Morgunblaðið - 07.11.2015, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 07.11.2015, Blaðsíða 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2015 www.thor.is EPSON EXPRESSION HOME XP-332 Einfaldur og góður prentari og skanni fyrir skólafólk. EPSONWORKFORCEWF5620 20 ppm* EPSONWorkForce Pro eru fjölnota skrifstofuprentarar (fax, skanni, ljósritun, prentun og tölvupóstur). Nettengdur/þráðlaus prentari með þægilegan snertiskjá. Prentar allt að 20 síður á mínútur og getur prentað báðummegin á blaðið. Auðvelt að skipta um blek. Hægt að prenta á umslög og þykkari pappír. EPSONWorkForce Pro er ný kynslóð umhverfisvænna bleksprautuprentara sem leysir af hólmi gömlu laserprentarana. 49.30 0 EPS ONW orkF orce Pro WF- 562 0DW F ,- 13.00 0 EPS ON E xpre ssio n Hom e XP -332 ,- Þráðlaus fjölnotaprentari (skanni, ljósritun og prentun). Hentar vel til að prenta allt frá texta yfir í góða ljósmynd. Beinn stuðningur við iPhone/iPad og Android. Hægt er að fá APP til að prenta og skanna með iOS og Android tækjum. Allar helstu skipanir á skjá. Hagkvæmur í rekstri. TÖLVUVERSLUN ÁRMÚLA 11 - SÍMI 568-1581 ÞÓR HF - UMBOÐSAÐILI EPSON Á ÍSLANDI Í MEIRA EN 30 ÁR Einnig til hvítur (XP-335) Stundum er þráttað um hvort fornsögurnar séu á skiljanlegu máli fyrirnútímafólk. Þau sem eru vön löngum samfelldum textum geta lesiðgömlu sögurnar vandræðalítið, notið stílsins og þótt gaman að forn-eskjunni en það er ekki spennan hvort Njáll brenni inni sem rekur þau áfram, né hvort Hall- gerður láni lokkinn þegar líf Gunnars liggur við. Ekki frekar en við óttumst um af- drif James Bonds. Galdur sagnanna felst í frásagn- arlistinni, hvernig þær eru ofnar saman og sagðar, orð fyrir orð; í margslungnum persónum sem lifna við lest- urinn og verða okkur sam- ferða á lífsins vegi. Stöku sinnum rekumst við á hugtök sem eru ekki hluti af tungu- taki síðari alda og leitum þá eftir skýringum neðan- eða aftanmáls, í sérstökum skýr- ingarheftum eða orðabókum. Engan þarf að undra þótt heimur og orðaforði íslenskra fornrita sé fram- andi ungum lesendum sem hafa lítt þjálfast við bóklestur nema á bók- menntum sem eru sérstaklega skrifaðar fyrir ungmenni vorra daga. Því er vandmeðfarið að kynna sögur fyrri tíðar nýjum kynslóðum. Ætla verður að ís- lenskar miðaldasögur séu ekki ofarlega á forgangs- leslista snjallsímabarna, og varla eru þær fyrirfram áhugaverðar fyrir ungt fólk. Langt fram eftir síðustu öld voru börn leidd inn í sagnaheim þjóðveldisaldar í gegnum Íslandssögukennslu. Sá alltumlykjandi stjórnmálamaður Jónas frá Hriflu skrifaði áhrifamestu barnakennslubók aldarinnar á þeim árum þegar ekki var efast um sannleiksgildið og fornbókmenntir og sagnfræði runnu sam- an. Sagnalist Jónasar og hrifning hans á sögunum kveikti þá sjálfkrafa áhuga á efninu, líkt og sýnishorn úr kvikmyndum eiga að gera, án þess að nemend- urnir væru nógu þroskaðir til að ráða við frumtextana. Þannig kynntist kyn- slóð fram af kynslóð aðalpersónum og atburðum Íslendingasagna og Sturl- ungu og ekki þurfti að lesa fornsögurnar fyrr en seinna, og þá