Víkurfréttir


Víkurfréttir - 28.11.1991, Qupperneq 13

Víkurfréttir - 28.11.1991, Qupperneq 13
12 Viðtalið Fréttin uin skjót við- brögð slökkviliðs Brunavarna Suður- nesja er eldboð barst frá Hornbjargi í síðasta tölu- blaði, hefur vakið athygli. Pess vegna lögðum við leið okkar upp á slökkvistöð og fengum Jóhannes Sigurðsson, vara- slökkviliðsstjóra til að greina frá þeirri |>jónustu sem stöðin veitir í þessum efnum. Sagði Jóhannes að á slökkvi- stöðinni væri búið að setja upp móttökubúnað er tekur á móti boðunt frá viðvörunarkerí'unt. Væri höfuðáherslan lögð á tvennt. I fyrsta lagi væri þeir seni slökkvilið með móttöku á brunaviðvörunarkerfum sem væri fyrirbyggjandi aðgerð varðandi eldsvoða og í öðru lagi höfðu þeir með höndunt sjúkra- flutninga og því gætu þeir brugðist l'yrr við ef sjúklingar eða aldraðir köliuðu til aðstoðar með neyðarhnappi. • Á varðstofu slökkviliðs Brunavarna Suðurnesja er sól- arhringsvakt þar sem fylgst er vel með þeim brunaviðvörun- arkerfum og neyðarhnöppum sem tengdir eru stöðinni. Hér er það Sigurgísli Ketilsson sein fylgist með boði frá einu kerf- anna. Að neðan er Jóhannes Sigurðsson, varaslökkviliðs- stjóri. Ljósm.: epj. Neyöarhnappar og brunaviövörunarkerfi beintengd Brunavörnum Suöurnesja: SKJOT VIÐBROGÐ OG AUKIÐ ORYGGI Að auki hafa þeir nú tök á að vakta aðra þætti s.s. frystikistur í verslunum, laxeldisstöðvar, innbrotskerfi og vatnsnema, svo eitthvað sér nefnt. En hvers vegna eruð þið að þessu, Jó- hannes? „Fyrst og fremst eiu þetla fyrirbyggjandi aðgerðir, t.d. getum við komið í veg fyrir stórbruna, með því að fá vit- neskju strax, en frarn að þessu hefur það allt of oft brunnið við að slökkviliöið fær vitnesku unt eldsvoða. þegar hann væri kont- inn á það stig að erfitt er að af- stýra stórtjóni. Varðandi neyð- arhnappinn þá höfum við orðiö varir við þörfina hjá öldruðum og sjúkum, sent búa oft heima án þess að geta veitt sér það ör- yggi sent þeir þarfnast. Með því að vera með þetta tengt beint til okkar sparast rnikill lími, miðað við það þegar slík tæki eru tengd aðilum í Reykjavík, sent síðan þurfa að koma boðum hingað suður með símtali. En eins og menn vita getur álagið á símakerfinu stundum verið þannig að erf- iðleikum er háð að ná sambandi milli Keflavíkur og höfuðborg- arsvæðisins. Þá er það að auki stór sparnaöur fyrir sveitarfé- lögin að hægt sé að bjóða þessa þjónustu hér heirna l’yrir." -Nú Itafa tugir aðila látið tengja slík kerfi við ykkur. Vitið þið einhver dæmi um að slíkt hal'i sannað sig? „Dæmið í Hornbjargi, húsi aldraða sem þið sögðuð frá í síðasta tölublaði er góð sönnun fyrir brunavarnarkerfið. Þá eru borðleggjandi dæmi varðandi neyðarhnappa. Eitt jieirra er um fullorðinn mann sent hafði legið tímum saman heirna hjá sér ósjálfbjarga án þess að geta kailað á hjálp og til hans kom enginn í heimsókn. Nú gengur þessi sami maður með neyðarhnapp unt hálsinn. sein er beintengdur slökkvi- slöðinni í Keflavík og nægir honum að taka í hnappinn þá berast boð hingað á stöðina." Sagði Jóhannes að þeir á Slökkvistöðinni bíði ekki aðeins eftir boðum, þeir fylgjist einnig með því að hvert tæki sé í lagi a.m.k. einu sinni á sólarhring. Gerist það með þeim hætti að boð