Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.12.2015, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.12.2015, Blaðsíða 56
Bækur 56 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.12. 2015 Fyrst verður fyrir ljóðabækur, eftir uppá- haldsskáld, Frelsi eftir Lindu Vilhjálmsdóttur og Blýenglar Óskars Árna. Svo Guðmundur Andri með Og svo tjöllum við okkur í rallið, æskuminningar með pabba hans, Thor Vilhjálms- syni. Þetta verður persónu- leg veisla, ekki bara af því að við erum Vogabúar. Þá er mikil tilhlökkun hjá mér að lesa bók Dagnýjar Kristjáns- dóttur, Bókabörn, og svo Soffíu Auði um Þórberg Þórðarson. Ég ólst upp með Þórbergi, það var lesið úr Sálm- inum um blómið þegar ég fékk að gista heima hjá Tobbu vinkonu, dóttur Helga J. Halldórssonar íslensku- kennara. Svo er Þórbergur Skaftfellingur eins og ég. En um bæði þessi fyrirbæri, skaftfellsku og Þórberg, er ég að verða meira og meira hugsi, út í allar áttir. Steinunn Sigurðardóttir Mér sýnist ljóðið vera ansi sterkt í haust, en ljóðin eru besta loftvogin til að átta sig á tíð- arandanum. Nokkur ný skáld af yngri kynslóð gefa út sínar fyrstu bækur í ár eins og Eydís Blöndal með Tíst og bast sem virðist hressileg. Það er mikilvægt og göfugt að kaupa fullt af bókum eftir unga höfunda sem gefa út sjálfir. Það er fátt skemmtilegra en að vera ungur höf- undur og sækja bók í endur- prentun. Ég ætla að lesa Sölvasögu unglings sem er fyrsta bók Arnars Más Arn- grímssonar, við eigum ekki mikið af raunsæis- sögum úr samtímanum sem takast á við unglingsárin á þeim tím- um sem við lifum einmitt núna. Svo finnst mér texti og hugsun Kristínar Ómars- dóttur alltaf með eðlismassa á við ljóð þannig að Flækingurinn hennar er bók sem ég hlakka til að lesa. Andri Snær Magnason HVAÐ LANGAR HÖFUNDANA AÐ LESA? Kristín Helga Gunnarsdóttir gladdi ís-lensk börn árum saman með Binnusinni, Móa hrekkjusvíni og fleiri eft- irminnilegum persónum en rær nú á mið full- orðinna með bókinni Litlar byltingar – draumar um betri daga, þar sem hún segir sögur af tíu íslenskum alþýðukonum. „Ég skilgreindi bækur mínar aldrei sem barnabækur því fullorðnir lesa þær líka, með börnunum sínum, og þá mega þær ekki vera leiðinlegar fyrir fullorðna. Ég hef reynt að láta Fíu-sól, Móa hrekkjusvín og þetta lið sem sópaðist að baki mér höfða til allra en það má örugglega segja að þetta sé fyrsta bókin mín sem börn nenna ekki að lesa …“ segir Kristín Helga við Sunnudagsblað Morg- unblaðsins um Litlar byltingar. „Það má líklega segja að þetta sé skrýtin bók og mér sýnist sumir ekki vita hvar þeir eigi að staðsetja hana,“ segir höfundurinn. Konan í krukkunni Sagan af tilurð Lítilla byltinga er skondin. „Ég ákvað að skrifa þessa bók og hóf vinnu við hana 2010. Það kom þannig til að föðursystir mín í Kaupmannahöfn féll frá en þar hafði hún búið hálfa ævina. Ég flaug út og var við útför í Kristjánshöfn en dóttir hennar kom svo heim um jólin með jarð- neskar leifar móður sinnar í duftkeri sem hún hafði vafið innan í kasmírullarpeysu og troðið ofan í ferðatösku. Við héldum að hún ætlaði kannski að jarðsetja hana hér á landi en þar sem konunni hefði ekki liðið vel í kuldanum hér, heldur þráð að vera einhvers staðar suður í höfum í hitanum, kom það ekki til greina á þeirri stundu. Við komumst ekki að niðurstöðu um jólin svo duftkerið var með í jólaboðunum og svo fór að við gátum ekki ákveðið, áður en frænka fór aftur út, hvað gera skyldi við leifarnar í eilífðinni. Hún bað mig því að geyma krukkuna.