til bókmenntalegrar ánægju, til að vita um hvað þær fjölluðu. Þessari ágætu kennslubók var eðlilega skipt út þegar sagnfræðingar voru löngu hættir að trúa sögunum. En í staðinn fyrir að setja þá nýja kápu á bók Jónasar og kalla hana Kennslubók í Íslendingasögum og Sturlungu – með uppfærslum sem réttu við kynja- og stéttahlutföll eins og nú tíðkast – var hætt að beita þessari árangursríku kynningu fyrir byrjendur í skólakerfinu. Í staðinn hefur verið reynt að fleyta börnum af stað í fornsagnalestri með því að leggja fyrir þau einfaldaðar endursagnir í fullri lengd á heilu sögunum (eins og gert er með Laxdælu sem verður fyrir vikið ekki áhugaverð), eða byrja of snemma á of erfiðum textum án þess að efni þeirra sé þegar orðið spennandi eftir að hafa kynnst helstu persónum og aðstæðum þeirra. Án slíkra örvandi „sýnishorna úr næstu mynd“ verður tungutak hinna fornu frá- sagna, þeirra helsta djásn, að óþarflega torsóttri hindrun fyrir óvana les- endur. Fornsögur fyrir byrjendur Tungutak Gísli Sigurðsson gislisi@hi.is Sagnaheimur Ætla verður að íslenskar mið- aldasögur séu ekki ofarlega á forgangs- leslista snjallsímabarna. Teikning/Eoghan O’Reilly Ífyrradag, fimmtudag, birtist í ViðskiptaMogganumfróðlegt samtal, sem Sigurður Nordal, umsjón-armaður blaðsins, hafði átt við Bjarna Benedikts-son fjármálaráðherra um stöðuna á fjármálamark- aðnum, stöðu slitabúanna og hugsanlega sölu banka í ríkiseign. Í þessu viðtal spurði Sigurður eftirfarandi spurningar: „Er eitthvað í framkvæmd einkavæðingar bankanna fyrir hrun, sem við getum dregið lærdóm af við sölu bank- anna núna?“ Og Bjarni svarar: „Tvímælalaust. Í fyrsta lagi tel ég að það hafi verið óþarfi að byggja söluáætlun banka á því, að það þurfi að vera mjög stór kjölfestufjárfestir. Í fámennu samfélagi eins og okkar kann þvert á móti að vera mikill ávinningur af því að kerfislega mikilvægir bankar séu í dreifðri eign- araðild. Við eigum tvímælalaust að stefna að dreifðu eign- arhaldi á bönkunum.“ Þessi orðaskipti þeirra Sigurðar og Bjarna gefa tilefni til að rifja upp litla en fróðlega sögu. Á árinu 1997 voru þrír sjóðir, Fiskveiðasjóður, Iðn- lánasjóður og Iðnþróunarsjóður, sameinaðir í Fjárfest- ingarbanka atvinnulífsins hf., FBA. Á svipuðum tíma voru Landsbanki Íslands og Búnaðarbanki Íslands gerðir að hlutafélögum. Síðan ákvað þáverandi ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks að selja FBA en í dreifðri eignaraðild. Hinn 8. ágúst 1998, birtist hér í Morg- unblaðinu viðtal við þáverandi forsætis- ráðherra, Davíð Oddsson, og þar sagði: „Davíð sagði, að þó nú sé í tízku að tala um kjölfestufjárfesta telji hann að í bankastofnun geti alveg dugað að stærstu eignaraðilarnir, sem komi til með að hafa leiðbeinandi forystu um reksturinn, eigi eignarhluti á bilinu 3% til 8% til dæmis. Hann telji hins vegar ekki æskilegt að einn aðili eða skyldir aðilar ráði 30-40% eignarhlut í bankastofnun…Þó það hafi ekki verið rætt í ríkisstjórn telji hann það koma fyllilega til álita að tryggja það með lagasetningu að eignarhald í bönkunum, þegar ríkið sleppi af þeim hendinni, verði dreift.