Víkurfréttir


Víkurfréttir - 28.11.1991, Blaðsíða 21

Víkurfréttir - 28.11.1991, Blaðsíða 21
Fréttir Marga daga Nú á tímum hraða og spennu þá getum við Islendingar vart verið án bíls og allt er ó- mögulegt ef „tíkin“ þarf að fara á verkstæði í einn dag og hvað þá lengur. Eigandi þessa bíls hafði ekki miklar áhyggjur af bílleysinu. Eftir að hafa ekið útaf Hafnaveginum og yfir stórgrýti svo bíllinn var kol- fastur, lét bílstjórinn þar við sitja og „húkkaði" far heim. Lögreglan hafði að sjálf- sögðu áhyggjur af bílnum og því var haft samband við eig- andann. Þá kom í Ijós að vika var liðin frá þvi að bílnum var ekið útaf og eigandinn ætlaði að sækja Itann „einhvern næstu daga“. Nú er búið að fjarlægja bílinn, tæpum hálfum mánuði eftir að óhappið átti sér stað og þurfti til þess stórvirk tæki. Það er sannarlega enginn asi á eig- andanum. Ljósm.:hbb • Það þarf mikla natni við gerð aðventuskreyt- inga. Ljósm. epj. ________21 Víkurfréttir 28. nóv. 1991 • Bíllinn við Skátahusið er mikið skemmdur eins og sést ef myndin prentast vel. Ljósmvndir: libb. STAKK Á 38 HJÓLBARÐA OG STÓRSKEMMDI BÍL Lögreglan leitar nú aðila sem kunna að tengjast fjölmörgum skemmdarverkum á bifreiðum í Njarðvík aðfaranótt sl. sunnu- dags. Þá var stungið á a.m.k. 38 hjólbarða og stórtjón unnið á lakki bifreiðar utan við fé- lagsheimili Hjálparsveitar skáta í Njarðvík. „Við eigum ekki orð til að lýsa þessum skemmdarverkum. Þetta er furðulegur hugsun- arháttur hjá þeim sem gerir svona,“ sagði einn félagi í Hjálparsveit skáta í samtali við blaðið. Miklar skemmdir voru unnar á bifreið eins félaga HSN. Sjö göt voru stungin á hvern hjólbarða og bíllinn allur rispaður með eggjámi. Þá hafði verið sparkað í hliðar bílsins svo þær voru meira og minna dældaðar. Bíllinn hafði staðið fyrir utan skátahúsið urh nótt- ina, þar sem skátarnir voru í helgarferð í Skorradal. Skammt frá skátahúsinu er bifreiðaverkstæði. Þar urðu sextán bifreiðar fyrir barðinu á skemmdarvargnum. Stungið var á hjólbarða og það rnörg göt á hvert dekk. Víðar um Njarð- vík voru skemmdir unnar á bíl- um. Má þar m.a. nefna Þórustíg, Grundarveg, Hólagötu og loks Holtsgötu. Bifreiðamar voru flestar á Vallamúmerum, þ.e. með gul númeraspjöld eða upp- hafsstafina „JO“. Einnig urðu bílar á íslenskum númerum fyrir barðinu á skemmd- arvargnum eða vörgunum. Þórir Maronsson, yf- irlögregluþjónn, sagði í samtali við blaðið á þriðjudag að allt verði gert til að hafa uppi á þeim er skemmdirnar unnu. Einstaklingsíbúð eða herbergi í Keflavík eða Njarðvík. Uppl. í síma 91-45319. -Til leigu Nýleg 2ja herbergja íbúð laus strax. Uppl. í síma 14455. 2ja herberg,ja íbúð laus strax. Uppl. í síma 12298. ° Til sölu 250 I. fiskabúr með öllu. Uppl. í síma 16212 eftirkl. 18.00. Ýmislegt Atvinna óskast Kona óskar eftir vinnu, margt kemur til greina (vaktavinna) hefur reynslu á tölvu. Uppl. í síma 16212 eftir kl. 18.00. Börnin og við Mánaðarlegi rabbfundur fé- lagsins verður haldin á Heilsu- gæslustöðinni í Keflavík mánu- daginn 2l.des. kl.21.00. Umræðuefni „ Stíflur" Stjórn- in. Hvernig væri að lífga upp á jólastemminguna? Önnumst lifandi tónlistar- llutning. Allar nánari upplýs- ingar í síma 68632. Tapað - Fundið Mjallhvít læða með bláa hálsól tapaðist frá Túngötu 17 Keflavík laugar- daginn 23 nóv. Finnandi vin- samlegast láti vita í síma 13084 fundarlaun. • Skrúfjárn voru sett í götin á dekkinu til að sýna fjölda stungugatanna. KÓSÝ: Námskeið í gerð jólaskreytinga Blómabúðin Kósý býður fólki nú að sækja kvöldnámskeið t gerð jólaskreytinga. Verða slík námskeið í gangi fram eftir mánuðinum. Fer skráning fram í versluninni. Myndirnar sem fylgja greininn voru teknar á fyrsta nám- skeiðinu, sem fram fór á mánudagskvöld. Sálin hans ]óns míns á stórdansleik í Stapa nk. laugardagskvöld. Aldurstakmark 18 ára. Húsið opnar kl. 23. Körfuknattleiksráð UMFN

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.