Víkurfréttir - 14.04.1992, Qupperneq 10
10
Bikarnum
hampað
• Jón Kr. Gíslason, þjálfari og
leikmaður ÍBK, hanipar ís-
landsbikarnum. Jón Kr. hefur
stvrt liðinu í úrslit fjórum
sinnum á síðustu fjórum árum.
Átta íslands-
meistaratitlar
til Keflavíkur
ERU
• Eiginkonur og unnustur leikmanna ÍBK skáluðu í kampavíni fvrir utan íþróttahúsið að leik
loknum, á meðan strákarnir gerðu þaö inní klefa.
Sjö af tólf
úr ÍBK og
UMFN
• Sigurður Ingimundarson,
fvrirliði söng í Karaoke-kerfi
Edenborgar þar sem leik-
menn karla og kvennaliðsins
fögnuðu sigri á sunnu-
dagskvöldið.
Drengjalandslið íslands í
körfuknattleik tekur þátt í móti
í Wales dagana 23.-25. apríl.
Liðið er skipað leikmönnum 15
ára og yngri. Alls voru tólf
leikmenn valdir. Fimm þeirra
eru úr ÍBK, Gunnar Einarsson,
Gunnar Geirsson, Elentínus
Margeirsson, Davíð Jónsson og
Örn Eyfjörð. Tveir piltanna eru
úr UMFN, Örvar Þór Krist-
jánsson og Asgeir Guð-
bjartsson. Islenska landsliðið
keppir gegn Iandsliðum Wales,
Gíbraltar og Mónakó. Þjálfarar
liðsins eru Stefán Amarson og
Sigurður Hjörleifsson.
• Magnús Jensson, „kústur“
Keflvíkinga var í aksjón að
sjálfsögðu og glaður í bragði.
Keflvíkingar tryggðu sér
átta af þeim fimmtán Is-
landsmeistaratitlum sem
leikið var um í vetur. Stærsta
titlinum var landað sl. laug-
ardag. er meistaraflokkur
karla vann sigur á Vals-
mönnum. Meistaraflokkur
kvenna tryggði sér tililinn
fyrir rúmri viku. Auk meist-
araflokkanna fengust titlar í
sex yngri flokkum. Grind-
víkingar stóðu sig einnig
með mikilli prýði, en þangað
fóru tjórir Islandsmeistara-
titlar í yngri flokkum. Stelp-
urnar í mfl. UMFN urðu
sigurvegarar í 2. deild
kvenna og leika í 1. deild
næsta keppnistímabil. Nánar
verður Ijallað um þetta síðar.
• Jonathan Bow átti stórkostlegan leik í síðustu viðureigninni
á laugardag. Þessi mynd er dæmigerð, hann hefur betur og
kemst framhjá Booker og Matthíasi.
m
Umsagnir Is-
landsmeistara
Brynjar Haröarson:
„Ég fékk minn séns í 4. leikn-
um og nýtti hann vel. Ég var
settur sem annar maður til að
taka Booker. Við töluðum um
fyrir leikinn að spila sama bolta
og á fimmtudaginn. Halda
leiknum niðri, stjórna hraðanum
og spila góða vörn. Það var
góður varnarleikur sem gerði
okkur að Islandsmeisturum. Það
vantaði breiddina hjá Vals-
mönnum þegar við komumst
fjórum stigum yfir í seinni hálf-
leik. Þá brotnuðu þeir. A-
horfendur voru alveg æðislegir,
þeir eiga þetta skilið eins og
við.“
Sigurður Ingimundarson,
fyrirliöi:
„Áfram Keflavík, við erum
bestir. Ég er í stuði.“
Guðjón Skúlason:
„Þetta var stress hjá báðum
liðum til að byrja með. Við tók-
um okkur á í seinni hálfleik, og
leyfðum þeim ekki að taka öll
þessi fráköst, þó þau hafi nú
verið nokkuð mörg. Smá ein-
staklingsframtak frá Jóni Kr. og
Nökkva, tryggði okkur forskotið
sem við ætluðum að halda.
Vörnin sá um restina."
Albert Óskarsson:
„Þetta er æðislegt, þetta er
frábært. Fyrir þennan leik sagði
ég við vin minn, Árna Ragn-
arsson, að ég myndi gefa honum
gullpening ef við myndum vinna
leikinn. Ég stóð við það. Við
Brynjar vorum alveg harðir á því
að við ætluðum að stoppa
Booker. Djöflast bara í honum.
Við erum í miklu betra formi
heldur en Booker."
Jonathan Bow:
„Það er frábært að vinna
meistaratitil,
þremur árum. Við þurtum að
taka á og hafa fyrir þessu í
tveimur síðustu leikjunum, ann-
ars hefði þetta verið búið."
Jón Kr. Gíslason, þjálfari:
„Ég er búinn að fara með liðið
í úrslit þrisvar, Islandsmeistarar
tvisvar og í öðru sæti einu sinni.
Töpuðum í úrslitaleik í fyrra.
Þetta er svona næstum því
100%. Ég er alveg í skýjunum
núna, ég hef verið svo stress-
aður. Samt þegar við unnum
svona stórt innfrá, þá hafði ég
svo mikla trú á liðinu. Það voru
þeir sem þurftu að vinna sig
uppúr þessari lægð eftir 4. leik-
inn, 20 stiga tapinu. en við
þurftum bara að halda því sem
við höfðum verið að gera. Þó við
höfum verið tveimur stigum
undir í hálfleik, þá vissi ég að við
ættum að hafa þetia, þar sem við
höfum alltaf verið betri en þeir í
síðari hálfleik."
nn
BEST R
Qslandsmeistarar, íslands-
meistarar, íslandsmeist-
arar, hrópuðu dyggir
stuðningsmenn IBK, að fimmta
leik, ÍBK og Vals, loknum.
