Víkurfréttir - 14.04.1992, Blaðsíða 18
18
Náttúruvemdarfélag Suðvesturlands:
Starfshópur um kynningu
og varðveislu þjóðleiða
Á stjórnarfundi Náttúru-
vemdarfélags Suðvesturlands
11. apríl sl. var ákveðið að
stuðla að því að í hverju sveit-
arfélagi á Suðvesturlandi verði
stofnaður starfshópur innan fé-
lagsins um öflun allra tiltækra
upplýsinga um gamlar þjóð-
ieiðir og aðrar alfaraleiðir í við-
komandi sveitarfélagi og koma
þeim á framfæri á aðgengilegan
hátt. Einnig verða tillögur um
varðveislu og nýtingu f sam-
vinnu við Þjóðminjavörð.
Til að kynna þetta nánar
verða farnar nokkrar vett-
vangsferðir eftir páska. Það
verður nánar tilkynnt síðar.
Húsnœði óskast
Gott einbýlishús eða rúmgóð íbúðar-
hœð, minnst 4 svefnherbergi, óskast
til leigu nú þegar.
Upplýsingar: Sigurður Ragnarsson á
Eignamiðlun Suðurnesja í síma 11700
eða Vilhjálmur Þórhallsson hrl. í síma
11263.
9 Slökkviliðið skolaði burt glussa sem lak niður.
9 Hér er kraninn í fullri rcisn, með körfuna.
9 Bolli og Hilmar skoða hæðina og leggja á
ráðin.
9 Svona útsýni hafði Hilmar úr krananum
þegar liorft var niður.
jttÍÉ'lft*
Víkurfréttaflipp!
Sem kunnugt er fóru þrír af úr-
slitaleikjunum milli Vals og IBK
fram í Keflavík og sóttu um og
yfir 1300 manns fyrri leikina tvo.
Þess vegna áttu menn nú von á
mun meiri aðsókn er kom að þeim
þriðja sem um leið varendanlegur
úrslitaleikur.
Með það í huga og að á mið-
leiknum var aðsókn manna á bíl-
um það mikil að leyft var að
leggja á malarfótboltavellinum,
áttu menn von á að bílafjöldinn
yrði ekki minni á úrslitaleiknum,
jafnvel að fólksfjöldinn yrði um
2000 og malarvöllurinn yrði þétt-
settur bílum. Hefði jrað gerst
hefði verið um einstakt frétta-
tilvik að ræða og því hugðu Vík-
urfréttir sér gott til glóðarinnar og
ætlaðu að festa atburðinn á
mynd.
Haft var samband við nokkra
aðila og úr varð að fenginn var
stór krani og hann staðsettur á
bílastæðinu við fógetaskrifstof-
uraar. Átti hann hífa að Ijós-
myndara blaðsins upp í körfu, og
hann síðan að taka yfirlitsmynd
yftr svæðið úr 32 metra hæð.
Allur undirbúningur gekk vel,
en eitt yfirsást. Það var leikur
veðurguðanna sem buðu upp á
það gott veður að þorri áhorfenda
úr Keflavík kom gangandi á
svæðið og því varð bílaumferðin
minni en á fyrri leikjunum og því
fór góða fréttin út í buskann. Við
fengum Ijósmyndarann Hilmar
Braga að vísu hífðan upp og tók
hann yfirlitsmynd yfir bæinn sem
koma mun að notum síðar.
Er verið var að ganga frá
krananum eftir lnfinguna, sprakk
glussaslanga á krananum, þannig
að kalla varð út viðgerðarlið og
slökkvilið til að hreinsa fógeta-
planið en að öðru leyti gekk allt
eins og í sögu, nema hvað mynd-
efnið breyttist eins og fyrr segir.
Þrátt fyrir þessar breytingar á
áætlun standa Víkurfréttir í þakk-
arskuld við ýmsa aðila sem sýndu
okkur gott viðmót og aðstoðuðu
við verkið. Þessum aðilum færum
við bestu þakkir, en þeir eru:
Skipaafgreiðsla Suðumesja, Bolli
og Kristján Valdimarssynir,
Pálmi Aðalbergsson, varðstjóri,
lögreglan, bæjarfógeti og Bruna-
vamir Suðumesja.
Tók Emil Páll meðfylgjandi
myndir af flippi Víkurfrétta síð-
asta laugardag.
FULLT HÚS MATAR
í FÍABÚÐ
> Við eigum allt í >Opið skírdag, laugar-
páskamatirm dag og 2. í páskum
>Ýmis tilboð ígangi kl. 10-22.
Sendum viðskiptavinum okkar
og Suðurnesjamönnum öllum
bestu óskir um gleðilega páska.
FÍABÚÐ
Njarðvík