ársfjórðungnum mega rekja til góðrar afkomu af fjár- festingarstarfsemi, sem hafi verið mun betri en að jafnaði megi vænta „Afkoma af einstökum vátrygginga- greinum er mjög mismunandi. Sum- ar greinar hafa komið fremur illa út vegna óveðurstjóna liðinn vetur og bifreiðatryggingar halda áfram að skila neikvæðri afkomu, en þegar hefur verið gripið til ráðstafana til að bæta afkomu þeirra,“ segir Her- mann. Hagnaður Sjóvár sexfalt meiri en á síðasta ári  1,4 milljarða fjárfestingatekjur á þriðja ársfjórðungi Morgunblaðið/Golli Tryggingar Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár, segir afkomuna á þriðja ársfjórðungi afar góða og ræður fjárfestingarstarfsemin þar mestu. Farið hefur ver- ið fram á að beitt verði margfeldis- kosningu til kosningar nýrr- ar stjórnar VÍS. Kosið verður í nýja stjórn á hluthafafundi fé- lagsins sem fer fram á þriðju- daginn í næstu viku. Til aðal- stjórnar bjóða sig fram Bjarni Brynjólfsson, Guðmundur Þórð- arson, Helga Jónsdóttir, Herdís Fjeldsted, Jostein Sørvall, Jóhann Halldórsson og Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir. Til varastjórnar bjóða sig fram Andri Gunnarsson, Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir og Davíð Harð- arson. Í samþykktum félagsins kemur fram að í stjórn skuli hlutfall hvors kyns aldrei vera lægra en 40%. Sjö í fram- boði hjá VÍS Stjórn Kosið verð- ur á þriðjudaginn. Icelandair Group flutti 19% fleiri farþega í október síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. Farþegafjöld- inn í mánuðinum var 254 þúsund og hafa aldrei verið fluttir fleiri farþeg- ar í október, auk þess sem félagið hefur aldrei haft hærri sætanýtingu í október en hún var 83,6%. Til sam- anburðar var sætanýting október- mánaðar í fyrra 81,4%. Fram- boðsaukning á milli ára var 16%. Farþegum fjölgaði mest á ferða- mannamarkaðinum til Íslands eða um 31,8%. Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru um 25 þúsund í október og fjölgaði um 3% á milli ára. Framboð félagsins í innanlands- og Grænlandsflugi var aukið um 1% frá október í fyrra. Sætanýting á þessum leiðum nam 74,9% og jókst um 1,6 prósentustig á milli ára. Seld- um blokktímum í leiguflugi fjölgaði um 28% á milli ára og fraktflutn- ingar jukust um 4% frá því á síðasta ári. Seldar gistinætur á hótelum fé- lagsins í október voru 17.443 sem er 5% meira en á sama tíma í fyrra. Herbergjanýting á hótelunum var 72,3% sem er sama nýting og í fyrra. Morgunblaðið/Skapti Flug Met var slegið í október þegar farþegar Icelandair voru 254 þúsund. Aldrei fleiri farþegar hjá Icelandair í október

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.