“ Þetta var stefnumarkandi samtal við þáverandi for- sætisráðherra og tveimur mánuðum síðar ákvað rík- isstjórnin að selja 49% hlut í FBA. Almenningi yrði boðið að skrá sig fyrir hlutum að hámarki þremur milljónum króna. Hvað gerðist þá? Og þar er komið að kjarnanum í lyk- ilspurningu Sigurðar Nordals til Bjarna Benediktssonar um hvað mætti læra af einkavæðingu bankanna fyrir hrun. Bankar og fjármálafyrirtæki hófu svokallaða kenni- tölusöfnun. Þessir aðilar keyptu hluti í umboði ein- staklinga á grundvelli samninga um að viðkomandi ein- staklingar seldu þeim hlutina. Fjórum mánuðum eftir hið stefnumarkandi viðtal við forsætisráðherra landsins hér í Morgunblaðinu var sú stefnumörkun ríkisstjórnar, sem byggðist á lýðræðislegu umboði kjósenda til þingmanna stjórnarflokkanna brotin á bak aftur með valdi peninga. Hvað gerðist svo? Rétt fyrir jól sama ár (1998) skýrði Morgunblaðið frá því að Viðskiptastofa SPRON hefði fyrir hönd sex sparisjóða og Sparisjóðabankans keypt um 9% hlut í FBA af Bún- aðarbanka Íslands. Kaupþing, sem þá var í eigu sparisjóð- anna átti fyrir önnur 9% og réð að auki yfir 5% fyrir hönd annarra hluthafa. Sparisjóðasamsteypan hafði á skömm- um tíma eignast um fjórðungs hlut í FBA, sem ríkisstjórn landsins hafði ákveðið að skyldi verða í dreifðri eignarað- ild. Þessum hlut var komið fyrir í hlutafélagi í Lúxemborg, Scandinavian Holdings SA. Hvað gerðist svo? Hinn 4. ágúst 1999 var skýrt frá því hér í blaðinu, að Scandinavian Holdings hefði selt hlut sinn í FBA, sem nam 22,1% til eignarhaldsfélags, sem bar heitið Orca SA og var líka skráð í Lúxemborg. Það félag keypti einnig hlut af öðrum og var samtals komið með 26,5% hlut í FBA. Ekki var gefið upp hverjir væru eigendur Orca SA. Hvað sagði Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, þegar hér var komið sögu? Í samtali við RÚV tveimur dög- um síðar sagði hann: „Það má vel vera að staðan sé sú, að sú aðferð okkar að reyna að koma hlutabréfunum út með dreifðum hætti haldi ekki til lengdar og þá þarf kannski að kanna, hvort aðrar lagaforsendur þurfi að vera fyrir hendi, sem tryggi hreinlega að eignaraðild að fjármálakerfinu í þessu landi sé dreifð.“ Framhaldið af sögu FBA varð svo, að bankinn samein- aðist Íslandsbanka um aldamótin og varð eins konar stökk- bretti fyrir helztu eigendur FBA til þess að ná yfirráðum yfir Íslandsbanka næstu árin á eftir. Hér liggur fyrir skýrt dæmi um það hvað hægt er að læra af því, sem gerðist í einkavæðingu bankanna fyrir hrun. Það er ekki hægt að einkavæða ríkisbanka á ný í góðri trú um að dreifð eignaraðild, sem stefnt er að í upphafi, haldi. Það verður hreinlega að tryggja það með löggjöf. Bjarni Benediktsson hefur alveg rétta sýn á þessa stöðu, eins og hún kemur fram í samtali þeirra Sigurðar Nordals. En það er alveg ljóst að áður en ráðizt verður í nýja einka- væðingu bankanna verður Alþingi að ganga tryggilega frá því með löggjöf að sagan verði ekki endurtekin. Í samtalinu víkur Bjarni líka að því hvernig hinir einka- væddu bankar