Fréttablaðið - 10.01.2017, Page 28

Fréttablaðið - 10.01.2017, Page 28
Finnur Thorlacius finnurth@365.is A llt frá því að Kia kynnti þriðju kyn- slóð Optima-bílsins árið 2010 hafa bíla- áhugamenn mært útlit hans. Bílinn teiknaði Peter Schreyer, aðal- hönnuður Kia frá árinu 2006 og einn best metni bílahönnuður heims þá og nú. Nú er fjórða kyn- slóð Optima komin á markað og er hann á leiðinni til landsins. Peter Schreyer var enn við teikni- borðið við hönnun hans og ef eitt- hvað er hefur bíllinn enn fríkkað og mikið bæst við hvað nýja tækni áhrærir. Það sem meira er að nú hefur bæst við langbakur, tengil- tvinnútgáfa og öflugri gerð hans, en það hefur einmitt verið það sem aðdáendum bílsins hefur þótt skorta á allt til þessa. Margir munu fagna þessu aukna framboði á þessum fallega bíl og er undir- ritaður einn þeirra. Kia Optima er bíll í þeim stærðarflokki fólksbíla sem átt hefur undir högg að sækja bæði hér á landi sem erlendis, ekki síst vegna aukins framboðs á jepplingum. Þó seljast bílar í þessum flokki í skipsförmum um allan heim, en Optima keppir við vinsæla bíla eins og Volkswagen Passat, Ford Mondeo, Mazda6 og Honda Accord, svo einhverjir séu nefndir, en hefur samt tekist vel upp í samkeppninni. Þessi stærðarflokkur bíla er kallaður D-Segment og hefur sala bíla í þeim flokki staðnað á síðustu árum í Evrópu í 1,3 milljóna bíla sölu og er svipaðri sölu spáð á næstu tveimur árum. Enn fremur hefur sala langbaka í D-flokki líka Optima fegurð í fjórum útgáfum reynsluakstur – kia Optima Fjórða kynslóð Optima fæst nú sem langbakur, tengiltvinnbíll, skutbíll og í GT-kraftaútgáfu. Kærkomnar viðbætur á einum fallegasta bíl götunnar. Nýja kynslóðin hlaðin tækni og með glæsilegt innanrými. KosTir og gallar Kia opTima l Bensín- og dísilvél l 141-245 hestöfl l framhjóladrif Eyðsla 4,2 l/100 km í bl. akstri Mengun 110 g/km CO2 Hröðun 10,9 sek. Hámarkshraði 200 km/klst Verð frá 4.690.000 kr. Umboð: Askja l Útlit l aksturseiginleikar l alaðinn búnaði l stýring tekur stundum fram fyrir hendurnar á ökumanni l lágur framendi kia Optima hefur ávallt þótt fagur bíll, en ekki versnaði hann í langbaksgerð. innan líka, en enn hefur Kia bætt í fágunina og efnisvalið betra og sætin frábær. Í GT-útgáfunni eru leðurklædd sportsæti stöguð með rauðum þræði og virkilega fyrir augað. Í tengiltvinnútgáfunni eru leðursæti staðalbúnaður og inn- rétting hans ekki mikill eftirbátur GT-útgáfunnar. Skottrými er gott í þessum stóra bíl, eða 552 og 1.686 lítrar ef aftursætin eru lögð niður. Auk þess eru nokkuð stór geymsluhólf undir farangursgólf- inu sem koma sér vel fyrir verð- mæta hluti og búnað sem alltaf á að vera í bílnum. Margar aðrar sniðugar lausnir fylgja, svo sem farangursnet, stangir á brautum til að hemja farangur, 12 volta tengi og öryggisnet fyrir ofan aftursætin. Stífur, en frábær í akstri Akstur Optima reyndist mjög ánægjulegur, en hann er þó með stífari fjöðrun en flestir keppi- nautar hans. Hún er engu að síður ekki of hörð en sportleg fyrir vikið. Einhverjir myndu kjósa mýkri fjöðrun, en það myndi líklega koma niður á aksturseiginleikun- um. Þeir eru til fyrirmyndar, utan þess að stundum fannst