Víkurfréttir - 30.04.1992, Qupperneq 6
6
Davíð Valgarðsson úr Keflavík:
FANN FÖDUR SIHN
EFTIR 41ÁR
• Raymond ásamt Davíð á góðri stundu í mars sl. Davíð dvaldi
ytra í 9 daga. Ljósm.: Gréta
TIL SOLU
yrir fjörutíu og einu ári síðan
flutti hann heim til Islands frá
Bandaríkjunum með móður
sinni, þá þriggja ára gamall.
Síðan þá hafði hann ekkert
heyrt frá föður sínum. Það var
síðan í febrúar á þessu ári sem
að skjöl komu fram í dags-
ljósið senr vörpuðu ljósi á
hvemig viðmælandi blaðsins
gæti hugsanlega náð sam-
bandi við föður sinn - og það
gekk.
Davíð Valgarðssyni úr Kefla-
vík hefur tekist að hafa upp á
föður sínum í Bandaríkjunum.
Eftir ótrúlegum krókaleiðum
tókst að hafa upp á föður Davíðs.
Faðir hans býr í Detroit og gegndi
herþjónustu hér á landi 1945-7.
Týndir pappírar
komu í ljós
„Ég og eiginkona mín, Gréta
Þórðardóttir, höfðum skrifað
ýmsum stofnunum í Banda-
ríkjunum, en án árangurs. Vanda-
málið var að pabbi starfaði að
akstursíþróttum og hjá Ford-
verksmiðjunum. Hann hafði ekk-
ert fast heimilisfang, svo erf-
iðlega gekk að hafa upp á hon-
um,“ sagði Davíð í samtali við
blaðamann.
Mál þróuðust þannig að Gréta
hringdi í 09 og þar tókst að hafa
upp á símanúmeri föðurbróður
Davíðs. Þetta var 10. febrúar sl.
Daginn eftir var Davíð kominn í
símasamband við föður sinn í
Bandaríkjunum.
„Við fengum númerið hjá
bróður pabba hjá stúlkunum á 09.
Við hringdum til hans og kynnt-
um okkur. Hann tjáði okkur að
pabbi væri nýlega fluttur og hefði
fengið nýtt númer. Hann skildi
hafa upp á því. Við þökkuðum
fyrir og kvöddum - án þess að
skilja eftir símanúmer.
Fagnaðarfundir
Bróðir pabba hafði upp á rétta
númerinu og sagði honum frá
símtalinu. Hann varð að vonum
spenntur og hóf þegar að leita af
mér á Islandi. Svo loksins þegar
ég ætlaði að hringja út varð ég svo
stressaður að ég þorði varla að
hringja".
Faðir Davíðs í Bandaríkjunum
heitir Raymond Frenrik Gilsdorf
og er af þýskum ættum. Hann er
giftur Donu Gilsdorf. Eins og
gefur að skilja urðu fagn-
aðarfundir þegar þeir töluðust við
í síma eftir 41 árs aðskilnað. „Það
var strax ákveðið að við færum út
og heimsæktum hann og konuna
hans. Við fórum til Banda-
ríkjanna 2. mars og dvöldum þar
í níu daga“.
Hafði leitað án ár-
angurs að Davíð
Davíð er fæddur í Banda-
ríkjunum og bjó þar til þriggja ára
aldurs, er hann flutti heim til Is-
lands með móður sinni. Eftir að
komið var til Islands tók Davíð
upp föðurnafnið Valgarðsson.
Það varð hins vegar til þess að
föður hans gekk ekkert að hafa
upp á syni sínum, þar sem faðir
Davíðs hafði ekki rétt nafn.
Báðir bif-
vélavirkjar
Reymond og Davíð áttu glaða
daga í byrjun mars. „Það er alveg
kostulegt hvað það er margt líkt
með okkur, bæði gallar og kostir.
Við erum báðir fastheldnir og
kannski svolítið gamaldags. Við
erum báðir bifvélavirkjar og syst-
ir mín í Bandaríkjunum hefur
hestamennsku sem áhugamál. Ég
hef líka brennandi áhuga á hest-
um“. Gréta bætti því við að þeir
feðgar væru báðir miklir
húmoristar og gaman væri að
hlusta á þá segja sögur.
Fiskibollur í
brúnnisósu
Raymond, faðir Davíðs, hefur
mikinn áhuga á að koma til Is-
lands og skoða sig hér um. Það er
hins vegar óvíst hvort það verður,
þar sem hann þjáist af asma og
ekki víst hvort hann treystir sér í
langt flug til Keflavíkur. Hann
verður 66 ára í ágúst og langar
mikið til Keflavíkur að fá sér
fiskibollur í brúnni sósu.
Viðtal og mynd:
Hilmar Bragi
Iðavellir 11 A Keflavík, iðnaðarhúsnæði
124 ferm. að grunnfleti með rúmlega 80
ferm. millilofti. Góðir greiðsluskilmálar.
Upplýsingar um verð og skilmála fást hjá:
Daða Þ. Þorgrímssyni, Sparisjóðnum í
Keflavík, sími 16600
Fasteignasölunni, Hafnargötu 27, Keflavík,
sími 11420
&5PRRISJÓÐURINH
í KEFLAVÍK
mRÐVIKIMGAR!
Bæjarstjórn Njarðvíkur verður með borgarafund
um skólamálin nk. mánudag, 4. maí kl. 20:00
í félagsheimilinu Stapa. Heitt á könnunni.
Allt áhugafólk um skólamálin hvatt til að mæta
og taka þátt í umræðum.
Bæjarstjóri