Fréttablaðið - 03.01.2017, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 03.01.2017, Blaðsíða 40
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Jóns Sigurðar Eyjólfssonar Bakþankar Það var einn dag þegar ég var rétt um tvítugt að ég fór að fikta í hárflóka mínum, sem var þá allmikill, að mér varð ljóst að hár var farið var að þynnast og kollvik farin að hækka á höfði. Það var ljóst hvert stefndi. Svaf ég ekki allan þann vetur. Um tveimur áratugum síðar kemur vinur að máli við mig og segir að óprýði mikil sé af þunnildi þessu á höfðinu. Betra væri að raka það við rót. Kvað ég svo vera skyldu. Kom ég því við hjá honum áður en farið var út á galeiðuna og hófst hann þegar handa við að raka á mér kollinn. Þegar hann var búinn að raka allt nema kóteletturnar kvað hann að hætta bæri leik þá hæst stæði enda kominn tími til að bregða sér á djammið. Í speglinum sá ég miðaldra munk sem var í engu stuði til að fara út á lífið svona til höfuðsins. Eftir miklar samningavið- ræður fékkst vinurinn svo til að ljúka verkinu. Fór ég þá fallegum orðum um sköfuna sem var bæði kraftmikil og góð. Kvað hann þetta þá vera varasköfu sem hann notaði einungis til að raka pung og læri. Hvað sem þessu líður þá er svo komið að ég skil það mæta vel að þetta hafi verið hið mesta þarfa- þing fyrst þegar maðurinn fór að standa uppréttur undir brenn- heitri Afríkusólinni. En hvað eru menn að þvælast með þennan hégóma á höfðinu nú til dags? Og allt vesenið og umstangið í kringum þetta. Hvet ég því unga menn til að huga einungis að því hvort þétt- skipað sé inni í höfðinu en sofa vært þó fækki í flokknum uppi á því. Hugvekja fyrir hárlausa OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN Í ENGIHJALLA, VESTURBERGI OG ARNARBAKKA Þarftu skjóta afgreiðslu á ein- blöðungum, bæklingum, vegg- spjöldum, skýrslum, eða nafn- spjöldum? Þá gæti stafræna leiðin hentað þér. Sendu okkur línu og fáðu verðtilboð. STAFRÆNT 0 3 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :3 3 F B 0 4 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B D 7 -1 2 E C 1 B D 7 -1 1 B 0 1 B D 7 -1 0 7 4 1 B D 7 -0 F 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 0 s _ 2 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.