voru notaðir til að breyta eignarhaldi á stórum fyrirtækjum í landinu. Sá þáttur málsins er sér- stakt umhugsunarefni. Það er líka vert fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn- arflokk að huga að því að í ljósi fenginnar reynslu skiptir máli fyrir þá flokka hvernig haldið verður á þessum málum nú. Ævintýrið um FBA ild Þegar vald peninganna braut niður stefnumörk- un lýðræðislega kjör- innar ríkisstjórnar Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Árin 1954-1956 starfaði DonaldNuechterlein í upplýsingaþjón- ustu Bandaríkjanna á Íslandi. Seinna skrifaði hann doktorsritgerð um íslensk utanríkismál, Ísland: Tregur bandamaður (Iceland, Re- luctant Ally), 1961. En 1997 gaf Nu- echterlein einnig út heimildaskáld- sögu, þar sem þrír Íslendingar koma fyrir undir dulnefnum, Kalda- stríðsslóðir (A Cold War Odyssey). Kallar Nuechterlein þar sjálfan sig David Bruening. Ekki er sjálfgefið, hver einn Ís- lendingurinn í sögunni var, Jon Eli- asson, ritstjóri Tímans, því að þeir voru tveir á þessum tíma, Haukur Snorrason og Þórarinn Þórarinsson. Eftir lýsingunni að dæma hefur þetta þó frekar verið Haukur. Voru ritstjórinn og upplýsingafulltrúinn góðkunningjar, þótt Tíminn gagn- rýndi óspart umsvif Bandaríkjahers á Íslandi. Auðveldara er að sjá, hverjum Nuechterlein gefur dulnefnið Jon Magnusson, en sá skyldi taka viðtal við bandaríska rithöfundinn William Faulkner, sem kom hingað á vegum upplýsingaþjónustunnar. Hann var Matthías Johannessen, og birtist viðtal hans við Faulkner í Morg- unblaðinu 23. október 1955. „Er ekki betra að hafa bandarískan her hér í nafni frelsisins en rússneskan í nafni einræðis og ofbeldis, eins og á sér til dæmis stað í Eystrasaltslönd- unum?“ spurði Faulkner. Þriðji Íslendingurinn er líka auð- þekkjanlegur, Helgi Jonasson. Hann var Gylfi Þ. Gíslason. Hann sótti eitt sinn boð Nuechterlein- hjónanna, og sagðist kona gestgjaf- ans hafa áhuga á skáldverkum Lax- ness. Nokkrum dögum síðar var Gylfi mættur heim til þeirra með enska þýðingu á Sölku Völku. Þegar sendiráðsmönnum barst til eyrna, að Alþýðuflokkurinn ætlaði að ganga til samstarfs við Framsókn- arflokkinn og reka varnarliðið úr landi, var Nuechterlein beðinn að hafa samband við Gylfa til að kom- ast að hinu sanna. Gylfi vildi ekki sjást með honum á veitingastað og bauð honum þess í stað heim til sín. Þar staðfesti hann, að þessi orðróm- ur væri réttur. Nú væru friðartímar og ekki lengur þörf á bandaríska hernum. Gylfi sýndi gesti sínum hróðugur uppdrátt af Íslandi og benti á þau kjördæmi, þar sem sam- eiginlegur frambjóðandi Framsókn- arflokks og Alþýðuflokks gæti fellt þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Furðuðu Bandaríkjamenn sig á því, hversu opinskár Gylfi var. Muccio sendiherra (Monroe í sögunni) hreytti út úr sér við Nuechterlein: „Hann vill hrekja okkur burt á þeirri fáránlegu forsendu, að Ísland þurfi ekki lengur neinar varnir.“ Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Hverjir leynast á bak við nöfnin?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.