Morgunblaðið - 09.03.2016, Page 27
útgáfusamning við Dreamworks og
Warner Brothers og lenti í kjölfarið
í miklum hljómleikaferðum um Bret-
land, meginland Evrópu og Norður-
Ameríku. Hljómsveitin gaf út plöt-
una Breath 2001 og fylgdi henni vel
eftir.
Bjarni byrjaði í kvikmyndagerð
og sjónvarpsþáttagerð er hann
starfaði enn með föður sínum og
hellti sér úti þá vinnu er hann hætti í
Leaves árið 2003. Hann hefur unnið
fjölda sjónvarpsþátta og heimild-
arþátta, einkum um sögur hljóm-
sveita og annarra skemmtikrafta,
gerði heimildarmynd um Bubba
Morthens við upptökur í Suður-
Frakklandi, 2005, um Hjálma á Ja-
maica og heimildarmynd um sögu
Grafíkur og Helga Björns.
Síðustu fjögur árin hefur Bjarni
ferðast um heiminn með sýningum á
verkum Dieters Roths og Björns
Roths og unnið heimildarmynd og
fylgt sýningunum eftir með ljós-
myndum og kvikmyndatöku.
Loks starfar Bjarni við hestabúið
á Laxnesi í Mosfellsdal hjá tengda-
foreldrum sínum og heldur sjálfur
bú á Skeggjastöðum í Mosfellsdal.
Áhugamál Bjarna snúast um
hestamennsku, ljósmyndun, kvik-
myndun og þáttagerð auk þess sem
hann hlustar á alla tegund af tónlist
og lemur enn húðirnar af hjartans
lyst: „Ég hef svolítið verið að ganga í
gegnum ferli í tónlist, ljósmyndun og
kvikmyndun og held enn tryggð við
þessi fög. En nú búum við á
Skeggjastöðum með hesta, kindur,
hænur og endur. Ég er því kominn
hringinn: Aftur í sveitina.“
Fjölskylda
Kona Bjarna er Dísa Anderiman,
f. 18.5. 1962, tölvufræðingur. Hún er
dóttir Heiðu Gíslason og Þórarins
Jónassonar, hrossabænda í Laxnesi.
Dóttir Bjarna og Dísu er Brynja
Bjarnadóttir, f. 25.4. 2003.
Stjúpbörn Bjarna eru Chri-
stopher Þórarinn Anderiman, f. 5.3.
1989, lögreglumaður í Reykjavík;
Ingibjörg Sóllilja Baltasarsdóttir, f.
18.3. 1996, nemi við VÍ og starfar við
kvikmyndagerð, búsett í Reykjavík,
og Skjöldur Kristjánsson, f. 5.6.
1999, nemi við MS.
Albróðir Bjarna er Walter Geir
Grímsson, f. 25.11. 1977, leikari í
Reykjavík.
Hálfsystir Bjarna, sammæðra, er
Ingibjörg Karlsdóttir, f. 11.10. 1993,
nemi við HÍ.
Hálfsystkini Bjarna, samfeðra,
eru Íris Grímsdóttir Blandon, f. 24.3.
1973, búsett í Garðabæ; Erla Gríms-
dóttir, f. 12.10. 1986, kvikmynda-
gerðarkona í Reykjavík; Svala
Grímsdóttir, f. 24.7. 1995, stúdent í
Reykjavík, og Grímur Örn Gríms-
son, f. 25.4. 1989, trommuleikari í
Reykjavík.
Foreldrar Bjarna eru Grímur
Bjarnason, f. 23.1. 1955, ljósmyndari
í Reykjavík, og Erla Waltersdóttir,
f. 21.7. 1957, fyrrv. bankastarfs-
maður í Reykjavík.
Stjúpmóðir Bjarna er Heiðrún
Hafsteinsdóttir, f. 11.10. 1958, hót-
elstjóri í Reykjavík.
Stjúpfaðir Bjarna er Baldur Bóbó
Frederiksen, f. 20.3. 1955, fyrrv. út-
fararstjóri.
Úr frændgarði Bjarna Grímsonar
Bjarni
Grímsson
Grímur Bjarnason
tollvörður í Rvík.
Ólöf Guðmundsdóttir
húsfr. í Rvík.
Bjarni Grímsson
fyrrv. frkv.stj. í Rvík.
Hanna María
Gunnarsdóttir
hjúkrunarfr. í Rvík.
