Morgunblaðið - 07.11.2015, Page 52
LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 311. DAGUR ÁRSINS 2015
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 838 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Sprenging heyrðist í Stokkhólmi
2. Enginn starfsmaður í búðinni
3. Trjábolir þeyttust út um allt
4. Hvaðan er hún Nína litla?
Björk Vulnicura strings nefnist ný-
útkomin plata sem hefur að geyma
strengjaútgáfu af síðustu plötu
Bjarkar, Vulnicura. Tónlistin á upp-
runalegu plötunni samanstendur af
elektrónískum töktum, áhrifamiklum
laglínum og strengjaútsetningum
eftir Björk sem hafa verið fluttar á
tónleikum með 15 manna strengja-
sveit en á hinni nýju og órafmögnuðu
útgáfu plötunnar eru aðeins strengir,
söngur og einleikur Unu Sveinbjarn-
ardóttur fiðluleikara.
Björk notar eina Viola Organista-
hljóðfærið í heiminum á plötunni, að
því er fram kemur í tilkynningu um
útgáfuna, en það hljóðfæri var upp-
runalega hannað af Leonardo da
Vinci og smíðað eftir hans lífstíð.
Vulnicura hefur hlotið mikið lof
gagnrýnenda fjölmiðla á borð við
Evening Standard, Guardian, Tele-
graph, The Quietus, Clash, NME og
Pitchfork.
Strengjaútgáfa af
Vulnicura gefin út
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 10-18 m/s, hvassast suðaustantil. Víða rigning eða
slydda með köflum, en skúrir austantil. Hægt kólnandi veður. Hiti 1 til 7 stig í kvöld.
Á sunnudag Suðvestlæg átt, 3-8 m/s, en 8-13 suðaustantil. Víða skúrir og él til fjalla, en
léttir til norðaustanlands. Hiti 1 til 6 stig, en frystir allvíða um kvöldið.
Á mánudag Hægviðri, en austan 5-8 m/s um kvöldið. Skýjað með köflum og úrkomulít-
ið, en skúrir eða él syðst um kvöldið. Víða vægt fost.
Hrafnhildur Lúthersdóttir og Eygló
Ósk Gústafsdóttir hafa hlotið þann
heiður, fyrstar Íslendinga, að vera
valdar í úrvalslið Evrópu í sundi sem
mætir liði Bandaríkjanna í einvígi í
desember. Mótinu má líkja við Ryder-
bikarinn í golfi, og fer það fram ann-
að hvert ár. Sautján konur og sextán
karlar skipa lið Evrópu, og á Ísland
því 6% evrópsku keppendanna. » 1
Tvær af sautján í úrvals-
liði Evrópu frá Íslandi
Nýliðar Hattar tóku á móti
sjálfum Íslandsmeisturum
KR á Egilsstöðum í gær-
kvöld, í Dominosdeild karla í
körfuknattleik, en höfðu ekki
roð við þeim. Höttur skoraði
aðeins 33 stig í fyrstu þrem-
ur leikhlutunum og tapaði að
lokum með 35 stiga mun,
85:50. Haukar unnu hina ný-
liðana, FSu, 104:88 og Þór
Þorlákshöfn skellti ÍR,
107:64. »2
Meistararnir fóru
illa með nýliðana
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Karlakórinn Hreimur fagnar fjöru-
tíu ára afmæli sínu í ár. Eftir að
nokkra karlakóra um Þingeyjarsveit
dagaði uppi ákváðu góðir menn að
sameina karlmannsraddir sveit-
arinnar og stofnuðu Hreim. Stein-
þór Þráinsson er kórstjóri en hann
stýrði kórnum í Skjólbrekku í Mý-
vatnssveit á miðvikudag.
Steinþór tók við tónsprotanum
fyrir fjórum árum. „Ég gekk í kór-
inn fyrir um átta árum og var kosinn
formaður. Þá gat ég ráðið mig sem
stjórnanda,“ segir Steinþór og hlær
dátt. „Sá sem var stjórnandi var að
flytja suður og ég hangi enn. Það er
allavega ekki búið að reka mig,“
segir hann. Um 50 karlar eru í kórn-
um alls staðar að úr Þingeyjarsveit.
