Víkurfréttir


Víkurfréttir - 28.11.1991, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 28.11.1991, Blaðsíða 18
Víkurfréttir 28. nóv. 1991 18 i— Iþróttir SFS BIKARMEISTARI -sigraði í bikarkeppnina með mesta stigafjölda sem náðst hefur Sundfólkið í Sundfélaginu Suðurnes stóð sig frábærlega í Bikarkeppninni í sundi sem fram fór í Sundhöll Reykjavíkur um helgina. Fyrirfram hafði verið búist við þvf að félagið yrði í baráttunni um efsta sætið, en félagarnir gerðu gott betur en það. Þeir náðu samtals 29.029 stigum, sem er meira en hefur náðst nokkru sinni áður í Bik- arkeppninni. I öðru sæti hafnaði lið Ægis, með 27.415 stig, og Skagamenn, fyrrum þrefaldir meistarar, urðu þriðju með 23.905 stig. Karlalið SFS bar höfuð og herðar yfir önnur lið, og unnu strákarnir í 12 af 13 sund- greinum. Stúlkurnar stóðu sig einnig vel og unnu þrjár greinar. Eðvarð Þór Eðvarðsson varð stigahæsti maður mótsins með 2.627 stig. Annars varð árangur ein- stakra sundmanna þessi: Eðvarð sigraði í 100 m baksundi, lOOmbringusundiog 200 m baksundi. Arnar Freyr Ólafsson sigraði í 200 m flugsundi, 200 m skrið- sundi, og 200 m fjórsundi. Magnús Már Ölafsson sigr- aði í 100 m flugsundi og 100 m skriðsundi, og varð annar í 200 m skriðsundi. Ævar Örn Jónsson sigraði í 800 m baksundi og varð annar í 100 og 200 m. baksundi. Þeir fjórmenningar skipuðu einnig boðsundsveit SFS, sem sigraði í 4x100 m fjórsundi og 4x100 m skriðsundi. Hjá kvenfólkinu stóð Bryn- dís Ólafsdóttir sig vel. Hún sigraði í 100 m skriðsundi, varð önnur í 200 m skriðsundi, og þriðja í 200 m flugsundi. Elín Sigurðardóttir sigraði í 200 m baksundi og varð þriðja í 100 m flugsundi. Ungu stúlkurnar stóðu sig líka vel, Eydís Konráðsdóttir sigraði í 100 m baksundi, Berglind Daðadótttir varð önn- ur í 100 m bringusundi og Eygló Anna Tómasdóttir varð önnur í 200 m bringusundi. Auk ofantalinna, vann Magnús Konráðsson til tveggja verðlauna, fyrir 2. sæti í 200 m bringusundi og 3. sæti í 100 m bringusundi, og Gunnar Ar- sælson einnig, fyrir2. sæti í 100 m skriðsundi og 3. sæti í 200 m flugsundi, þrátt fyrir flensu. Karen valin golf- maður ársins Stjórn Golfsambands íslands hefur valið Karen Sævarsdóttur sem Golfmann íslands. Er þetta í fyrsta skipti sem konu hlotnast þessi heiður. Karen er íslandsmeistari kvenna og íslandsmeistari unglinga og hefur unnið nær ulla titla sem hún hefur reynt við á árinu. Arangur Karenar í golfi er hreint með ó- líkindum. Yfirburðimir sjást best þegar forgjöf hennar er skoðuð, en hún er 4,6. Brids: • Karen Sævarsdóttir. Sveit Torfa sigraði með glæsibrag Sveit Torfa S. Gíslasonar sigr- aði með fáheyrðum yfírburðum á minningarmóti um Guðmund Ing- ólfsson, sem lauk sl. mánudag. Fékk sveilin 156 stig af 175 mögulegum. Þetta gerir að með- altali 22.28 stig í leik eða 89.14% í skor! Þess má geta að í firra vanst mótið á 68% skori en nú varð sveitin í öðru sæti með 78.85% skor, sem hefði nægt til yf- irburðasigurs í fyrra. Staða efstu sveita varð þessi að lokum. 1. sv. Torfa S. Gíslasonar.....156 2. sv. Fast.þj. Suðurnesja......138 3. sv. Kjartans Ólafssonar......123 4. sv. Björns Blöndal.