berast á ákveðnum tíma sem þeir skrá niður, án þess að not- andi tækisins verði þess var. Berist boðin ekki á réttunt tíma, er strax brugðist við og athugað hvað hafi gerst og sé um bilun að ræða eru viðgerðarmenn þegar sendir á staðinn. Þá vildi Jóhannes nota tæki- færið til að benda fólki á að hafa reykskynjara á heimili sínu. því þeir veiti gríðarlegt öryggi. Á- stæðan fyrir því hvers vegna lít- ið er sagt frá þeint í fréttum, er að þeir láta vita af eldsvoða í fæðingu og því er oftast hægl að konta í veg fyrir tjón, séu þeir í lagi. SIEMENS UMBOÐ Þurrkarar Þvottavélar Aöventuljós Útiljósaseríur Litaöar perur Þvottavélar Þurrkarar Eldavélar Mikið úrval af úti- og inniljósum. Sjón er sögu ríkari... Mikiö úrval af smátækjum Útvarpsklukkur Brauöristar Handþeytarar MITRE íþróttavörur Raflagnavinnustofa Sigurðar Ingvarssonar - Heiðartúni 2, Garði - Yíkurfréttir 28. nóvember 1991 Verslun/Skemmtanalíf BOÐIÐ TIL VEISLU Á AFMÆLIS- DAGINN Um síðustu helgi var haldið upp á það að liðnir eru tveir ára- tugir frá því að verslunin Aldan hóf rekstur sinn við Tjamargötu í Sandgerði. Allan þennan tíma hafa sömu eigendur verið að versluninni, tvenn hjón, Gunn- þórunn Gunnarsdóttir og Oli B. Bjarnason og Lydía Egilsdóttir og Bjöm Maronsson. Á þessum tveimur áratugum hafa verið opnuð tvö útibú, þ.e, bensín og sælgætisbúð við Strandgötu í Sandgerði og fata- verslun við Hafnargötu í Kefla- vík og eru þau enn opin. Versl- unin Aldan er því nú á þremur stöðum. Auk þessa byggði verslunin stærra og meira versl- unarhúsnæði þar sem að- alstöðvamar eru við Tjarnargötu í Sandgerði. 1 tilefni af þessum tímamótum bauð verslunin upp á 20% afslátt á öllum fatnaði um síðustu helgi, auk þess sem viðskiptavinum var boðið upp á rjómatertu á sunnudag. TÓNLIST í FÉLAGSBÍÓI lödmobil fyrir fullu húsi ■gífurleg stemning Hljómsveitin Todmobil skemmti fyrir troðfullu Fé- lagsbíói sl. föstudagskvöld. Nemendur Fjölbrautaskóla Suðurnesja stóðu þá fyrir tón- leikum í bíóinu þar sem aðal- númer kvöldsins var þessi vin- sæla hljómsveit. Aður léku aðrar minna þekktar sveitir við góðar undirtektir. Þetta var sannkölluð tón- listarveisla og það aðeins fyrir 899 krónur. Mynda- smiðurinn Hilmar Bragi tók meðfylgjandi myndir við þetta tækifæri. Því er ekki að neita að þær nytu sín betur í fullum litum, en gjörið svo vel. _________13 \Í kurfréttir 28. nóvember 1991 „Grænt númer" NÝ STAÐA STRAX ÞJÓNUSTUSÍMINN er tölvuvæddur símsvari í Reiknistofu bankanna, sem veitir þér upp- lýsingar um rétta stöðu á tékkareikningi þínum - og 20 síðustu færslur. Þú þarft ekki lengur að bíða eftir reikningsyfirliti, heldur getur þú hringt beint í ÞJONUSTUSÍMANN og fengið nýjustu stöðuna strax. Öruggt - einfalt - þægilegt Þú getur hringt í ÞJÓNUSTUSÍMANN hvaðan sem er af landinu, jafnt á nóttu sem degi. „Grænt númer" er 996444 og telst það inn- anbæjar símtal. Aðeins þú þekkir leyninúmerið Viljir þú fá aðgang að ÞJÓNUSTUSÍMANUM þarftu að velja þér fjögurra stafa leyninúmer. Hringdu í innlánsdeild Sparisjóðsins í Keflavík og fáðu leyninúmer. BEIN LÍNA ALLAN SÓLAR- HRINGINN AUÐVELDAR EFTIRLIT MEÐ FJÁRMÁLUM «»SPRRISJÓÐURIHH í KEFLAVÍK

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.