Víkurfréttir - 30.04.1992, Page 9
9
Voru Suðurnesjabörn hvött til að drekka mengað vatn?
Orökstuddar full-
yrðingar
-segir Magnús Guöjónsson, framkvæmdastjóri Heilbrigöiseftirlits Suöurnesja
I Helgarblaðinu sem út kom
síðasta föstudag er fjallað mikið
um mengunina sem upp
komstl988 í vatnsbólum Kefl-
víkinga og Njarðvíkinga. Þar er
harkaleg gagnrýni á heil-
brigðisyfirvöld á Suðumesjum
frá hendi Einars Vals Ingi-
mundarsonar, umhverfissér-
fræðings, en bæði í blaðinu og
öðrum fjölmiðlum hefur hann
m.a. látið í það skína að böm á
Suðurnesjum hafi verið hvött til
að drekka mengað vatn, sem
hafi verið stórhættulegt m.a.
krabbameinsvaldandi. Auk þess
sem TCE ntengun geti valdið
ýmsum alvarlegum sjúkdóm-
um, svo sem hjartagöllum.
Þá leiðir hann getum af því
að hið háa hlutfall fósturláta á
Suðurnesjum og þess að böm
hafi fæðst nýmalaus og dáið
stuttu síðar, stafi af mengun
hersins í vatnsbólunum. En
áður hefur komið fram að sjö
börn hafi fæðst hér á und-
anfömum tíu árum með þennan
sjúkdóm. Segir hann að hlutfall
barna varðandi sjúkdóm þenn-
an sé það hátt á Suðumesjum að
það nálgist að vera eitt barn á
hverja 500 fædda, en eðlilegt
væri eitt af hverjum eitt hund-
rað þúsund fæddum börnum.
Þar sem í umræðum í öðmm
fjölmiðlum svo og Helgar-
blaðinu, er ekki rætt við heil-
brigðisyfirvöld á svæðinu,
hafði blaðið samband við
Magnús Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóra Heilbrigðiseftir-
lits Suðurnesja. Hann hafði
þetta um málið að segja:
„Þarna er einn maður að leika
sólóspil með fullyrðingum úti í
bláinn, sem fjölmiðlar birta án
þess að hafa samband við okk-
ur. Það er ntjög alvarlegt ntál að
vera með slíkar órökstuddar
fullyrðingar sem tengjast m.a.
göllum í fóstrum ófæddra
bama.
Það er mjög alvarlegt að það
skuli vera hægt að vaða með
slíkt í fjölmiðla, þar sem fjöldi
fólks á um sárt að binda vegna
fósturláts og sjúkdóma í við-
komandi bömum.
Varðandi sjálfa mengunina,
þá unnum við í einu og öllu eftir
því sem verkefnið gaf til kynna
að gera þyrfti", sagði Magnús.
Yikurfréttir
30. apríl 1992
• Greinin umrædda er birtist fvrst í Helgarblaðinu síðasta
föstudag og síðan hefur verið til umræðu í ýmsum fjölmiðlum.
• Steinunn Karlsdóttir við
píanóið.
Sinfóníuhljómsveitin í
Keflavík:
Vel heppnaðir
tónleikar
Tónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar Islands, sem haldnir
voru í Iþróttahúsinu í Keflavík
sl. föstudagskvöld þóttu takast
með miklum ágætum. Vel á
þriðja hundrað ntanns sóttu
tónleikana. Meðal gesta var
Ólafur G. Einarsson, mennta-
málaráðherra.
Einleikarar með Sinfóníu-
hljómsveitinni voru þau Stein-
unn Karlsdóttir á píanó og
Veigar Margeirsson á trompet.
Hljóðfæraleikur þeirra þótti
takast vel og var þeim klappað
lof í lófa þegar þau höfðu lokið
leiknum. Meðfylgjandi myndir
af Steinunni og Veigari tók
Hilmar Bragi við þetta tæki-
færi.
• Veigar nteð trompetinn.
mri Litla Leikfélagið Garði
sýnir gamanleikinn
\ oln lríini itiffi
peinni útsending0 j
FRUMS YNING 1.MAI
2. sýning þriðjud. 5. maí, kl. 21:00
Miðnætursýning föstudaginn 8. maí kl. 23:30
Miöaverö kr. 1000.
Fyrir börn & ellilífeyrisþega kr. 500.
Miöapantanir í síma 27133 eftir kl. 19.00
sýningardagana.
SPURT ER: Tekst Robba aö bjarga kartöflubændum? - Er Solla sú alkræfasta í
kjaftasögunum? - Finnur Hansipelann sinn? - Hvernig fer leikurinn? - Fer amma á
elliheimili? - Fær Leifur pizzu í kvöld eða signa grásleppu? - Viö öllum þessum
spurningum og miklu fleiri fást svör viö í Helginni framundan, (í beinni útsendingu)
á föstudagskvöldiö 1. maí. Þar verður sungiö og traiiaö!!!