Víkurfréttir - 30.04.1992, Page 22
Bohoma
Mikil körfuboltahátíð var haldin í íþróttahúsinu í Njarðvík á
laugardaginn var. UMFN sigraði þar íslenska landsliðið með
120 stigum gegn 119, eftir framlengdan leik. Hermann Hauks-
son úr KR og Valur Ingimundarson úr UMFT styrktu Njarð-
víkurliðið. í hálfleik, kepptu valinkunnir leikmenn í skot- og
troðslukeppni. Valur Ingimundarson, sigraði í troðslukeppninni,
eftir mikið einvígi við Guðmund Bragson úr UMFG. Ketl-
víkingurinn Guðjón Skúlason beið lægri hlut í skoteinvígi við
Birgi Michaelsson, þjálfara og leikmann Skallagríms. Valurog
Birgir unnu með þessum sigrum ferð til Bahamaeyja á körfu-
boltahátíð. Teitur Örlygsson, fer einnig á þessa hátíð, þar sem
hann var kjörinn besti íslenski leikmaðurinn á lokahófi KKÍ.
BIKARAR #
Verðlaunapeningar BORÐFÁNAR
Umboö fyrir ísspor
á Suöurnesjum . A (\ ('
Gull - Silfur - Messing s)
og Eir
listmunur í úrvali.
^asrar ‘Karí OCsen jr. 1 ÍWodeí - Listmunir CHafnargötu 37 ■ ‘Kcfíavf V Sími 92-12575
Garðsvöllur
Litla bikarkeppnin laugardaginn
2. maí. kl. 12.00.
Víðir - ÍBK
Knattspyrnufélagið Víðir