Víkurfréttir - 30.04.1992, Page 12
12
• Unnsteinn E. Kristinsson
bragðar..........kaffið.
Verslunar- eða skrif-
stofuhúsnæði til sölu
Sparisjóðurinn auglýsir til sölu hluta af húsnæði sínu í Versl-
unarmiðstöðinni, Víkurbraut 62, jarðhæð, Grindavík. Húsnæðið
er 93 fermetrar að stærð og rúmlega 100 fermetrar með sameign.
Til greina kemur að selja húsnæðið í tvennu lagi.
Húsnæðið má skoða á afgreiðslutíma Sparisjóðsins í Grindavík.
Upplýsingar um verð og skilmála fást hjá:
Elínu Aspelund, Sparisjóðnum í Grindavík, sími 68733
Dnða Þorgrímssyni, Sparisjóðnum í Keflavík, sími 16600
Fasteignasölunni, Hafnargötu 27, Keflavík, súni 11420
&SPARISJÓÐURINH
í KEFLAVÍK
Flúði land vegna menningarslyss:
\4kurfréttir
30. apríl 1992
Leikritaskálcl og revíu-
höfundur úr Garðinum, sem
flúði land vegna menn-
ingarslyss í fyrra. fer nú huldu
höfði í Garðinum og hefur
undanfarna tvo mánuði falið sig
á pappalofti í frystihúsi þar
syðra. Hann var varla kominn
til Rio De Janero í Brasilíu
þegar alþjóðalögreglan Interpol
komst á snoðir um ferðir hans
og hóf þegar leit. A ótrúlegan
hátt tókst viðmælanda blaðsins,
Ómari Jóhannssyni að flýja
Brasilíu. Hann kom til landsins
með kaffifarmi og var skipað
app í Sundahöfn fyrr á þessu
íri. Við hittum hann að máli þar
■iam hann sat á stól við borð t'
Samkomuhúsinu í Garði. Sal-
urinn var myrkvaður og á svið-
inu stóðu leikarar og léku á als
oddi.
Dýrmæt reynsla
- Nú ert þú kominn á æsku-
stöðvarnar og ert að leikstýra
eigin leikriti. Hvað kom til?
„Ég hef liaft hugmynd að
leikriti innra með mér nokkuð
lengi. Undanfarin ár hef ég
verið að semja revíur. svo það
var orðið tímabært að semja
leikrit. Það var því tilvalið að
koma á æskustöðvarnar og
sviðsetja þetta í Garðinum.
Eftir viðræður við Litla leik-
félagið var ákveðið að ég myndi
leikstýra verkinu sjálfur. Það er
dýrmæt reynsla að leikstýra
eigin verki og einnig gaman af
því, þar sem ég er einn af stofn-
félögum Litla leikfélagsins....já
svona talaðu hærra. Ég heyri
ekkert í þér“.
-Já, en Ómar, ég var ekkert
að segja.
„Ég var ekki að tala við þig,
Hilmar minn“.
Kláði í föðurlandi
- Nú segir gamalt máltæki að
enginn sé spámaður í sínu föð-
urlandi.
„Já, svona haldið áfram. Lát-
ið blaðasnápinn ekki trufla
ykkur. Ég er aldrei í neinu föð-
urlandi. Þetta er gott og gilt
máltæki, en það er með það eins
og föðurlandið, mann klæjar
stundum undan því. Þessvegna
sleppi ég þessu föðurlandsrugli
og ekki er ég mikill spámaður.
Reyndu svo að spyrja af ein-
hverju viti, drengur".
- Þú hefur verið afkastamikill
í revíum. Nú er það söngleikur.
Hvers vegna?
„Staðreyndin er sú að ef ég
hefði átt að skrifa revíu um
Garðinn þá hefði mér ekki dug-
að tveggja tíma sýning.
Það er gaman að breyta til.
Að semja söngleik og gam-
anleikrit er ekki frábrugðið
revíunum, þar sem ég sem bæði
söngtexta sem talað máL.þú
verður að leggja meiri áherslu
á hommatittur".
Ekki staðbundið
verk
-Þú nefndir enga hommatitti.
„Nei, ég var ekki að tala við
þig".
-Sko, Ómar. Annað hvort
ertu í viðtali, eða ég bara fer.
Persónurnar í þessu verki. Hvert
sækir þú þær?
„Þær persónur sent koma
fram í Helgin framundan - bein
útsending, eiga ekki við neinn
af íbúum byggðarlagsins og
verkið er síður en svo stað-
bundið. Þetta leikrit væri allt
eins hægt að setja upp á Vest-
fjörðum eða á Raufarhöfn".
-Um hvað fjalla svo her-
legheitin?