Grímur Bjarnason
ljósmyndari í Rvík
Gunnar Thorarensen
versl.m. í Rvík.
Hjálmtýr Heiðdal kvik-
myndagerðarmaður
María Heiðdal fyrrv.
hjúkrunarforstj. í Rvík
Harpa Þórsdóttir forstöðum.
Þróunarsafns Íslands
Anna V. Heiðdal
fyrrv. verðbréfasali
Ólafur Gunnar Guðlaugsson
gr. hönnuður og rithöfundur
HildurWaltersdóttir
bókari í Rvík
Vilhjálmur Heiðal Walt-
ersson húsasm. í Rvík
María GuðrúnWalters-
dóttir verslunarm. í Rvík
Ingibjörg Guðmunds-
dóttir nemi
Elísabet Vilhjámsdóttir
nemi í Kaupm.höfn
Jóhanna Heiðdal
Harðardóttir skrifst.m.
hjá Icelandair
Guðrún Geirsdóttir
húsfr. í Rvík.
Gunnlaugur Loftsson
kaupmaður í Rvík.
Walter Gunnlaugsson
sjómaður í Rvík.
Jóhanna L. Vilhjálmsdóttir
fyrrv. heildsali í Rvík.
Erla Waltersdóttir
fyrrv. bankastarfsm. í Rvík.
Vilhjálmur Heiðdal
Sigurðsson
yfirdeildarstj. Pósts og
síma og forst.m.Víðiness
María Gyða Hjálmtýsdóttir
húsfr. í Rvík.
Arnar Þór Þórsson
kvikmyndagerðarm.
María Guðmunds-
dóttir hjá 365
Daníel Magnús Guðlaugsson
kaupm. í Útivist og sport
Hannes Thorarensen
rannsóknarlögreglum.
Haukur Hólm
fréttam.
Bryndís Guðbjartsdóttir
húsfr. í Rvík
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 2016
Steinar fæddist á Hellissandi9.3. 1928, flutti ungur á Akra-nes og ólst þar upp. Foreldrar
hans voru Kristján Sigurjón Krist-
jánsson, skipstjóri á Akranesi og síð-
ar í Reykjavík, og k.h., Sigríður Vil-
hemína Ólafsdóttir.
Eiginkona Steinars var Sigurjóna
Símonardóttir og eignuðust þau
tvær dætur, Elísabetu Hörpu og
Sigríði.
Steinar lærði prentverk í Hrapps-
eyjarprenti og í Prentverki Akra-
ness og lauk sveinsprófi frá Iðnskól-
anum á Akranesi 1950. Hann
starfaði alfarið við iðn sína í nokkur
ár, var búsettur á Akureyri um hríð
en síðan í Reykjavík, var prentari í
Svíþjóð í nokkra mánuði og síðan á
Írlandi, í Þýskalandi og Danmörku
um skeið. Hann var þó lengst af bú-
settur í Reykjavík.
Steinar snéri sér að ritstörfum
skömmu eftir að hann lauk iðn-
skólanámi, skrifaði undir eigin nafni
og auk þess undir dulnefnunum
Steinar á Sandi, Sjóni Sands og
Bugði Beygluson.
Fyrsta bók Steinars, Hér erum
við, kom út 1955. Helstu önnur verk
hans eru Ástarsaga, útg. 1958; Ham-
ingjuskipti, 1964; Skipin sigla, 1966;
Fellur að, ljóð, 1966; Blandað í svart-
an dauðann, 1967; Brotabrot, 1968;
Farðu burt skuggi, 1971; Djúpið,
1974; Þú, 1975; Sigling, 1978; Sing-
arn Ri, 1986; Sáðmenn, 1989, og
Kjallarinn, 1991. Hann samdi auk
þess leikrit og einþáttunga sem sum
voru flutt í útvarp.Þá gaf hann út
tímarit um bókmenntir og menning-
armál sem hann nefndi Óreglu.
Steinar þótti snemma athygl-
isverður og efnilegur höfundur,
óragur í tilraunagerð, frumlegur og
framúrstefnulegur og að vissu leyti
frumkvöðull módernisma í íslenskri
sagnagerð. Auk þess var hann at-
hyglisvert skáld. Hann var afkasta-
mikill þegar hann skrifaði en því
miður var langvarandi óregla honum
fjötur um fót.
Steinar hefur án efa haft meiri og
varanlegri áhrif á seinni tíma höf-
unda heldur en fremur dræm um-
fjöllun um hann gefur til kynna.