Steinþór og þrír aðrir koma frá Ak-
ureyri en æft er á mánudögum og
miðvikudögum. „Síðan ég kom í kór-
inn hafa um tíu nýir komið. Ég er
með tvo unga frændur mína með
mér í bíl og það eru nokkrir ungir
frambærilegir söngvarar í kórnum.“
Ávanabindandi að vera í kór
Hann segir félagsskapinn vera
forsendu þess að vera í kór. „Þetta
er líka ávanabindandi. Þetta er and-
skoti skemmtilegur hópur sem er
líka góður að syngja. Það er gaman
að láta þá taka lagið.“
Nokkrir þekktir æringjar og hag-
yrðingar úr sýslunni eru þarna sam-
ankomnir og viðurkennir Steinþór
að töluverð vitleysa sé oft sögð á æf-
ingum. „Það er ekki alveg
laust við það. Það er merki-
legt að maður skuli koma ein-
hverju í verk,“ segir hann.
Eftir viku eru tónleikar
með Ljótu hálfvitunum en
þetta er í annað sinn sem
Hreimur syngur með
hljómsveitinni. „Þar
syngjum við klassískt
karlakórsprógramm fyrir hlé, þeir
hafa sína dagskrá á miðjum tónleik-
unum eins og þeim einum er lagið,
og svo syngjum við allir saman eftir
hlé.
Á barmi heimsfrægðar
Hreimur hefur gefið út fjölmarga
geisladiska og sungið víða hér heima
og erlendis. Í byrjun mánaðarins
birtust kórmeðlimir svo á sundföt-
unum í Baðlóni Mývetninga í ferða-
málaþættinum Faut Pas Rever sem
sýndur var í franska sjónvarpinu.
„Þátturinn var um Ísland og við tók-
um lagið Ó, mín flaskan fríða. Við
teljum okkur vera að nálgast heims-
frægðina,“ segir stjórnandinn glað-
ur og kátur með afmælið og radd-
irnar.
Gleðitónninn í Þingeyjarsveit
Karlakórinn
Hreimur fagnar
40 ára afmæli
Ljósmynd/ Birkir Fanndal
Brosandi kátir Karlakórinn Hreimur hélt boðstónleika í Skjólbrekku á miðvikudagskvöldið fyrir Mývetninga, í til-
efni 40 ára afmælis kórsins. Steinþór stendur fremst og meðleikarinn Steinunn Halldórsdóttir við píanóið.
Snæbjörn Ragnarsson, einn af
meðlimum Ljótu hálfvitanna og
rithöfundur, segir að stuðið sé
mikið þegar hljómsveitin spilar
með karlakórnum. Meðlimir
hljómsveitarinnar eru átta og er
sviðið því ansi þéttskipað.
Nóg er að gera hjá Snæ-
birni því hann er nýbú-
inn að gefa út bókina
Geril auk þess sem ný
plata Ljótu hálfvit-
anna, Hrísey, kom út á fimmtu-
dag og verður fylgt eftir með tón-
leikum víða um land.
„Næsta vika hjá mér fer í hálf-
vita-æfingar af óvenjulegri teg-
und því hinn 14. höldum við
tvenna tónleika í Hofi með karla-
kórnum. Við gerðum það í fyrra í
Ýdölum og í Háskólabíói og það
gekk svo djöfull vel að við hent-
um í gigg núna. Það er mjög gam-
an.“
Fjör að spila með Hreimi
SNÆBJÖRN RAGNARSSON ÚR LJÓTU HÁLFVITUNUM
Snæbjörn Ragnarsson
Íslandsdagar standa nú yfir í
Pushkin-ríkislistasafninu í Moskvu og
lýkur 27. nóvember. Íslandsdagar eru
samstarfsverkefni Pushkin, Lista-
safns Íslands, menntamálaráðuneyt-
isins og sendiráðs Íslands í Moskvu.
Á dagskrá Íslandsdaga er m.a. sýn-
ing á verkum eftir Ásgrím Jónsson,
Gunnlaug Scheving og Kjarval og
tónleikar Nataliu Halldórsdóttur
messósópran og Önnu
Guðnýjar Guðmunds-
dóttur píanóleikara í
safninu, sendi-
herrabústaðnum og í
tónlistarskólanum
Gnessin.
Íslandsdagar haldnir
í Pushkin í Moskvu
„Á endanum valdi ég Val og er mjög
sátt við það og taldi þetta bestu
ákvörðunina fyrir mig og fjölskyldu
mína. Ég fór ekki í besta liðið en ég er
tilbúin að fara í þann slag með félag-
inu að koma okkur aftur almennilega
á kortið. Ég er í toppstandi, líður vel
og ætla að bæta mig og hjálpa sam-
herjum mínum,“ segir Margrét Lára
Viðarsdóttir sem
er gengin til
liðs við Val eft-
ir sjö ár í at-
vinnu-
mennsku.
» 1
Margrét Lára er
komin aftur til Vals