Fréttablaðið - 10.01.2017, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 10.01.2017, Blaðsíða 15
Fjölmargir einstaklingar skrifuðu undir ábyrgðir á árunum fyrir efnahagshrunið og jafnvel fyrr. Dæmi eru um að ábyrgðarmenn séu nú að fá greiðsluáskoranir frá fjármála­ stofnunum þar sem þeir eru krafðir um greiðslu á grundvelli ábyrgðar. Getur þetta komið flatt upp á marga, enda í mörgum tilfellum langt um liðið frá því að gengist var í ábyrgðina og lántaki hefur ekki greitt af skuldinni í lengri tíma. Skýringar á þessum langa tíma eru oft þær að lántakar hafa ekki fengið úrlausn sinna mála hjá embætti umboðsmanns skuldara af einhverj­ um orsökum og fjármálastofnanir ekki gengið á ábyrgðarmann á meðan lán­ taki var í greiðsluskjóli. Oftar en ekki eru það foreldrar, makar eða einhverj­ ir nákomnir, sem skrifuðu undir sjálf­ skuldarábyrgð eða veittu veð í fasteign sinni til tryggingar. Allnokkur dæmi eru nú um að fjár­ málastofnanir gangi nokkuð hart fram gegn þessum hópi og innheimti kröfur sínar hjá ábyrgðarmönnum, geti lántaki á annað borð ekki greitt. Mikilvægt er þó að benda ábyrgðar­ mönnum á rétt sinn til að mótmæla kröfum fjármálastofnana, áður en þeir fara huga að því að greiða kröfurnar. Ábyrgðarmenn ættu því að kanna rétt sinn og hvort þeim ber lagaleg skylda til greiðslu. Fjölmörg dæmi eru um að kröfurnar séu hreinlega fyrndar. Í öðrum tilfellum hafa lána­ stofnanir ekki framkvæmt greiðslu­ mat með fullnægjandi hætti og í þeim tilfellum kann að vera að um ógildan­ legar ábyrgðir sé að ræða. Í þessu samhengi athugast að fjár­ málafyrirtækin gæta ekki að hagsmun­ um ábyrgðarmanna. Fjármála fyrir­ tækin benda ábyrgðarmönnum því ekki á að skuldin sé fyrnd eða mistök hafi verið gerð við upphaf lánveitingar sem leiði til þess að ábyrgðin sé ógild og því niður fallin. Þvert á móti eru ábyrgðirnar innheimtar af krafti. En hvað er til ráða fyrir ábyrgðarmenn? Fyrning ábyrgða Í fyrsta lagi kann að vera að krafa fjár­ málafyrirtækisins gagnvart ábyrgðar­ manni sé fyrnd. Um ábyrgðir sem stofnað var til fyrir 1. janúar 2008 gilda eldri fyrningarlög. Samkvæmt þeim lögum fyrnast kröfur á borð við sjálfskuldarábyrgðir á fjórum árum frá þeim tíma sem lánið féll í gjald­ daga. Nokkuð algengt er að ekki hafi verið greitt af kröfum í lengri tíma, t.d. vegna þess að skuldari hafi verið í ferli hjá umboðsmanni skuldara. Séu atvik þau að ekki hafi verið greitt inn á kröfuna í meira en fjögur ár og skuld­ ara hvorki stefnt inn vegna ábyrgðar né tekið hjá honum fjárnám getur sú aðstaða hæglega verið uppi að krafan sé fyrnd gagnvart ábyrgðarmanni. Það athugast að fyrningartími kröfu gagn­ vart lántaka sjálfum er þó yfirleitt annar og lengri. Oft á tíðum reyna fjármálafyrir­ tækin að fá skuldara eða ábyrgðar­ menn til að greiða inn á lánin, í því skyni að rjúfa fyrningu. Slík gylliboð eru gjarnan sett fram af fjármálafyrir­ tækjunum með þeim formerkjum að ábyrgðarmaðurinn fái afslátt af skuldinni ef hann greiði inn á hana, eða ef hann taki nýtt lán til að greiða upp ábyrgðina. Með því kann þó fyrning kröfunnar að rofna og því getur verið varhugavert að skrifa upp á slíka samninga nema að ráðfæra sig við hlutlausa sérfræðinga. Greiðslumat skilyrði Þrátt fyrir að ábyrgð verði ekki talin fyrnd gilda þó ákveðnar reglur um skuldbindingar ábyrgðarmanna sem vert er að kynna sér vel. Í gildi eru lög Að gefnu tilefni: Ábending til ábyrgðarmanna Arnar Ingi Ingvarsson lögmaður Ábyrgðarmenn ættu því að kanna rétt sinn og hvort þeim ber lagaleg skylda til greiðslu. Fjölmörg dæmi eru um að kröfurnar séu hrein- lega fyrndar. um ábyrgðarmenn sem kveða á um að lánastofnun skuli vinna greiðslumat á skuldara og kynna fyrir ábyrgðar­ manni áður en ábyrgðarmaðurinn skrifar undir. Vanræki lánveitandi að sinna þessum skyldum þýðir það að ábyrgðin eða lánsveðið er að öllum líkindum ólögmætt. Lögin tóku gildi vorið 2009 en fram að þeim tíma og allt aftur til ársins 1998 var í gildi samkomulag um sambæri­ legar verklagsreglur við gerð ábyrgða og veðleyfa. Hið sama átti við þar, þ.e. lánastofnunum, sem staðfest höfðu samkomulagið, bar að vinna greiðslu­ mat af skuldara og kynna ábyrgðar­ manni, með þeirri undantekningu að ef lánsfjárhæðin var ein milljón króna eða minna gat ábyrgðarmaðurinn skriflega undanþegið sig þeim rétti að vera kynnt greiðslumat skuldara. Ábyrgðarmenn hugi að réttarstöðu sinni Fjölmörg dæmi eru um að lánastofn­ anir hafi ekki fylgt ofangreindum reglum og að ábyrgðir hafi verið felldar úr gildi í kjölfarið. Þá eru mörg dæmi þess að ábyrgðir séu fyrndar eða við það að fyrnast. Þeir sem hafa gengist í ábyrgð fyrir skuld geta og eiga að kanna stöðu sína að þessu leyti. Hver og einn verður að sækja þennan rétt fyrir sig, þar sem lánveitendur skoða þetta ekki að eigin frumkvæði. Það getur því margborgað sig fyrir ábyrgðar menn að fá óháða sérfræð­ inga til að kanna stöðu sína og hvað varðar fyrningu og lögmæti ábyrgða. s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 15Þ R i ð J u D A G u R 1 0 . J A n ú A R 2 0 1 7 1 0 -0 1 -2 0 1 7 0 5 :4 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B E 5 -8 1 6 8 1 B E 5 -8 0 2 C 1 B E 5 -7 E F 0 1 B E 5 -7 D B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 9 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.