Steinar lést 3.10. 1992.
Merkir Íslendingar
Steinar Sigurjónsson
85 ára
Albert Guðlaugsson
Áslaug Valdemarsdóttir
Ester Guðlaugsdóttir
Helga Þórðardóttir
Sigurður H. Karlsson
Sonja Ingibjörg Kristensen
80 ára
Elsa Stefánsdóttir
Kristján Sæmundsson
75 ára
Elísabet Svavarsdóttir
Kristín Einarsdóttir
70 ára
Brynjólfur Garðar
Lárentsíusson
Ingibjörg Jónsdóttir
Jakob Helgi Þórðarson
Jensína Jónsdóttir
Jón Gústafsson
Margaret Petra Jónsdóttir
Tryggvi Sigtryggsson
Þorlákur Magnússon
60 ára
Elín Þorbjarnardóttir
Helga Þóra Þórsdóttir
Ingibjörg Ingimundardóttir
Jerzy Tadeusz Dubaj
Margrét J. Ísdal
Tryggvi Gunnarsson
50 ára
Atli Sturluson
Álfheiður Katrín Jónsdóttir
Einar Valgeirsson
Halla Hersteinsdóttir
Hrönn Helgadóttir
Bachmann
Kristinn Karl Bjarnason
Kristín Dóra Sigurjónsdóttir
Sigríður Jónasdóttir
Sigríður Margrét
Snorradóttir
40 ára
Arthur Karlsson
Ásbjörn Leví Grétarsson
Ásgerður Hildur
Ingibergsdóttir
Biljana Stojanovic
Bjarni Grímsson
Ewa Zembrowska
Gretar Þór Sæþórsson
Herbert Elvan Heiðarsson
Hjálmdís Zoëga
Magnús Valdimar
Vésteinsson
Magnús Þór Harrýsson
Margrét Helga
Sævarsdóttir
Sigríður Björk
Ólafsdóttir
Steinunn Kristín
Friðriksdóttir
Sveinbjörn Snorri
Grétarsson
Þórður Ásmundsson
30 ára
Amber Rain Tyszka-Perrin
Dawid Jan Jablonski
Elva Hlín Harðardóttir
Ewelina Kulakowska
Heiða Ingvadóttir
Helga Aðalbjörg
Bjarnadóttir
Lukasz Tarasiewicz
Matthías Stephensen
Sóley Thuy Duong Nguyen
Til hamingju með daginn
40 ára Þórður ólst upp í
Mosfellsbæ, býr þar, lauk
prófum í véla- og orku-
tæknifræði frá HR og er
verkefnastjóri hjá Orku
náttúrunnar.
Maki: Erla Sigríður Er-
lingsdóttir, f. 1976, bókari.
Börn: Alexander, f. 2010,
og Eva Karen, f. 2015.
Foreldrar: Ásmundur
Jónatansson, f. 1953, d.
1995, stýrimaður, og Sína
Þorleif Þórðardóttir, f.
1953, móttökustjóri.
Þórður
Ásmundsson
40 ára Sveinbjörn býr í
Garðabæ, lauk prófi í við-
skiptafræði frá HR og er
forstöðumaður hjá Ís-
landsbanka.
Maki: Irena Ásdís Ósk-
arsdóttir, f. 1977, íþrótta-
kennari.
Börn: Kristian Óskar, f.
2004, og Halla Stella, f.
2007.
Foreldrar: Grétar Har-
aldsson, f. 1938, d. 2013,
og Kristín S. Sveinbjörns-
dóttir, f. 1941, d. 1992.
Sveinbjörn S.
Grétarsson
40 ára Steinunn ólst upp
í Reykjavík, býr í Hafn-
arfirði, lauk BA-prófi í
ensku frá HÍ og er þýð-
andi hjá 365 miðlum.
Börn: Jóhanna Kristjáns-
dóttir, f. 2002, og Friðrik
Kristjánsson, f., 2009.
Foreldrar: Jóhann Friðrik
Kárason, f, 1943, fyrrv.
starfsmaður hjá OLÍS, og
Guðríður Dóra Axels-
dóttir, f. 1944, fyrrv.
starfsmaður hjá OLÍS.
Þau búa í Hafnarfirði.
Steinunn K.
Friðriksdóttir
Hægt er að
sendamynd og texta
af nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
VE
R
T
Leikur?
Þetta verður veisla