“ Þær Kristín Helga veltu lengi fyrir sér heppilegum geymslustað en þar sem frænka heitin hafði verið selskapsdama varð niður- staðan sú að kerið skyldi standa á borðstofu- skenk Kristínar Helgu. „Þarna stóð þessi græna krukka í eitt ár og varð kveikjan að ótal sögum og upprifj- unum á gömlum sögum og leyndarmálum, bæði af konunni í krukkunni og öðru fólki, ekki síst öðrum konum sem eru farnar. Þá fann ég hve mig langaði að skoða síðustu öld með tilliti til alþýðukvenna; stóru stundirnar, þær góðu og þær erfiðu; hugsaði um allar þessar Siggur, Gunnur og Stínur sem eru farnar. Ég átti nóg af slíkum konum í mínu baklandi og þegar ég fór að hugsa um lang- ömmur, ömmur, frænkur og mömmur fannst mér þær eiga skilið að fá svigrúm sem fulltrúar liðinnar aldar. Ég velti því fyrir mér hvernig við erum afleiðingar af því sem áður var. Ástæðan fyrir því að ég einblíndi svona á konurnar er að tíðarandinn hefur, hvort sem okkur líkar betur eða verr, markað konunni skýran ramma í karlasamfélaginu, jafnvel hér LITLAR BYLTINGAR – DRAUMAR UM BETRI DAGA Þetta eru ekki frægu konurnar ÍSLENSKAR ALÞÝÐUKONUR ERU Í AÐALHLUTVERKI Í NÝRRI SKÁLDSÖGU KRISTÍNAR HELGU GUNNARSDÓTTUR, LITLAR BYLTINGAR – DRAUMAR UM BETRI DAGA. PERSÓNURNAR BYGGIR HÚN Á FORMÆÐRUM SÍNUM. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Það má segja að ég sé alin upp við ferskeytluna, en pabbikenndi okkur systkinunum að kveðast á og ég hef verið aðsemja síðan ég man eftir mér, segir Sigríður Ólafsdóttir, fyrr- verandi dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur sem sendi í haust frá sér fyrstu ljóðabókina, Bikarinn tæmdur. Faðir hennar, Ólafur Tryggva- son, þekktur húðsjúkdómalæknir í Reykjavík, var hagmæltur og ein bók kom út með ljóðum hans, reyndar ekki fyrr en daginn eftir að hann lést. Sigríður hefur mest ort með hefðbundnum bragarhætti en í bók- inni er einnig óhefðbundinn kveðskapur. „Ég fór á ljóðanámskeið fyr- ir allmörgum árum í Endurmenntunarstofnun Háskólans og hélt þá að þar yrði fjallað um reglur bragfræðinnar en áherslan var hins vegar nánast eingöngu á óhefðbundnum kveðskap sem ég kynntist þarna fyrst persónulega, ef svo mætti segja.“ Námskeiðin urðu tvö og hópurinn sem þau sat stofnaði ljóðahóp ásamt kennaranum, Þórði Helgasyni. „Við erum sex sem myndum kjarnann úr þessum hópi og fjögur okkar eru að gefa út bók núna. Það kalla ég góð afköst hjá hópnum! Auk mín er Sigrún Haralds- dóttir að senda frá sér ljóðabók, Ása Marin skáldsögu og Steindór Ívarsson gaf út ljóðabók.“ Sigríður orti í fjöldamörg ár ofan í skúffuna og flíkaði lítt kveð- skap sínum. Segir það líklegast hafa stafað af feimni eða kannski hræðslu við gagnrýni. „Ég fór svo að skríða upp úr skúffunni þegar ég var í Héraðsdómi. Valtýr Sigurðsson, kollegi minn, sem er mikill söngmaður, fór þess á leit við mig að ég semdi texta við lag fyrir síð- ustu sameiginlegu árshátíð dómara og sýslumanna, þegar aðskilnaður dómsvalds og framkvæmdavalds var framundan. Ég tók reyndar dræmt í það í fyrstu en gerði það svo og Valtýr söng lagið á árshá- tíðinni. Boltinn fór þá að rúlla og ég var beðin um að semja ýmsa texta fyrir afmæli og fleiri tækifæri. Ég held því þess vegna fram að Valtýr beri ábyrgð á þessu!“ Umrætt ljóð er í bókinni. Bókina kallar Sigríður Bikarinn tæmdur. Má skilja nafnið sem svo að ljóðabikar hennar sé tæmdur? „Ég valdi ljóðin í þessa bók þannig að hún yrði sýnishorn af því sem ég hef gert í gegnum tíðina. Þar sem ég var að verða sjötug fannst mér líklegt að þetta væri tæming á bikarnum og þannig kom nafnið á bókinni til, en maður veit aldrei. Ég er að minnsta kosti ekki með nein plön um frekari útgáfu. Þurfti samt að koma þessu frá mér; fannst ég komin með ritstíflu og gæti ekki haldið áfram fyrr en ég lyki við bókina.“ skapti@mbl.is BIKARINN TÆMDUR Hef samið síðan ég var barn SIGRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR STARFAÐI SEM DÓMARI VIÐ BORGARDÓMARAEMBÆTTIÐ Í REYKJAVÍK OG SÍÐAN HÉR- AÐSDÓM REYKJAVÍKUR Í FJÓRA ÁRATUGI. HÚN HEFUR ORT SÍÐAN HÚN MAN EFTIR SÉR OG SIGRÍÐUR HÉLT UPP Á SJÖTUGSAFMÆLIÐ Í HAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SENDA FRÁ SÉR FYRSTU LJÓÐABÓKINA, BIKARINN TÆMDUR. Sigríður Ólafsdóttir fyrrverandi dómari orti í mörg ár fyrir skúffuna. Morgunblaðið/Árni Sæberg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.