Víkurfréttir - 14.04.1992, Page 15
_________15
\4kurfréttir
14. apríl 1992
• Þær stöllur úr aldursflokki 12 ára og eldri • Það gerðu einnig krakkarnir úr yngri flokk-
sýndu góð tilþrif. unum. Ljósmyndir: epj.
Þú færð allt
sem þú þarft -
á HORNINU
Allt í páskamatinn og á grillið.
Páskaegg í úrvali.
Opið til 21 alla daga nema föstu-
daginn langa og páskadag.
Gleðilega páska
Suðurnesjakeppni í
samkvæmisdansi
Dansskóli Heiðars Ástvalds-
sonar, hélt þann 8. apríl sl.,
Suðurnesjakeppni í samkvæm-
isdönsum, og fór keppnin fram
í Félagsheimilinu Stapa í
Njarðvík. Þessi keppni er árviss
og taka þátt í henni nemendur
dansskólans hér á Suðumesjum,
s.s. úr Keflavík, Njarðvík,
Grindavík, Sandgerði og Garði.
Dansskólinn hefur kennslu
einnig á þessum stöðum allan
veturinn.
Suðurnesjakeppnin er að
jafnaði mjög fjölmenn og
skemmtileg í alla staði og er
keppt í fjórum aldurshópum þ.e.
7 ára og yngri, 8-9 ára, 10-11
ára og 12 ára og eldri. Sex efstu
pörin í hverjum aldurshóp fá
verðlaunapeninga og nú var
einnig veittur bikar fyrir efstu
pörin, sem kepptu í Enskum
Vals og Quickstep.
Þá heldur dansskólinn nem-
endasýningu á hverjum vetri og
þar koma fram allir nemendur
dansskólans þ.e. úr Grindavík,
Keflavík, Sandgerði og Garði,
vel á þriðja hundrað nemenda
og er fjöldi þeirra alltaf að
aukast. Aldur nemenda er allt
niður f 4ra ára og eru einnig
hjónahópar. Voru í vetur fjórir
hjónahópar.
Nemendasýningin er að jafn-
aði mjög fjölmenn og er stjóm-
un hennar og framkvæmd til
fyrirmyndar, í ár fór nemenda-
sýningin fram 28. mars sl. Að
auki sendir dansskólinn fjölda
nemenda til þátttöku í Islands-
meistarakeppni í samkvæmis-
dönsum sem fram ferdagana 1.,
2. og 3. maí nk.
Á nýliðinni árshátíð Myllu-
bakkaskólans í Keflavík sýndu
tvö pör úr aldursflokknunt 12
ára og eldri samkvæmisdansa.
Hefur að undanfömu verið
nokkuð um að pör úr hinurn
ýmsu aldursflokkum dansskól-
ans komi fram á hinum uppá-
komum utan skólans.
Yfirkennari dansskólans hér
á Suðurnesjum er Harpa Páls-
dóttir og ásamt henni kennir
Guðmundur Ágúst Karlsson.
Verslunln HORNIÐ
Hringbraut 99 Keflavík
• Nektin í Sandgerði hulin
með sundskýlu. Ljósm.: hbb
Listaverkiö „Alög“
í Sandgerði:
NEKTIN
HULIN
Þann tíma sem listaverkið
„Álög“ hefur staðið við Sand-
gerði, virðist ýmsir hafa haft á-
hyggjur af manninum sem
stendur þar nakinn. Sumir hafa
því sett trefil um háls hans,
aðrir klætt hann í einhverjar
flíkur. Eitt slíkt tilfelli rakst
ljósmyndari blaðsins á síðasta
laugardag, en þá var búið að
hylja nekt hans með skýlu.
Þó sumum finnist þetta snið-
ugt, er rétt að hafa í huga að
verkið á ekki að vera með neitt
„á sér" og því er þetta háð nán-
ast skemmdarverk. Því ættu
menn að láta þetta ógert.
v-
EGURINN
kjistið samféCag
býöur ykkur
á samkomu fimmtudaginn 16. apríl (skírdag) kl. 16.30
í félagsheimilinu Festi.
Allir Suðurnesjamenn velkomnir!
• Mikill söngur og góö stemmning
• Beðiö fyrir sjúkum. Fyrirbæn til handa þeim sem þurfa blessun
Guös inn í líf sitt.
• Þaö er ekki einungis nauösynlegt aö þekkja Jesú Krist heldur
einnig gaman og spennandi aö tilheyra honum.
• Björn Ingi Stefánsson, forstöðumaður kirkjunnar, talar.
• Arnar Jensson, lögreglumaöur, veröur meö vitnisburö á samkom-
unni.
• Vegurinn k.s. er 10 ára gömul fríkirkja meö um 600 meðlimi.
Markmið Vegarins k.s. er aö flytja boöskap Biblíunnar til þjóöar okkar
- íslands.
Ath. Samkoman verður kl. 16.30, ekki 20.30 eins og auglýst er í
Suðurnesjafréttum. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 91:642355.