Víkurfréttir - 30.04.1992, Qupperneq 8
8
grín - gagnrýnl a
■ vangaveltur ■
umsjón: emil páll*
Ragnar Örn
gegn Björk
Þær fréttir berast nú úr
pólitíkinni að menn séu
þegar farnir að spá í próf-
kjörsslag fyrir næstu
sveitarstjómarkosningar,
en núverandi kjörtímabil
er hálfnað. Segja menn að
Ragnar Örn Pétursson,
veitingamaður sé farinn
að stefna upp á við innan
Sjálfstæðisflokksins í
Keflavík og vilji þar
komast í sæti Bjarkar
Guðjónsdóttur og þar
með fella hana úr öruggu
sæti, að hans mati.
Pizzur í
Manilia
Þúsundþjalasmiður og
pizzugerðarmaður einn
sem þekktur er á sínu
sviði bæði hér syðra og á
höfuðborgarsvæðinu, svo
og á Glóðinni, þar sem
hann var síðast mun inn-
an tíðar opna nýjan
Pizzastað þar sem veit-
ingastaðurinn Manilla var
áður til húsa við Hring-
braut í Keflavík. Mun
hann bjóða bæði upp á
heimsendingu eins og
þekkt er orðið hjá öðrum
slíkum stöðum hér syðra
og eins getur fólk snætt á
staðnum, eða tekið með
sér heim.
Slœm
framkoma
Hemma Gunn
Mikið var það illa gert
hjá Ríkissjónvarpinu að
klippa á tónlistarflutning
keflvísku kvennahljóm-
sveitarinnar Kollrössur
krókríðandi, er þær komu
fram í þættinum „A tali
hjá Hemma Gunn“ á síð-
asta vetrardag. Þó tón-
listarflutningur þeirra
væri svolítið öðru vísi en
annarra, var þama staðið
rangt að málum og þá sér
í lagi eftir að Hemmi var
búinn að koma í veg fyrir
að þær kæmu fram í
„Perluvinir“ Bylgjunnar
á annan dag páska.
Fámenni í
skrúögöngu
Þeir voru fáir sem
mættu í skrúðgönguna í
Keflavík, sumardaginn
fyrsta. Er þá átt við aðra
en skáta og hljómflutn-
ingsmenn. Að vísu var
veðrið ekki upp á það
besta, en sé vilji fyrir
hendi er fólk ekki vant að
láta slíkt hafa áhrif á sig.
Að vísu var kynningin frá
þeim sem héldu skrúð-
gönguna léleg og þátttaka
sjálfsagt í samræmi við
að. Þó þetta sé árlegur at-
burður, virðist þurfa að
kynna það á hverju ári, ef
einhverrar þátttöku er
vænst.
Gefö'onum
kaffi!
Spaugilegt atvik gerð-
ist hér á ritstjórn blaðsins
skömmu eftir hádegi síð-
asta föstudag, en sá dagur
var hinn síðasti áður en
hópur golfara af Suð-
urnesjum hélt í 10 daga
ferð á erlenda grundu til
að spila golf. Meðal
þeirra sem í hópnum eru,
er auglýsingastjórinn
okkar, Páll Ketilsson og
einnig væntanlegur for-
stjóri Hitaveitunnar, Júl-
íus Jónsson. Þeir koma
báðir við sögu í þeirri
spaugilegu sögu sem við
látum nú fjúka, og er rétt
að hafa í huga að aug-
lýsingastjórinn var orðinn
spenntur að komast í
ferðina, er atburðurinn
átti sér stað. Þá hringdi
Júlíus í Pál og beið nokk-
uð lengi eftir að ná sam-
bandi og eftir að skrif-
stofustúlkan ítrekaði við
Pál að Júlíus væri enn að
bíða, kallaði Páll á móti
„gefð' onum kaffi“. Þá
svaraði hún í bræði, „en
hann er í símanum".
Hjótrúin hans
Ómars...