Keflvíkingar höfðu tryggt sér
íslandsmeistaratitilinn í körfu-
knattleik, með því að leggja
Valsmenn að velli í tveimur
síðustu leikjum úrslitakeppn-
innar. Keflvíkingar tryggðu sér
oddaleik á heimavelli sl.
fimmtudagskvöld, er þeir völt-
uðu yfir Valsmenn á Hlíð-
arenda, 56-78. Endurkoma Sig-
urðuar Ingimundarsonar virkaði
eins og vítamínsprauta á Kefl-
víkinga. ÍBK hafði yfir-
burðastöðu í leikhléi 19-40.
Varamenn ÍBK léku meiri-
hlutann af síðari hálfléik, og
juku forskotið um 1 stig.
Oddaleikurinn, var jeikinn sl.
laugardag kl. 16:00. íþróttahús
Keflavíkur var þéttsetið áhorf-
endum sem flestir höfðu mætt
rúmri klukkustund áður en leik-
ur átti að hefjast. Mikið jafn-
ræði var með liðunum í fyrri
hálfleik. Valsmenn höfðu þó
frumkvæðið og leiddu í hálf-
leik, 27-29. Þegar 7 mínútur
voru liðnar af síðari hálfleik var
staðan 39-43, fyrir Val. Kefl-
víkingar gerðu þá 11 stig í röð,
og snéru stöðunni í 50-43.
Stuðningsmenn ÍBK tóku þá
við sér svo um munaði. Kom þá
berlega í Ijós hversu mikilvægt
er að leika úrslitaleik á heinta-
velli. Valsmenn reyndu að klóra
í bakkann og minnkuðu muninn
í tvö stig 55-53. Jón Kr. Gísla-
son, þjálfari ÍBK, sent átti frá-
bæran leik, skoraði þá tvær
þriggja stiga körfur í röð, og
braut þar með á bak aftur alla
mótstöðu Valsmanna. Lykil-
menn Valsmanna áttu í villu-
vandræðum. og auk þess er
ekkert grín að leika gegn liði
sem hefur 1000 tryllta stuðn-
ingsmenn á bakvið sig. Loka-
staðan var 77-68. Keflvíkingar
geta nú sagt að þeir eigi besta
körfuknattleikslið á íslandi.
Stigaskorun í 4. og
5. leiknum
Valur - ÍBK, að Hlíðarenda
Jón Kr. 17. Bow 12, Sigurður
11, Kristinn 10, Nökkvi 9, Júl-
íus 6, Hjörtur 5, Albert 4,
Brynjar og Guðjón 2 hvor.
Franc Booker gerði 28 stig
fyrir Valsmenn, og Svali
Björgvinsson 7 stig.
IBK - Valur, úrslitaleikur
Bow 23. Nökkvi 19, Jón Kr.
16, Guðjón 8, Albert 6, Kristinn
5.
Franc Booker gerði 18 stig
fyrir Valsmenn. Símon og
Magnús 12 hvor. Svali 11,
Tónias Holton 10 og Ragnar
Jónsson 5.
Tölur úr
úrslitaleiknum
Skotnýting ÍBK innan
þriggjastigalínu var 21/42
(50%), á móti 24/46 (52%) hjá
Val. Þriggjastiga skotnýting IBK
var 3/13 (23%), en 4/14 (28%)
hjá Val. Valsmenn hirtu alls 42
fráköst, 19 varnar- og 23 sókn-
arfráköst. Keflvíkingar tóku 24
fráköst. 11 sóknar- og 13 varn-
arfráköst. Keflvíkingar gáfu 18
stoðsendingar, Valsmenn 10.
IBK náði boltanum 17 sinnum,
Valsmenn 5 sinnum. ÍBK tapaði
boltanum 7 sinnum, Valsmenn
18 sinnum. Franc Booker var
nteð skotnýtinguna 7/15 (46%)
innan þriggjastigalínu. Hann
gerði 7 þriggjastiga skottilraunir,
hitti einu sinni. Booker tók 11
fráköst, tapaði boltanum 5 sinn-
um, stal honum tvisvar og gaf
fjórar stoðsendingar. Jonathan
Bow gerði þrjár þriggjastiga
skottilraunir, hitti aldrei. Hann
hitti úr 8 skotum af 17 innan
þriggjastigalínu (47%), tók 9
fráköst, gaf 6 stoðsendingar.
náði boltanum 6 sinnum og tap-
aði honurn einu sinni. Nökkvi
Már hitti úr 6 af 8 skottilraunum,
tók 9 fráköst og náði boltanum
fjórum sinnum. Albert Osk-
arsson var með 100% skotnýt-
ingu 2/2. og tók tvö fráköst.
• íslandsmeistarar ÍBK fagna settu rnarki, - íslandsmeistaratitlinum í körfuknattleik. Ljósmyndir í opnunni
tók Margeir Vilhjálmsson.
• Stuðningsmenn Keflavíkurliðsins hiilðu ærna ástæðu til aö fagna og gerðu það. Þeir studdu
liðið líka gríðarlcga vel í allri úrslitakeppninni og eiga sinn þátt í árangrinum.