Víkurfréttir - 30.04.1992, Side 21
Félagslíf
_________21
Víkurfréttir
30. apríl 1992
fMFEB
iF FÉLAC ELDRI BOROARA
Aðalfundur Félags eldri
borgara á Suðumesjum var
haldinn í Þotunni þann 22. mars
sl. Stjórnin skýrði þar frá starf-
semi félagsins á liðnu starfsári
og lagði fram reikninga þess.
Starfsemi félagsins var
blómleg á þessu fyrsta starfsári
þess, og fjárhagur þess er góð-
ur.
Styrktarfélag aldraða arf-
leiddi félagið að lausa-
fjármunum sínum, en það átti
verðmætt innbú í húsnæði bæj-
arins að Suðurgötu 14. Einnig
gaf það félaginu 250 þúsund við
stofnun þess. Félagar eru nú
tæplega 600 og er jöfn fjölgun í
félaginu. Kosið var í stjórn fé-
lagsins og er hún nú þannig
skipuð. Jónína Kristjánsdóttir,
formaður; Klara Asgeirsdóttir,
varaformaður; Oddbergur Ei-
ríksson, ritari; Gunnar Sveins-
son, gjaldkeri; Þorsteinn Jó-
hannesson, Haukur Guðjónsson
og Svava Sigurðardóttir sem
kom í stað Halldóru Ingi-
björnsdóttir, sem baðst undan
endurkjöri.
Kosið var í nefndir á vegum
félagsins. Formenn nefnda eru
þessir: Ferðanefnd: Margrét
Friðriksdóttir, sími 11361.
Skemmtinefnd: Sigfús
Kristjánsson, sími 11869.
Hlunnindanefnd: Matt-
hildur Bjömsdóttir, sími
13729.
Leikhúsnefnd: Magnþóra
Þórarinsdóttir, sími 27082.
smá
auglýsingar
Oskast til leigu
5 ntanna fjölskylda
óskar eftir einbýlishús eða stórri
íbúð í Keflavík eða N jarðvík frá
mánaðarmótum maí/júní. Uppl.
ísíma 98-12219.
2ja-3ja herbergja
Ungt par, bráðunt fjölskylda
óskar eftir íbúð í Keflavík eða
Sandgerði. Á sama stað óskast
hillusamstæða fyrir lítinn pen-
ing. Uppl. í síma 14613.
Ibúð raðhús eða einbýlishús
4ra-5 herbergja óskast til leigu
í Keflavík, Njarðvík. Bind-
indisfólk á vín. Uppl. í síma
91-72783.
Til leigu
Herbergi
23 fermetra með sér inngangi,
snyrtingu og Stöð 2. Uppl. í
síma 15183 eftirkl. 17.00.
2ja herbergja
íbúð. Uppl. í síma 13124.
3ja herbergja
íbúð í Y-Njarðvík. Uppl. í sínta
37445.
Fréttir frá Félagi eldri borgara á Suðurnesjum
íþróttanefnd: Sigurður
Sturluson, sími 11393.
Ráðgjafanefnd: Jóhann
Pétursson, sími 11359.
Vel var mætt á aðalfundinn
eða um 100 félagsmenn.
Ferðir sem boðið er
upp á í sumar
1. Vestmannaeyjaferð 3. til
5. júlí. Ekið verður til Þor-
lákshafnar kl. 10 frá SBK og
þaðan siglt til Vestmannaeyja
með Herjólfi. Gist verður á
Hótel Bræðraborg.
Kostnaður pr. mann er kr.
13.700. Þar í er innifalið far-
gjöld, morgunverður, kvöld-
verður, gisting, skoðunarferð
um Heimaey, ásamt bátsverð í
kring um eyjuna. Sameiginleg
kaffidrykkja verður með FEB í
Vestmannaeyjum, laugardags-
kvöldið 4. júlí. Þátttaka til-
kynnist í síma 12193 (Jón) og í
síma 68195 (Gerða).
2. Austfjarðaferð 30. júlí til
5. ágúst. Flogið fyrir hádegi
þann 30. júlí til Egilsstaða.
Dvalið í Kirkjumiðstöðinni á
Eiðum í 5 daga. Skoðunarferðir
verða alla daga niður á firði og
um Héraðið. Kostnaður á Eið-
um er kr. 9.000.- á mann. Inni-
falið í því er gisting, morg-
unverður, kvöldverður og kaffi.
Flugfarið kostar ca. 7000 á
mann. Skoðunarferðir greiðast
sérstaklega. Nauðsynlegt er
fyrir þátttakendur að hafa með
sér teppi eða svefnpoka.
Þátttaka tilkynnist til Mar-
grétar í sínta 11361 og Gerðu í
sínia 68195, sem fyrst.
3. Hvanneyrardvöl. Til
boða stendur í samstarfi við
Borgarfjarðarprófastsdæmi,
dvöl fyrir 8 manns á Hvanneyri
frá 16. til 21. ágúst. Kostnaður
er áætlaður 8 til 12 þúsund.
Þátttakendur sjái sér sjálfir fyrir
fari til Hvanneyrar.
Upplýsingar gefur Helga í
síma 11386.
4. Hin árlega dagsferð verð-
ur auglýst síðar.
5. Landssamband félaga eldri
borgara býður upp á ferð um
mið-Evrópu í haust, þann 3.
september. Nánari upplýsingar
hjá Margréti í síma 11361.
6. Boðið verður upp á sól-
arlandaferð í september. Sú
ferð verður nánar auglýst síðar.
