Fréttablaðið - 10.01.2017, Side 4
www.apotekarinn.is
- lægra verð
NICOTINELL Gildir af öllu lyfjatyggigúmmíi, öllum styrkleikum og pakkningarstærðum. 15%AFSLÁTTUR
Nicotinell-15%-5x10-apotekarinn copy.pdf 1 29/12/16 15:05
Stjórnmál Fjórir þingmenn hafa
óskað eftir fundi í efnahags- og við-
skiptanefnd Alþingis til þess að ræða
skýrslu starfshóps fjármála- og efna-
hagsráðherra um eignir Íslendinga á
aflandssvæðum.
Skýrslan var birt opinberlega á
föstudag. Í fréttum RÚV hefur verið
fullyrt að skýrslunni hafi verið skilað
til ráðuneytisins 13. september og að
Bjarni hafi fengið kynningu á henni
5. október.
Gagnrýnt hefur verið að skýrslan
hafi ekki verið birt opinberlega sam-
stundis, eða fyrir kosningar 29. októ-
ber.
Katrín Jakobsdóttir, formaður VG,
óskaði á laugardag eftir fundi í efna-
hags- og viðskiptanefnd. Nefndar-
mennirnir Logi Einarsson, formaður
Samfylkingarinnar, Elsa Lára Arnar-
dóttir, fulltrúi Framsóknarflokks, og
Smári McCarthy, fulltrúi Pírata, hafa
síðan tekið undir þá ósk.
„Það er forkastanlegt ef menn
hafa verið að halda einhverju svona
gagni frá þinginu,“ segir Logi Einars-
son. „Það er auðvitað rétt að minna
á það að kosningunum er flýtt vegna
þessara mála í tengslum við Panama-
skjölin. Þetta er hluti af sömu
umræðu og það er algjört lykilatriði
að formaður efnahags- og viðskipta-
nefndar boði fund strax í dag eða á
morgun.“
Logi treystir sér ekki til að segja
hvort efni skýrslunnar hefði haft
áhrif á kosningabaráttuna. „Það er
ómögulegt að segja en það er vel
mögulegt.“
Katrín Jakobsdóttir fullyrðir ekki
heldur um slíkt.
„En stóra málið finnst mér vera að
svona gögn á auðvitað bara að birta
þegar þau liggja fyrir. Ég er ekki viss
um að þessi gögn hefðu haft áhrif á
kosningabaráttuna, en það á ekki að
hafa áhrif á það hvenær svon gögn
eru birt,“ segir Katrín.
Slök dómgreind og klúður segir Benedikt
„Það er rosaleg skítalykt af þessu máli,“ segir þingmaður Pírata. Skýrsla um aflandseignir Íslendinga ekki birt fyrr en eftir kosningar.
Formaður Samfylkingarinnar segir forkastanlegt að halda upplýsingum frá almenningi. Slök dómgreind segir formaður Viðreisnar.
Bjarni Benediktsson fékk kynningu á skýrslu um aflandseignir Íslendinga í byrjun
október. Hún var gerð opinber á föstudag. FréttaBlaðið/eyþór
„Það er rosaleg skítalykt af þessu
máli,“ segir Smári McCarthy.
Þingflokkur Pírata sagði í yfir-
lýsingu í gærkvöldi að Bjarni hefði
látið persónulega og pólitíska hags-
muni sína ganga fyrir hagsmunum
almennings með því að birta ekki
skýrsluna þegar hann fékk hana
afhenta.
„Í ljósi þess að fjármálaráðherra
er meðal þeirra Íslendinga sem átt
hefur félag á aflandssvæði var hann
einnig með öllu vanhæfur til að taka
ákvörðun um tímasetningu birtingar
skýrslunnar, hvað þá að fresta henni
um tæpa fjóra mánuði.“
Benedikt Jóhannesson, formaður
Viðreisnar, er formaður efnahags- og
viðskiptanefndar.
Benedikt upplýsti í gær í lokuðum
hópi á Facebook sem trúnaðarmenn
Viðreisnar hafa aðgang að hann
hefði rætt málið við Bjarna og af því
samtali megi ráða að um hafi verið að
ræða frekar „klaufaskap og lélega dóm-
greind en ásetning um feluleik“, eins og
Benedikt segir í færslu sem lesa má hér
að ofan. jonhakon@frettabladid.is
Stjórnmál Svandís Svavarsdóttir,
formaður þingflokks Vinstri-
grænna, sendi umboðsmanni
Alþingis bréf í gær, til að fá úr því
skorið hvort Bjarni Benediktsson
hafi brotið gegn siðareglum ráð-
herra þegar hann ákvað að birta
ekki skýrslu um aflandsfélög fyrr en
allnokkru eftir að hún lá fyrir í ráðu-
neyti hans.
