Fréttablaðið - 10.01.2017, Qupperneq 19
Bílar 1 0 . j a n ú a r 2 0 1 7
N
ú um áramótin voru
skattar á eldsneyti
hækkaðir enn meira,
en mörgum þótti nóg
um áður. Ef til vill það
skrítnasta við þessa hækkun nú
er að gjöldin voru hækkuð meira
á bensín en dísilolíu, eða sem
nemur 4,90 krónum á bensín en
3,72 krónur á dísilolíu. Það er að
flestu leyti á skjön við aðgerðir
annarra ríkja sem reyna nú eftir
fremsta megni að losa lönd sín
við dísilbíla vegna mikillar meng-
unar frá þeim. Allt síðasta ár voru
fjölmiðlar heimsins uppfullir af
upplýsingum um þá miklu NOx-
mengun sem af dísilbílum stafar
og komu þær upplýsingar sem
hrina í kjölfar dísilvélasvindls
Volkswagen. Svo langt vilja menn
ganga í mörgum borgum Evrópu
að þar hefur víða verið kynnt að
dísilbílar verði bannaðir á götum
þeirra frá og með árinu 2025, eða
eftir aðeins átta ár. Í Hollandi öllu
hefur verið mörkuð sama stefna.
Við bruna bensíns myndast nátt-
úrulega efnið CO2 en við bruna
dísilolíu að auki mikið magn NOx-
sótagna sem sannað er að eru
krabbameinsvaldandi og skaðleg
öndunarfærum.
Dísilolía 8 krónum ódýrari
Hér á landi er nú, þvert á stefnu
annarra landa, reynt að gera flest
til þess að stuðla að frekari sölu
og notkun dísilbíla og hérlendis
er skattlagningu á dísilolíu þann-
ig háttað að hún er um 8 krónum
ódýrari en bensín á bensínstöðv-
um landsins og enn skal auka
muninn. Þessi verðlagning, þ.e.
verðmunur á dísilolíu og bensíni,
hefur enda endurspeglast í mik-
illi sölu nýrra dísilbíla á undan-
förnum árum og til dæmis seldust
miklu fleiri dísilbílar hér á landi
í nýliðnum desember en bensín-
bílar. Þegar augu heimsbyggðar-
innar opnuðust loks að fullu á síð-
asta ári fyrir skaðsemi útblásturs
úr dísilbílum, sást það fljótt í sölu-
tölum og í flestum Evrópulöndum
varð erfiðara og erfiðara að selja
dísilbíla. Það er nánast ekki hægt
í Bandaríkjunum og þeir fáu bíla-
framleiðendur sem höfðu selt þar
dísilbíla eru annaðhvort búnir að
taka þá úr sölu eða eru að hugleiða
það. Allir bílaframleiðendur heims
undirbúa sig nú undir brotthvarf
fólksbíla með dísilvélum og yfir-
völd í flestum löndum leggja nú
aukinn mengunarskatt á dísilolíu
og dísilbíla.
Vannýtt tækifæri forgörðum
Það hefði talist í hæsta máta eðli-
legt að ráðandi aðilar hér á landi
hefðu brugðist við þessum stað-
reyndum um mengun dísilbíla
með því að skattleggja dísilolíu
meira en bensín og reyna með því
að hafa áhrif á sölu þeirra. Í Banda-
ríkjunum eru t.d. opinberar álög-
ur hærri á dísilolíu en á bensín.
Þveröfug leið var hins vegar farin
hér og ákveðið við hækkun elds-
neytisverðs að leggja meiri álögur
á bensín en dísilolíu. Þarna fór því
vannýtt tækifæri forgörðum við að
reyna að hafa áhrif á kauphegðun
Íslendinga og með því stuðla að
betri loftgæðum á landinu, heilsu
okkar allra til heilla. Það sannast
ávallt í kauphegðun fólks að veskið
ræður för. Því er ef til vill eðlilegt
að fólk hérlendis kaupi dísilbíla
umfram bensínbíla á meðan elds-
neytið á þá er talsvert ódýrara, auk
þess sem dísilbílar eyða minna
eldsneyti en bensínbílar. Þarna
getur hins vegar löggjafinn gripið
inn í og breytt kauphegðuninni,
svo fremi sem hún skilgreini sig
sem umhverfisvæna, en svo sýnist
ekki nú um stundir.
57,6% dísilbílar í fyrra
og 50,4% fólksbíla
Samkvæmt tölum frá Umferðar-
stofu voru 49% allra nýrra bíla
sem seldust á árinu dísilbílar og
36% bensínbílar. Er þá átt við alla
bíla, svo sem sendibíla. Aðrir bílar
voru knúnir rafmagni, metani eða
blöndu af tveimur orkugjöfum,
svo sem tengiltvinnbílar. Ef skoð-
aðir eru bílar eingöngu knúnir
dísilolíu og bensíni eru dísilbílar
57,6% og bensínbílar 42,4%. Ef
aðeins eru skoðaðir fólksbílar er
hlutfallið 50,4%/49,6% dísilbílum
í vil. Þetta hlutfall er hærra heldur
en gengur og gerist víðast í Evrópu
og hugsanlega hæsta hlutfall dísil-
bíla í allri álfunni. Því má segja að
Ísland sé einn mesti umhverfissóð-
inn er kemur að kaupum á nýjum
bílum.
Ríkið vill
fleiRi mengandi
dísilbíla
Við hækkun
eldsneytisgjalds um
áramótin voru meiri
álögur lagðar á bensín
en dísilolíu og með
því enn og aftur hvatt
til kaupa á dísilbílum
umfram bensínbíla.
4,90
krónur í viðbótarálag á
hvern lítra bensíns frá
áramótum
3,72
krónur í viðbótarálag á
hvern lítra dísilolíu
ÖRUGGT START
MEÐ EXIDE RAFGEYMUM
Endingargóðir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir
flestar gerðir bifreiða. Veldu þaulreynda vöru frá
gæðaframleiðanda.
Exide rafgeymarnir
fást hjá:PIPA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
64
68
7
1
0
-0
1
-2
0
1
7
0
5
:4
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
E
5
-9
A
1
8
1
B
E
5
-9
8
D
C
1
B
E
5
-9
7
A
0
1
B
E
5
-9
6
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
9
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K