Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.12.2015, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.12.2015, Blaðsíða 49
20.12. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49 Black Marrow – Íd í Borgarleikhúsinu á Listahátíð í Reykjavík Eftir Ernu Ómarsdóttur og Damien Jalet. „Verkið fjallar um samband mannsins við nátt- úruna og eðlishvatir mannsins sem hafa verið iðnvæddar. […] Líkt og í fyrri samstarfsverkum Ernu og Jalet, þá var sviðsmynd, búningar og önn- ur umgjörð gríðarstór hluti verksins og mjög vel úr garði gerð. Sköpuð var furðuveröld á sviðinu þar sem súrrealískir hlutir áttu sér stað.“ FURÐUVERÖLD SKÖPUÐ Á SVIÐINU „Í upphafi verksins beinist athygli áhorfandans að Tyminski sjálfum þar sem hann einbeitir sér að einum líkamsparti í einu. Uppbyggingin leiðir smám saman til þess að sviðsmunir fléttast inn.“ Danssýningar ársins SAMANTEKT MARGRÉTAR ÁSKELSDÓTTUR YFIR BESTU DANSSÝN- INGAR ÁRSINS LEIÐIR Í LJÓS AÐ ÞÆR INNIHALDA DJARFAR HUGMYNDIR OG GRÓTESKU, TÓNLISTARGJÖRNING, LÁTA REYNA Á ÞANÞOL LÍKAMANS OG SKAPA FURÐUVERÖLD ÞAR SEM SÚRREALÍSKIR HLUTIR GETA GERST. MEÐ ÞÖKK Í HUGA Sinfóníutónleikar í Eldborg Hörpu bbbbm Philharmonia Orchestra lék verk eftir Smetana, Rakhmaninoff og Dvorák. Daniil Trifonov píanó. Stjórnandi: Jakub Hruša. 18. október. „Reyndar stóð öll hljómsveitin undir væntingum, svo vægt sé til orða tekið. […] Novgorod var jafnt fimur sem fjölbreyttur í túlkun; augljós virtúós á uppleið. […] En almennt sá töfrandi sambland fagmennskrar fágunar og innlifaðrar ástríðu um að hleypa hljómkviðu tékkneska meistarans á sópandi flug undir skilvirkri stjórn ungs landa hans, Jakubs Hruša, er var greinilega öllum hnútum kunnugur.“ „Frábær spilamennska vægast sagt – og hefði sannarlega verðskuldað fagnað á fæti.“ Klassískir tónleikar ársins ÞEGAR HORFT ER YFIR ÞÁ GAGNRÝNI SEM KLASSÍSKIR TÓNLISTARRÝNAR MORGUNBLAÐSINS, INGVAR BATES OG RÍKARÐUR ÖRN PÁLSSON, HAFA SKRIFAÐ Á ÁRINU SEM SENN ER AÐ LÍÐA MÁ SJÁ AÐ JAFNT EINLEIKARAR SEM TÓNLISTARHÓPAR HAFA FARIÐ Á KOSTUM. „ÞÚ SÖNGST Á TINDI HEKLU HÁM …“ Kórtónleikar í Eldborg Hörpu bbbbb The King’s Singers söng lög af ýmsu tagi. 16. september „[…] skiluðu hæfileikar, ögun og þrotlausar æfingar sínu svo varla varð á betra kosið. Enda reif eftirminnileg frammistaða sexmenninganna þegar í upphafi hlustendur rækilega upp úr skónum fram að fagnaði á fæti í tónleikalok. Enn ein fjöður í ómvistarorðspor Eldborgar, er skilaði órafmagnaðri barkalist þeirra félaga til yztu kima, þótt halda mætti að fyrra bragði salinn í stærsta lagi fyrir jafnviðkvæma hópsöngsgrein.“ BEZT ALLRA HEIMA Kammertónleikar í Norðurljósum Hörpu á vegum Kammermúsíkklúbbsins bbbbb Coull Quartet lék verk eftir Hafliða Hallgrímsson og Debussy. 1. nóvember. „Vakti ekki sízt forvitni fyrsta framkoma Coull kvartettsins á Íslandi er frumflutti hér nýja endurskoðun Hafliða Hallgrímssonar á 1. og 2. kvartetti hans, enda kvað fereykið löngu hokið af reynslu eftir 41 árs starfsferil og virt að sama skapi með yfir 30 geisladiska á sinni könnu. Túlkunin var […] gegnsýrð æskuþrótti af því tagi sem bezt fer flutningi vandaðrar tónlistar.