Fréttablaðið - 10.01.2017, Blaðsíða 18
Fólk er kynningarblað
sem býður auglýsendum að
kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana. Í blaðinu er
einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is,
s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351
Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439
| Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433
Vera
einarsdóttir
vera@365.is
www.apotekid.is
AFSLÁTTUR
Hjarta-Aspirín á 20% afslætti út janúar.
Verð áður: 899 kr.Verð nú: 720 kr.
20%
Lægra verð
í Apótekinu
HEILL HEIMUR AF
SKEMMTUN VIÐ HÖNDINA
Stöð 2 Maraþon NOW er ný streymisveita fyrir
snjallsíma, spjaldtölvur, Apple TV og vefspilara.*
2now.is
2.990 KR. Á MÁNUÐI
*Þjónustan er einnig aðgengileg á myndlyklum Símans.
MÍN AÐ SKRÁ SIG
DAGAR FRÍTT3
Námskeiðið var fyrst haldið haust-
ið 2015. Þá var þeim sem lágu inni
á Heilsustofnun NFLÍ boðin þátt-
taka endurgjaldslaust í tilrauna-
skyni. „Þessi aðferð við að létta
byrðarnar og vinna úr erfiðum til-
finningum orkaði nógu vel á þátt-
takendur til þess að við héldum
áfram. Það myndaðist magnaður
andi í hópnum og við fengum frá-
bær viðbrögð,“ segir Steinunn.
Hún segir námskeiðið byggj-
ast upp á textum sem hún og þátt-
takendur velja og er byrjað á sorg
og skuggum. Síðan biður hún um
skrif á þeim nótum. Næst eru þau
lesin upp og rædd. Svo er skipt um
gír og er síðari hluti námskeiðsins
á léttari nótum.
Steinunn segir órjúfanlegan
hluta af ferlinu að hlusta á níundu
sinfóníu Beethovens kvöldið fyrir
síðasta námskeiðsdag. „Ég lét mér
detta það í hug að við hlustuðum
saman á þetta frumlega og magn-
aða tónverk, sem byrjar í drunga
en brýst svo fram í óstöðvandi
gleði eins og klakastífla hafi brost-
ið. Við hlustum í striklotu í slök-
unarstólum Auðarstofu, útafliggj-
andi undir teppi með ljósin slökkt.
Við það gerist eitthvað. Við sem
höfum verið að opna hjörtun og
fara yfir erfiðleika og sorg hlust-
um á þetta saman og úr verður
eitthvað sem hjálpar til heilunar,
vil ég leyfa mér að segja.“
UppbyggingaraFl
En hvernig kviknaði hugmynd-
in upphaflega? „Mér var boðið að
vera staðarrithöfundur við Há-
skólann í Strassborg. Í því fólst að
halda opinbera fyrirlestra og að
kenna skapandi skrif. Það mynd-
aðist ótrúlegt uppbyggingarafl í
nemendahópnum, þar sem hver
studdi annan og þeir feimnustu
blómstruðu. Í kjölfarið lét ég mér
detta í hug hvort það væri hægt
að nota skrif með kerfisbundnum
hætti til þess að byggja upp fólk
sem hefði átt erfitt,“ segir Stein-
unn og bendir á að fæstir fari
reyndar í gegnum lífið án þess að
reyna erfiðleika þó þyngslin sem
þeim fylgi séu mismikil.
Á sjÁlF þUnga líFsreynslU
„Sjálf hefði ég aldrei látið mér
detta í hug að halda námskeið á
þessum nótum ef ég hefði bara
skapandi skriF til úrvinnslU
erFiðra tilFinninga
Rithöfundurinn steinunn sigurðardóttir heldur námskeið í skapandi skrifum á Heilsustofnun NFLÍ í Hveragerði dagana
27.-29. janúar. Námskeiðið er ætlað til uppbyggingar og til úrvinnslu erfiðra tilfinninga.