„Brodneski. Farinova hel-
viski polski, njet. Þetta er gott
hjá þér...Þetta er dæmigert leik-
rit um lífið í sjávarþorpi. Efn-
istökin eru hefðbundin. Við
byrjum á pappaloftinu í frysti-
húsinu, þar sem strákarnir blaða
í klámblöðum og sitthvað fleira
gerist. Við fáum einnig að
skyggnast inn á heimili versl-
unareiganda bæjarins. inn á
snókerstofuna, skoðum lífið
utan við sjoppuna og á skrif-
stofu Leifs Ragnarssonar versl-
unareiganda. Þá fara allir á
knattspyrnuleik og kóróna allt
með ferð á krána. Leikritið ger-
ist á föstudegi og laugardegi.
Það er eins með leikarana og
aðra, það verður oft lítið úr
verki á sunnudegi".
Hressilegar
senur
-Eftir að hafa horft á stuttan
kafla úr leikritinu vaknar sú
spurning hvort það sé klúrt. - Er
það?
„Hvað er klúrt? Er það til
dæmis að tala íslenskt mál? I
þessu leikriti er til dærnis hvergi
notað engilsaxneska orðið
SHIT (hægðir), sem annar hver
maður notar orðið nú til dags og
þá sérstaklega bömin.
Sumar senur í leikritinu eru
ansi hressilegar. íslenskan býð-
ur upp á miklu meiri möguleika
en önnur tungumál. I leikritinu
er að vísu notað örlítið úr
pólsku. færeysku og sletta úr
MEÐ INTERPOL
Á HÆLUNUM FRÁ RÍÓ
-í felum á pappalofti í Garöinum
________13
Víkurfróttir
30. apríl 1992
Hvar er ungmenna-
félagsandinn?
Bragi Einarsson og Friðrik Alex-
andersson í hiutverkum sínum.
Sálarrannsóknarfélag
Suðurnesja
AÐALFUNDUR
Aöalfundur SRFS veröur haldinn í húsi
félagsins Túngötu 22, Keflavík
laugardaginn 9. maí kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Hefðbundin aöalfundarstörf
unnin meö nútímatækni.
2. Tillögur um lagabreytingar.
3. Þínar óskir og tillögur.
4. Önnur mál.
Mundu að þú ert æðsta stjórn þíns
félags á aðalfundi.
ÁRSHÁTÍÐ
meö gríni og góögæti klukkan 21.00.
Formaðurinn og fleiri teknir í gegn meö
léttum vísum.
Heimasmíöaöir stuttir grínþættir fluttir af
félögunum sjálfum.
Allt félagsfólk velkomiö ásamt mökum.
Stjórnin
ítölsku. Það er þó aðeins einum
manni sem leyfist það...ahh
þetta andskotans myrkur“.
I uppsetningu Litla leik-
félagsins á Helgin framundan -
bein útsending, leika á þriðja
tug manna og alls eru það 30
manns sem vinna að sýn-
ingunni á einn eða annan hátt.
- Hvernig gekk að fá leikara til
að taka þátt í uppsetningunni?
Bítt’ í punginn á
þér!
„Það gekk alls ekki illa, síður
en svo. Það er mikið af gamla
"liðinu" að koma inn aftur. Þá
er búið að vinna mikið og gott
unglingastarf hjá leikfélaginu.
Það er góður meðalaldur í hóp-
num...bítff punginn á þér... og
þessu fólki gengur vel að vinna
saman. Æfingar hafa að vísu
tekið langan tíma, en þetta fólk
er að vinna að þessu í frí-
stundum og leikritið hefur verið
að þróast á meðan æfingum
hefur staðið. Þegar þetta viðtal
er tekið er ég að leggja síðustu
hönd á textann".
-Margir kunna að spyrja
hvort þið séuð ekki seint á
ferðinni?
„Ég er þeirrar skoðunnar að
list eigi ekki að vera árs-
tíðabundið fyrirbæri. Drottins
dýrðar koppalogn var sýnt fyrir
fullu húsi á þessum árstíma.
Hafi fólk áhuga á að sjá gam-
ansamt leikrit, þá kemur það.
þó svo að vor sé í lofti," sagði
Ómar Jóhannsson að endingu.
Spurt og myndað:
Hilmar Bragi.
M0DEL MYND! er nýtísku skóli
sniðinn að þörfum fólks í nútíma þjóðfélagi
NÝTT6
VIKNA
NÁMSKEIÐ
AÐ HEFJAST
Tveirtímar í senn, 12
kennslustundir.
Framkoma, hæfni til
sýningarstarfa, feimni,
kurteisi og fleira og
fleira.
Uppbyggjandi og góð
námskeið fyrir alla.
7-9 ára, 10-12 ára, 13-15
ára, 16-20 ára og eldri.
MYND
Afhending
skírteina verður í
FJörheimum
mánudaginn 11.
maíkl. 17-22
INNRITUN
hjá Siddý í Gloríu í
síma 92-14409 og
91-677070
Ath
TRYGGIÐ YKKUR PLASS TIMANLEGA
SÍÐAST KOMUST FÆRRI AÐ EN VILDU.
TAKMARKAÐUR FJOLDI NEMENDA