manni að bíllinn væri að leiðrétta sig á vegi og stýringin væri því ekki fullkom- lega á bílstjórans valdi. Með öllum þeim aðstoðarkerfum sem eru í mörgum nýjum tæknivæddum bílum vill þetta oft verða raunin, en telst ekki til kosta að mati greinarskrifara. Mikið af akstursö- ryggisbúnaði er í bílnum, hann staðnæmist sjálfur við aðsteðjandi hættu ef ökumaður gerir það ekki sjálfur, getur sjálfur haldið jöfnu bili frá bílnum á undan, er með blindpunkts- og akreinaskipta- viðvörun, nálgunarvara og í leið- sögukerfi bílsins má sjá leyfilegan hámarkshraða á öllum vegum. Háu ljósin lækka sjálf við aðsteðj- andi umferð, bíllinn leggur sjálfur í stæði og fá má 360 gráðu mynda- vélasýn kringum bílinn. Fá má 490 watta Harman Kardon hljóð- kerfi í bílinn með 8 hátölurum og bíllinn þá sem hljómleikahöll. Skottið opnar sig sjálft með nálg- unarskynjara og sætin eru bæði með hitara og kæli. Þarna fer því hátæknivæddur bíll, en sumt af þessum búnaði þarf að panta sér. 7 gíra sjálfskipting með tvöfaldri kúplingu Optima er nú með 7 gíra sjálf- skiptingu með tveimur kúpling- um sem svínvirkar. Bíllinn kemur með rafstýrðum dempurum frá Sachs og má stjórna aksturshegð- un bílsins með stjórntakka sem einnig hefur áhrif á skiptingar og snúning vélar. 1,7 lítra dísilvélin er nú með 27% minni mengun og ætti það að flytja Optima vel niður um vörugjaldsflokk. Auk þess er vélin 5% sneggri í 100 og með 5% meira tog. Er þessi vél 141 hestafl og með 340 Nm tog. Auk hennar má fá 245 hestafla bensínvél og með henni er bíllinn 7,4 sekúndur í hundraðið. Tengiltvinnútgáfan er 205 hestöfl, með uppgefna 1,6 lítra eyðslu og kemst 980 km á fullum tanki og rafhleðslu. Fyrstu 54 km kemst hann á rafmagninu einu saman. Mjög spennandi bíll þar á ferð með engin vörugjöld og býðst því á góðu verði. Það má því segja að Optima sé nú loks við hvers manns hæfi og ánægjulegt að sjá þessar nýju útgáfur hans. Þarna fer einn fallegasti bíll göt- unnar, hlaðinn nýjustu tækni. Í Optima finnast fáir gallar, aðeins áðurnefnt inngrip í stýringu og fremur lágur framendi bílsins. staðnað í um 50% seldra bíla og er því áfram spáð. Gullfallegur að innan og hlaðinn tækni Kia Optima af fjórðu kynslóð var prófaður í haust í München í Þýskalandi og vart hægt að finna betri aðstæður til að prófa slíkan bíl á bestu vegum álfunnar. Allt í senn voru í prufu sedan-útfærsla bílsins, langbakurinn, GT-kraftaút- gáfan og tengiltvinnbíllinn. Var þar úr mörgu góðu að velja. Afar góð tilfinning var að setjast um borð því á móti manni tekur ein af fallegri innréttingum bíla og vart hægt að greina muninn frá mun dýrari lúxusbílum. Reyndar var þriðja kynslóðin fríð að mikið pláss er í lang­ baksgerð­ inni og allt skipulag til fyrir myndar í öllum gerð­ um bílsins. allt í leðri Tengil­ tvinnbíllinn er klæddur leðri í grunn­ útgáfunni. 1 0 . j a n ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð j U D a G U r10 Bílar 1 0 -0 1 -2 0 1 7 0 5 :4 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B E 5 -8 6 5 8 1 B E 5 -8 5 1 C 1 B E 5 -8 3 E 0 1 B E 5 -8 2 A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 9 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.