„Mér finnst brýnt að fá mat á því
hvort það samræmist siðareglum ráð-
herra að halda upplýsingum svo lengi
frá almenningi sem raun ber vitni og
ekki síst þegar upplýsingarnar varða
beinlínis samfélagsumræðuna í
aðdraganda kosninga eins og hér er,“
segir Svandís um tilurð þess að hún
sendi umboðsmanni bréfið.
Þar stendur í inngangi gildandi
siðareglna að koma megi á framfæri
ábendingum til umboðsmanns ef
spurningar vakna um brot á siða-
reglunum. Eins og komið hefur fram
hafnar Bjarni því alfarið að hafa setið
á skýrslu starfshópsins fram yfir
kosningar – en hann kannaði umfang
eigna Íslendinga á aflandssvæðum.
Vísbendingar hafa komið fram um að
dagsetningum á skýrslunni hafi verið
breytt, og Bjarni hefur sjálfur beðið
afsökunar á ósamræmi í viðtölum um
hvenær hún var í raun tilbúin.
Svandís telur nauðsynlegt að
ákvörðun Bjarna um að birta
skýrsluna ekki almenningi strax
verði skoðuð í samhengi við 6. grein
c. umræddra siðareglna en þar segir:
„Ráðherra leynir ekki upplýsingum
sem varða almannahag nema lög
bjóði eða almannahagsmunir krefj-
ist þess að öðru leyti. Ráðherra ber
að hafa frumkvæði að birtingu slíkra
upplýsinga sé hún í almannaþágu.“
– shá
Umboðsmaður kanni hvort fjármálaráðherra braut siðareglur
Svandís Svavarsdóttir.
Klúður Bjarna merki um slaka dómgreind
Sæl, ekki þarf að fjölyrða um að
klúðrið í kringum birtingu á skýrslunni
um aflandseyjar og skattaundanskot
er afar slæmt og sýnir að nýrra vinnu-
bragða er þörf.
Þingflokkur okkar heyrði frá BB í
dag og ég hygg að miðað við hans
frásögn hafi verið um að ræða klaufa-
skap og slaka dómgreind en ásetning
um feluleik, það breytir því
ekki að mín skoðun (og allra í
þingflokknum) er sú að hann
hefði átt að birta skýrsluna
strax og hann fékk hana í
hendur.
Einmitt þetta undirstrikar
áherslur okkar um að hugsa
hlutina upp á nýtt.
Vinnubrögð af
þessu tagi verður
að uppræta.
Ég er for-
maður í Efna-
hags- og við-
skiptanefnd
og setti
mig strax í
morgun í
samband
við vara-
formann
um að við
ættum
að boða
til fundar
í nefnd-
inni hið
snarasta. Ég var svo líka í sambandi
við Katrínu Jakobsdóttur, sem bað
um fundinn, og við ræddum um
mögulegan tíma og hverjir ættu
að koma fyrir nefndina. Fundurinn
hefur þegar verið boðaður og verður
haldinn næstkomandi fimmtudag
vegna þess að óskað var eftir því af
einum nefndarmanni að hafður yrði
góður fyrirvari að fundinum.
Skýrslan sjálf er hið þarfasta
plagg og mikilvægt innlegg í
umræðuna. Vegna þess að ég
reikna með að fæstir séu búnir
að lesa hana þá er rétt að undir-
strika að hún fjallar ekki um
neina einstaklinga.
Mikilvægt að
láta þetta mál
ekki yfir-
skyggja allt
okkar góða
starf.
Úr færslu
Benedikts
jóhannes-
sonar,
formanns
Viðreisnar, í
Facebook-
hópi
flokks-
manna.
Mér finnst brýnt að
fá mat á því hvort
það samræmist siðareglum
ráðherra að halda upplýs-
ingum svo lengi frá almenn-
ingi sem raun ber vitni og
ekki síst þegar upplýsing-
arnar varða beinlínis sam-
félagsumræðuna í aðdrag-
anda kosninga.
Svandís Svavarsdóttir alþingismaður
1 0 . j a n Ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð j U D a G U r4 F r é t t I r ∙ F r é t t a B l a Ð I Ð
1
0
-0
1
-2
0
1
7
0
5
:4
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
E
5
-7
C
7
8
1
B
E
5
-7
B
3
C
1
B
E
5
-7
A
0
0
1
B
E
5
-7
8
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
9
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K