Víkurfréttir - 14.04.1992, Blaðsíða 17
17
• Hafnarvarðarskúrinn sem Njarðvíkurbær kaupir á 250
þúsund. Ljósm.: epj.
Seldur Njardvíkurbæ
ú kvart milljón
Sex aðilar sendu inn tilboð í Hafnarvarðarskúrinn í Njarðvík.
Voru þau frá eitt hundrað þúsundum og upp í 250 þúsund krónur
sem var frá Njarðvíkurbæ. Samþykkti stjóm Hafnarinnar Kefla-
vík-Njarðvík að taka hæsta boðinu.
Innanhúsknattspyrna:
URSLIT A SUÐURNESJAMOTI
Laugardagur 29. febrúar
5. KI.OKKl K DRKNCi.lA
A-riðill
1. Reynir ................ 4
2. UMFN .................. 4
3. UMFG .................. 3
B-riðill
1. UMFG .................. 4
2. Þróttur ............... I
3. Reynir ................ I
6. FlOKKI R DRKNG.IA
A-riðill
1. UMFG .................. 7
2. Víðir ................. 5
3. UMFN .................. 5
4. Reynir ................ 3
5. Þróttur ............... 0
B-riöill
1. Víðir ................. 3
2. Reynir ................ 3
3. UMFG .................. 0
7. Fl.OKKUR DRKN'ti.lA
A-riðill
1. Víðir ................. 6
2. UMFN .................. 4
3. Reynir ................ 1
4. UMFG .................. I
B-riðill
1. UMFG .................. 4
2. UMFN .................. 2
3. Víðir ................. 0
Laugardagur 14. mars
4. Fl.OKKl R DRKNG.IA
A-riðill
1. Reynir ................. 8
2. UMFN ................... 6
3. Þróttur ............. 3
4. UMFG ............... 3
5. Víðir .............. 0
B-riðill
1. UMFG ................ 4
2. Reynir .............. 2
3. UMFN ............... 0
3. FLOKKUR DRKNG.IA
A-riðill
1. Reynir .............. 4
2. Víðir ............... 2
3. UMFG ............... 0
B-riðil!
1. Reynir .............. 2
2. UMFG ................ 0
Sunnudagur 15. mars
5. FI.OKKI IR KVK.NNA
1. Víðir ............... 3
2. UMFN ............... 2
3. UMFG ............... 1
4. KI.OKKUR KVF.NNA
1. UMFG ................ 4
2. Víðir .............. I
3. UMFN ............... 1
3. FI.OKKUR KVK.WA
1. Reynir .............. 7
2. UMFGB ............... 5
3. Víðir .............. 4
4. UMFGA .............. 3
5. UMFN ............... 1
2. Fl.OKKUR KVKNNA
1. Reynir .............. 4
2. Víðir .............. 1
3. UMFG ............... 1
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta, á el'tirtöldum
fasteignum:
Greniteigur 15, Keflavík, þingl.
eigandi Tyrfingur Andrésson og
Gerður Gunnlaugsdóttir. fer fram á
eigninni sjálfri, miðvikudaginn 22.
apríl 1992. kl. 10:00. Uppboðs-
beiðendur eru Olafur Axelsson hrl.,
Sigurður I. Halldórsson, Lög-
fræðistofa Suðurnesja sf.. Eggert B.
Ólafsson hdl„ Sigríður Thorlacius
hdl.. Gjaldheimta Suðurnesja og
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hrl.
Staðarsund 4, Grindavík, þingl.
eigandi Ólafur Arnberg Þórðarson,
fer fram á eigninni sjálfri, mið-
vikudaginn 22. apríl 1992, kl.
13:30. Uppboðsbeiðendur eru
Byggðastofnun, Fiskveiðasjóður Is-
lands, Lögfræðistofa Suðurnesja sf.
og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hrl.
Bæjarfógetinn í Keflavík,
Njarðvík og Grindavík
Svslumaðurinn
í Gullbringusýslu
4 íslandsmet og góður ár-
angur í Vestmannaeyjum
-hjá Sundfélaginu Suöurnes
Sundfólk frá Sundfélaginu Suð-
urnes náði mjög góðum árangri á
Islandsmeistaramótinu í Vest-
mannaevjum um síðustu helgi.
Fjögur Islandsmet lágu og 11 sigrar
í einstökum greinum af 32. Sund-
fólk frá SFS var nánast í hverri
grein á verðlaunapalli.