<..........103 Um næstu helgi stendur mikið til hjá Bridsfélagi Suðumesja, en þá verður haldin árshátíð og spil- aður verður árs- hátíðartvímenningur, þar sem öll- um er boðin þátttaka. A laugardaginn komanda verður sem sagt spilaður tvímenningur með peningaverðlaunum. Spilað verð- ur ó húsi oddfellow-manna í Grófinni og verður byrjað kl. 19:30. Um kvöldið munu síðan bridsarar halda árs- og upp- skeruliátíð í K-17. Boðið er upp á máltíð og ball á kostakjörum eða kr. 1.800 á mann. Áætlað er að húsið opni kl. 19:30 og borðhald hefjist kl. 20:00. Nú þegar stefnir í góða þátttöku, en fyrir þá sem ekki eru búnir að gera upp hug sinn er bent á að hafga samband við formann félagsins, Ola Þór Kjartansson í síma 12020 eða Jó- hannes skemmtinefndafrömuð í síma 12621. Næsta mánudag mun síðan hefjast jólatvímenningur félagsins sem verður 2-3 kvölda barómeter. Spilamennskan hefst kl. 19:30 og er spilað í Gistihúsinu Kristínu í Njarðvík. Nýir spilarar eru vel- komnir. Stjórnin. Sigurlið Sundfélagsins Suðurness saman komið eftir glæsilegan sigur. DV-mynd GS. Bridsfélacgið Muninn Haustsveitakeppnin hélt á- fram miðvikudaginn 20. nóv- ember og sem fym þá hcldur sveit Ameyjar forystu með fullt hús stiga eða 50 stig. 1. sveit Ameyjar..............50 stig 2. sveit Gunnars Guöbj........31 stig 3. sveit FMS..................27 stig 4. sveit Karls. G. Karlss.....18 stig 5. sveit Jóhannes Ben.........17 stig 6. sveit Halldórs Aspars......16 stig 7. sveit Ingimars Surnar......14 stig Sveit Jóhannesar Bene- diktssonar sat hjá í þessari um- ferð. Þriðja umferðin var spiluð í gær og þá átti sveit FMS að sitja hjá. Opna Suð- urnesja mótið í pílu Opna Suðumesjamótið í pílu- kasti verður haldið nú um helg- ina í Edenborg. Hafnargötu 30, Keflavík. Keppt verður bæði í einmenning og tvímenning (501). Á laugardeginum verður leik- in tvím. og hefst keppnin kl. 12.00 og síðan einni. á sunnu- daginum og hefst hann á sama tfma þ.e. kl. 12.00. Skráning keppenda er í síma 12000 á Edenborg. íslandsmótið verður síðan haldið í Keflavík 14. og 15. des- ember nk. Fyrsta tap HKN - ÍR-ingar sterkir á heimavelli HKN menn sóttu ekki gull í greipar ÍR-inga í laugardalshöllinni á sunnudagskvöldið. HKN náði sér aldrei á strik í leiknum og ÍR sigr- aði örugglega, 26:19. Strákamir í HKN þurfa þó ekki að örvænta, þetta er fyrsti leikurinn sem þeir tapa í Islandsmótinu. HKN situr nú í öðru sæti 2. deildar með 12 stig eftir sjö leiki. Liðið leikur næst hér heima á laugardaginn, gegn Ögra Liðinu hefur ekki gengið sem best í mót- inu og hefur enn ekki unnið leik. Hefst leikur liðanna kl. 14. - fréttir Þrír tipparar fengu 13 rétta hérlertdis og hlutu rúmar átta milljónir í sinn hlut og er það sænska pottinum að þakka. Má búast við traffík við sölukassana fyrir næstu helgi og helgar þegar svona tölur geta komið í hlut ís- lenskra tippara. Minnum Suðumesja- tippara á getrauna- númer sinna fé- laga.... UMSJÓN: PÁLL KETILSSON Jafnir í vitleysu Þeir félagar í ÍBK, Ingvar Guðmundsson og Kristinn Guðbrandsson skildu jafnir í síðustu leikviku og reyna því aftur með sér núna. Þeir fengu báðir 8 rétta. Um- sjónamaður getraunaleiksins gerði mistök á mistök ofan við vinnslu greinarinnar. Fyrir það fyrsta víslaði hann röðum tipparana og í annan stað gleymdi hann einu „rnerki" við leik Tottenham og Sheff. Utd. en þar tippaði Kiddi tvöfalt, á heimasigur og útisigur og fékk rétt á sig- ur Sheffieid. Þetta leiðréttum við hér með og því halda þeir félagar áfram í leiknum. Undirritaður biðst afsökunar á mistökunum og lofar því að svona komi ekki fyrir aftur. Ingvar fær leik með sínu liði á seðlinu, Derby. en báðir tippa þeir á sigur þar. Kristinn Ársenal-aðdáandi fær ekki sitt lið á seðilinn núna en segir að það skipti ekki máli því Ingvar detti út núna... 9.H Ingvar Kristinn Chelsea-Notth. Forest 2 i Coventry-Southampton i i Crystal Palace-Man. Utd. 1X2 12 Leeds-Everton IX 1 Liverpool-Norwich 1 1 Man. City-Wimbledon 1 1 Notts County-Q.P.R. 12 1X2 Oldham-Aston Villa 2 X2 Sheff. Utd.-Luton i 1 West Ham-Sheff. Wed. 2 1 Blackbum-Middlesbro 1X2 1X2 Bristol City-Charlton 2 1 Derby-Leicester i 1

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.