“ Í FYRRI HÁLFLEIK MEÐ JOHANN SEBASTIAN BACH Einleikstónleikar í Norðurljósasal Hörpu á vegum Kammermúsíkklúbbsins bbbbm Bryndís Halla Gylfadóttir lék verk eftir J.S. Bach. 25. janúar „Afar vel lesin og einbeitt lauk Bryndís Halla heildarflutningi svítna fyrir einleiksselló eftir J.S. Bach með máski full holdlegum brag, en heildarflutn- ingur svítnanna sex er jafnan stóráskorun og stórafrek. Tónhvíld lista- mannsins nú um stundir er verðskulduð þá ferillinn er hálfnaður, en næstu atrennu við svítur Bachs í seinni hálfleik er beðið með eftirvæntingu.“ MILLI STJARNA OG HIMNA Einleikstónleikar í Hallgrímskirkju á Kirkjulistahátíð bbbbb Olivier Latry lék verk eftir m.a. Mobberley og Stravinskíj. 20. ágúst. „Stórbrotnir einleikstónleikar Oliviers Latry, konsertvirtuóss og org- anista við Notre Dame í París. Fágætt úrval franskrar kirkjutónlistar, auk ægifagurra elektrónískra hljómaklasa í verki James Mobberley, „Krítískur massi fyrir orgel og segulband“, lyfti andanum gegnum þekju til him- intungla. Á bónustónleikum fylgdi heiðinn seiður „Vorblóts“ Stravinskíjs fyrir orgel í þjóðarhelgidómnum, minningarkirkju Hallgríms Péturssonar.“ Liminal – Íd í Borgarleikhúsinu bbbbm Eftir Karol Tyminski í samvinnu við dansara verksins. „Í verkum sínum skoðar Tyminski sjálfan líkama dans- arans og svið tilfinninga í gegnum hreyfingu auk þess að fjalla um mannlegt ástand. Hreyfingin sem slík er að vissu leyti umfjöllunarefni og í gegnum sjálfsskoðun dansaranna beinist athyglin að líkamanum og takmörk- unum hans.“ TAKMARKANIR LÍKAMANS TIL SKOÐUNAR Splendour – Sýnt í Gamla bíói á Lókal og RDF Eftir Stinu Nyberg. „Sjö gráklæddar manneskjur dansa með vélrænum hreyfingum við teknótónlist. Samband líkama og hljóðs er einstakt. Dansinn minnir á hljóðfæraleik þar sem tónmyndunin er undirbúin með hreyfingum sem koma sekúndubroti á undan tóninum eins og dans- ararnir skapi hljóðin með hreyfingum sínum. Enga hnökra var að finna á uppfærslunni, dansararnir voru frábærir og sýningin sterk.“ VÉLRÆNT VIÐ TEKNÓTÓNLIST Milkywhale – Sýnt í Tjarnarbíói á Lókal og RDF Eftir Melkorku Sigríði Magnúsdóttur. „Það var frábært að sjá hversu vel [Melkorku] tókst til að fanga athygli áhorfenda með óvæntum uppákomum og öruggri sviðsframkomu. Öll umgjörð verksins var vel úr garði gerð. […] Milkywhale var án efa hápunktur tónlistargjörninga Mel- korku, hressilegt og skemmtilegt verk sem vonandi verður sett á svið sem víðast.“ HÁPUNKTUR TÓNLISTARGJÖRNINGA MELKORKU Schönheitsabend – Sýnt í Tjarnarbíói á Lókal og Reykjavík Dance Festival Eftir Florentinu Holzinger og Vincent Riebeek. „Schönheitsabend er erótískt og vægast sagt gróteskt verk þar sem sýnendum er ekkert heil- agt. Verkið er einstaklega vel unnið, vekur upp sterkar spurningar um samfélagið og heldur áhorfandanum við efnið allan tímann.“ ERÓTÍSKT OG GRÓTESKT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.