setið inni á minni tilraunastofu og
fjallað um fólk í skáldsögum, sem
er erfiði og þunga hlaðið. Mín eigin
lífsreynsla er nógu þung og hefur
tekið stóran toll bæði andlega og
líkamlega þó ég hafi sloppið við
klínískt þunglyndi. Ég hef sjálf
þurft að takast á við langvarandi
hremmingar og sársauka. Ann-
ars myndi mér ekki detta í hug að
reyna að forma svona námskeið.“
Þar fyrir utan segir Steinunn
Heilsustofnun NFLÍ kjörstað fyrir
svona uppbyggingarnámskeið og
að án hennar hefði það líklega
aldrei orðið til. „Þetta er einstak-
ur staður sem hefur verið byggð-
ur upp af hugsjón, mannkærleika
og stakri útsjónarsemi í marga
áratugi. Íslendingshjartað mitt er
rótstolt af þessari stofnun og ég er
hrærð yfir að njóta trausts og sam-
starfs þess afburðarfólks sem þar
starfar.“
Námskeiðið er að sögn Stein-
unnar opið öllum. „Konur höfðu
frá upphafi meiri áhuga en karlar
og hingað til hafa eingöngu konur
tekið þátt.“ Að sögn Steinunnar
þurfa þátttakendur alls ekki að
hafa sérstakan áhuga á skrifum
og sannarlega ekki próf í ritsnilld.
„Við erum einungis að nota skrif-
lega tjáningu, í bland við munn-
lega, til að vinna með og vinna úr
erfiðum tilfinningum.
Finna til léttis
Af ummælum þátttakenda að
dæma hafa þeir fundið til mikils
léttis við að sækja námskeiðið og
sáu möguleika í því að nota skrifin
áfram í þeim tilgangi að létta á sér.
„Ég get ekki dæmt um hver lang-
tímaáhrifin hafa verið en trúi því
að þátttakan hafi verið bæði gef-
andi og sérstök.“
Gert er ráð fyrir tólf þátttak-
endum á hverju námskeiði og
vonast Steinunn til að fá tæki-
færi til að þróa það áfram og að
það haldi áfram að rata til sinna.
Steinunn býr og starfar sem fyrr
segir í Strassborg en kemur heim
til að halda námskeiðin. Hún
hefur auk þess haldið áfram með
ritmennsku námskeiðin ytra við
góðan orðs tír.
Með vindinn í Fangið
Steinunn gaf út tvær bækur fyrir
jól; Heiðu – fjalldalabónda og ljóða-
bókina Af ljóði ertu komin. Hún
segir vinnuna í kringum Heiðu
hafa verið ævintýri. „Sérstaklega
vegna þess að það bað mig eng-
inn að skrifa þessa bók. Ég þurfti
að greiða það ansi dýru verða á
vinnslutímanum. Menn sáu ekki
metsöluefni í henni og ég vann
hana með vindinn í fangið. En
Heiða stækkaði með hverju sam-
tali og ég naut gestrisni hennar
og Helgu mömmu hennar þegar
ég settist upp á Ljótarstöðum og
gerði mitt besta til að éta þær út
á gaddinn.“
Steinunn segir samstarfið við
Heiðu hafa verið afburðagott.
„Ekki bara vegna þess hvað hún
er stórkostlegt efni og snjöll að
finna lausnir heldur líka vegna
þess að við skildum hvor aðra, eða
því vil ég leyfa mér að halda fram,
án þess að hafa borið það undir
Heiðu.“ Steinunn segir að komið
hafi á daginn að rífandi áhugi var
á bókinni og er hún númer sjö á
metsölulista 2016.
Á kaFi í ljóðinU
Innt eftir því hvaða bók sé nú í
smíðum segir hún það enn vera
leyndarmál. „Það er þó ekkert
leyndarmál að ég er alltaf á kafi
í ljóðinu.“
steinunn segir skrifin hafa reynst uppbyggjandi fyrir þátttakendur.
1 0 . j a n ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð j U D a G U r2 F ó l k ∙ k y n n I n G a r b l a Ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G a r b l a Ð ∙ h e I l s a
1
0
-0
1
-2
0
1
7
0
5
:4
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
E
5
-9
A
1
8
1
B
E
5
-9
8
D
C
1
B
E
5
-9
7
A
0
1
B
E
5
-9
6
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
9
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K