Kvennaboðsundssveit SFS setti
Islandsmet í 4x100 m skriðsundi og
synti á 4.02,67 mín. og einnig í
4x100 m fjórsundi á 4.29.44 mín.
Gunnar Arsælsson setti Islandsmet
í 50 m flugsundi og synti á 26,39
sek. og í 400 m fjórsundi sigraöi
Arnar Freyr Ólafsson og setti Is-
landsmet á tímanum 4.25,21 mín.
Þá fuku nokkur unglingamet.
Eydís Konráðsdóttir setti telpna- og
stúlknamet í 200 m baksundi og
lékk tímann 2.27,44 mín og telpna-
met setti hún í 100 m baksundi á
1.07.87 mín. Bróðir hennar. Magn-
ús, setti piltamet í 200 m bringu-
sundi á 2.27,16 mín.
Þá var karlaboðssundsveitin al-
veg við Islandsmet í sínum sundum
sem hún sigraði í. Að vísu tapaðist
annað eftir á þar sem Magnús Kon-
ráðsson henti sér út í laug áður en
keppinautarnir voru búnir að ljúka
við sundið, svo langt var sveitin á
undan.
Þær Eygló Anna Tómasdóttir og
Berglind Daðadóttir náðu lág-
mörkum til að keppa á úrtökumóti í
Lúxemburg fyrir Evrópumeistara-
mót unglinga. Magnús Konráðsson
gerði sér lítið fyrir með Islands-
metsárangrinum að hlaupa yfir
mótið í Lúx og komst beint inn á
EM-mótið. Eydís Konráðsdóttir
hafði áður náð lámörkum fyrir EM-
mótið. Arnar Freyr Ólafsson fyllti
systkinatríóið og fer með þeim
Magnúsi Má og Bryndísi ásamt
Eðvarði Þór Eðvarðssyni á úr-
tökumótið í Edinborg fyrir Ólymp-
íuleikana. Þau fjögur verða í eld-
línunni í Skotlandi næstu daga.
GETRAUNALEIKUR
SAMVINNUFERÐA OG VÍKURFRÉTTA
Hallgrímur Kjartan Þorsteinn
16 17 18
Annari umferð í úrslitum get-
raunaleiks Víkurfrétta og Sam-
vinnuferða-Landsýnar er lokið og
allt í járnum. Hallgrímur náði
besta árangrinum, fékk 9 rétta,
Kjartan og Þorsteinn fengu 8 rétta
en Ingvar 6 rétta. Staðan er því
þannig að Þorsteinn er efstur með
18 rétta, Kjartan 17. Hallgrímur
16 og Ingvar 13 rétta. Tippararnir
fóru verst út úr sænsku leikjunum
en voru með mjög góða nýtingu í
ensku leikjunum á seðlinum.
Tippararnir fá áfram sænska
leiki, 5 stykki takk, síðan koma
allt hörkuleikir úr 1. deildinni
ensku, m.a. leikur Liverpool og
Leeds sem verður sýndur í beinni
útsendingu hjá RUV í boði Sam-
vinnuferða auðvitað.
Við hölum þetta ekki lengra að
sinni. Tippararnir fengu ekki
tækifæri til að láta hafa mikið eftir
sér, mikið kapp við tímann og
tippararnir nú hver í sínu horni og
ráða sínum ráðum. Baráttan um
Wembleyferðina verður hörð og
líklegt að aðeins munu skilja einn
eða örfáir réttir milli tipparanna í
lokin...
Djurgarden-Gais IFK Göteborg-Norrköping Trelleborg-Malmö FK I 1 1 1 H 1 1X2 2 K 1 1 2 Þ 1 1 2
Örebro-Vastra Frölunda 1 1 1 1
Öster-AIK 1X2 I IX IX
Chelsea-Q.F.R. X 12 1 1
Coventrv-Everton 1 2 1X2 1X2
Liverpool-Leeds 1X2 1X2 IX 1X2
Luton-Manc. Utd. 2 2 2 2
Nottingham Forest-Aston Villa 12 2 1 IX
Sheff. Utd.-Arsenal 2 i 2 2
Southampton-Sheff. Wed. X2 2 1X2 2
Tottenham-Wimbledon 1 IX 1 1
NÝTT
KORTA-
TÍMABIL
U>