Þeir eru ýmsir sem eru
mjög hjátrúarfullir. Einn
þeirra er Ómar Jóhanns-
son, einn afkastamesti
leikritahöfundur sunnan
Straums. Hann hefur haft
það fyrir sið að láta ekki
klippa hár sitt fyrr en viku
fyrir frumsýningu. Það
var því ekki fyrr en um
síðustu helgi sem leik-
ararnir í gamanleikritinu
„Helgin framundan - bein
útsending“ sem frumsýnt
verður í Garðinum 1. maí,
sáu framan í leikstjórann.
Kom þá í ljós að á bak við
lubbann leyndist sæll og
útitekinn maður. Annars
staðar í blaðinu birtist létt
bilað viðtal við Ómar,
leikstjóra.
...blaöamaöur
á þeytingi
Blaðamaður og ljós-
myndari Víkurfrétta,
Hilmar Bragi, sem sendur
var á dögunum á loðnu-
veiðar, því næst í sleða-
ferð í kolvitlausu veðri og
nú síðast hífður upp í
krana, leikur á fjölum
Samkomuhússins í Garð-
inum í téðu leikriti Óm-
ars. Þar er hann á þeytingi
sem færeyskur blaða-
maður.
Framapotiö
felldi hann
Er kemur að því að
menn vilji komast til
frama innan félaga, þurfa
Víkurfróttir
30. apríl 1992
þeir oft að taka ákvörðun
hvort þeir vilji ganga
þrepin upp á toppinn, eða
taka allan áfangann í
einu. Ekki er hægt að gera
bæði, en það reyndi þó
Guðmundur T. Ólafsson
á aðalfundi Starfsmanna-
félags Keflavíkurbæjar í
síðustu viku. Hafði stjóm
félagsins ákveðið að
leggja til að hann flyttist
úr varastjóm í aðalstjóm
er fram kom tillaga um að
stynga upp á honum gegn
sitjandi formanni, sem
hann samþykkti. Fóru
leikar þannig að hann
náði ekki kjöri og féll
einnig út úr stjórninni.
Brostin stéttar-
félagsvitund...
Á rnorgun er 1. maí,
sem hér á árurn áður var
nefndur baráttudagur
verkalýðsins, en er nú í
hugum flestra sem „pott-
þéttur“ frídagur. Enda er
nú svo komið að laun-
þegar nenna ekki að
leggja á sig neina fyr-
irhöfn, heldur ætla verka-
lýðsforystunni að sjá um
það sem er að hverju
sinni, án þess að koma
þar nálægt sjálfir. Auð-
vitað er þetta brostin
stéttarfélagsvitund, því
hvað er verkalýðsfélag ef
félagsmennimir standa
ekki með forystunni.
...launþega
Hver hefur t.d. ekki
heyrt talað um það hvað
hún Hólmfríður Ólafs hjá
Verslunarmannafélaginu
eða hann Guðmundur
Finns hjá VSFK séu lítið
við? Það sé vonlaust að
ná í þau! Þetta fólk eins
og fjöldi annarra er þó
langt í frá að slæpast. T.d.
segja þeir sem komið
hafa í „karphúsið" und-
anfamar vikur að þar hafi
þau verið svo vikum
skiptir við að reyna að fá
í gegn nýjum kjara-
samningum, sem nú virð-
ast loks í höfn, eftir að
sáttasemjari lagði fram
miðlunartillögu. Nei, 1.
maí er ekki hátíðis- eða
frídagur launþega, 1. maí
er baráttudagur verka-
lýðsins, þar sem hann á
að sýna samstöðu og fjöl-
menna á þá fundi eða þær
uppákomur sem boðið er
uppá.
OPNUM AÐ NÝJU EFTIR
BREYTINGAR NÝJA OG
STÆRRI VERSLUN
AÐ HAFNARGÖTU 79, KEFLAVÍK, NK. LAUGARDAG. OPIÐ FRÁ 10-14
Pr,t»us.
F
asa/
efn/
• Kynning á Igloo kæliboxum
og hitaboxum.
• Ýmsar gasvörur í húsbíla,
hjólhýsi og sumarbústaði,
s.s. ofnar, hellur og ísskápar.
• Allar algengustu Shell vörur.
• Kaffi á könnu og konfekt
í skál. Börnin fá blöðrur.
Skeljunqs-búðin
Hafnargötu 79 - sími 13322
Launþegar
Sýniö samstööu
Til hamingju meö
1. maí