Kóramót
Kóramót Landssambands
FEB verður haldið í Lang-
holtskirkju þann 16. maí nk. Sjö
kórar frá aðildarfélögum mæta
þar til leiks. Frá FEB á Suð-
urnesjum mun mæta 40 manna
kór undir stjóm Hlífar Kára-
dóttir. Að loknum söng gefst
kórfélögum og gestum þeirra
kostur á ferð til Hótel Arkar í
Hveragerði. Verður þar borðað
og stiginn dans.
Guðbergur Ingólfsson veitir
4ra herbergja
íbúð í Keflavík. Laus strax.
Nöfn og símanúmer leggist inn
á skrifstofu Víkurfrétta, merkt:
„ 4ra herbergja".
2ja herbergja
íbúð með sér inngangi. Uppl. í
síma 15646 milli kl.19-20.
Til sölu
Sjónvarp og leikjatölva
20" Tensai litsjónvarp m/
fjarstýringu á kr. 20.000.- og
Nintendo leikjatölva nteð 4
leikjum á kr. 12.000.- Uppl. í
síma 15841.
Nintendo tölva
og 14 leikir. Uppl. í síma
14878.
Töffstólar
5 barstólar úr leðri og króm,
selst á hálfvirði. Uppl. í síma
27214 og 27369.
Antikhúsgögn
Sófasett og sófaborð. Uppl. í
síma 13820.
Lada Samara árg. '91.
5 dyra 1300 ek. 12.500. Uppl. í
síma 15992.
Lada Sport '84
Ford Zodiac '60
Upplýsingar í síma 15124.
Ýmislegt
Skotfélag Keflavíkur
og nágrennis
Æfingar eru hafnar á útisvæði
„SKEET“. „F.l.T.A.S.C.
Sporting“ og 22.cal. riffil-
skotfimi „ SILHOUETT" Mið-
vikudag kl. 18.30-20.30.
Sunnudag kl. 16.00-19.00.
Stjórnin
Ungbarnanudd
Námskeið í ungbamanuddi er
að hefjast. Uppl. í síma 11324
Eydís.
Bílaþrif
Tek að mér að þrífa og bóna
bíla einnig smá viðgerðir.
Uppl. í síma 15068.
Mæður
Vantar ykkur bamapíu í sum-
ar? Eg er 15 ára gömul og vön
því að passa böm. Aldur barn-
ana má vera frá 1/2 árs til 3 ára.
Uppl. í síma 13821 frá kl.
16.00-19.00.
Auðvitað
í Víkur-
fréttum!
Hvar annars
staðar?
allar upplýsingar í síma 27082.
Leikhúsferð
Leikhúsferð verður farin
þann 22. maí til að sjá „Þrúgur
reiðarinnar“ í Borgarleikhús-
inu. Farið verður með Sér-
leyfisbifreiðum Ketlavíkur.
Þátttaka tilkynnist til Magn-
þóru í síma 27082, Sæunni í
síma 68014, Halldóru í síma
37561 eða Huldu í síma 12335
fyrir 10. maí. Þær gefa einnig
allar upplýsingar.
Gönguklúbbar í Keflavík
og Grindavík
íþróttanefnd hefur ákveðið
að stofna gönguklúbba. I
Keflavík verður gengið einu
sinni í viku á fimmtudögum kl.
11. Fyrsta gangan verður þann
30. apríl og er svo vikulega úr
því. Göngumenn eru beðnir að
mæta að Suðurgötu 12-14,
skrúðgarðsmegin. Göngustjóri
verður Sigurður Sturluson.
í Grindavík verður gengið á
sunnudögum kl. 10. Göngu-
menn eru beðnir að mæta við
Sparisjóðinn. Fyrsta gangan
verður 3. maí. FEB í Grindavík
hefur tíma í íþróttasalnum í
barnaskólanum kl. 13-14 á
mánudögum og föstudögum og
tíma í sundlauginni kl. 14-15.30
sömu daga. FEB-maður í-
þróttadeildar í Grindavík er Jó-
hanna Dagbjartsdóttir, sími
68051.
Félagsgjöld
Á aðalfundi félagsins var á-
kveðið að hafa félagsgjaldið ó-
breytt fyrir næsta ár frá 1. maí
1992 til 1. maí 1993 eða kr.
1000.-. Hjá þeim félögum sem
gengið hafa í félagið eftir síð-
ustu áramót verður ekki inn-
heimt félagsgjald fyrr en 1993.
Félagsgjaldið verður eins og
áður innheimt með gíróseðli frá
Sparisjóðnum í Keflavík.
Með félagskveðju
Stjórn FEB á Suðurnesjunt
Allsherjar-
atkvæöa-
greiösla
Allsherjaratkvæðagreiðsla fer fram um
miðlunartillögu Ríkissáttasemjara hjá
Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur
og nágrennis að Hafnargötu 80, Kefla-
vík, mánudaginn 4. maí og þriðjudaginn
5. maí kl. 8-22, báða dagana.
Miðlunartillagan liggur frammi á skrif-
stofu félagsins til nánari skýringar.
Fjölmennið og takið þátt í atkvæða-
greiðslunni.
Stjórnin
Allsherjar-
atkvæöa-
greiösla
Allsherjaratkvæðagreiðsla fer fram um
miðlunartillögu Ríkissáttasemjara hjá
Iðnsveinafélagi Suðurnesja að Tjarnar-
götu 7, Keflavík, þriðjudaginn 5. maí og
miðvikudaginn 6. maí kl. 13-21, báða
dagana.
Miðlunartillagan liggur frammi á skrif-
stofu félagsins til nánari skýringar.
Fjölmennið og takið þátt í atkvæða-
greiðslunni.
Stjórnin