Fréttablaðið - 10.01.2017, Page 30
522 4600
www.krokur.net
Krókur er fyrirtæki sem að hefur sérhæft sig í flutningum og björgun ökutækja.
Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð fyrir tjónaökutæki þar sem veitt er ahliða
þjónusta í meðhöndlun tjónabifreiða og annarra bifreiða samkvæmt óskum
viðskiptavina.
Krókur býður m.a. uppá:
• Starfsmenn sem eru þjálfaðir og reyndir í bíla- og tækjaflutningum
Taktu Krók á leiðarenda
Suðurhraun 3, 210 Garðabær
á þinni leið
Æ algengara virðist að stórir bílafram-
leiðendur sniðgangi stærstu bíla-
sýningar heimsins. Franski bílafram-
leiðandinn Peugeot hefur nú tilkynnt
að fyrirtækið ætli ekki að sýna bíla
sína á komandi bílasýningu í Frank-
furt á næsta ári. Það gerir Peugeot
vegna þess að fyrirtækið vill leggja
meiri fjármuni í markaðssetningu á
netinu og með því þurfi að spara í
öðrum markaðskostnaði, þar á meðal
þátttöku á bílasýningum. Hjá Peugeot
hefur markaðskostnaður á netinu
hækkað úr 15 prósentum í 30 á undan-
förnum þremur árum og til stendur
að hækka hann í 50% við enda þessa
áratugar. Peugeot hefur einnig sagt að
fyrirtækið vilji frekar verja fjármunum í
sýningar á bílum sínum þar sem tilvon-
andi kaupendur geta prófað bíla þeirra,
en það er ekki hægt á bílasýningum
eins og í Frankfurt. Enn ein ástæða þess
að Peugeot sniðgengur bílasýninguna
í Frankfurt er sú að markaðshlutdeild
Peugeot í Þýskalandi er aðeins 1,7%.
Peugeot mun væntanlega seint snið-
ganga bílasýninguna stóru í París sem
haldin er annað hvert ár.
Peugeot skróPar á FrankFurt Motor show
Þetta er í annað árið í röð sem
HEKLA blæs til stórsýningar. Í fyrra
sló stórsýningin öll aðsóknarmet
en okkur taldist til að vel yfir
2.000 manns hefðu komið og
notið dagsins með okkur. Allir salir
verða nýttir til hins ýtrasta því við
teflum fram öllum okkar bílaflota.
Auk þess að halda allsherjar bíla-
veislu með úrval tilboða verðum
við með frábærar frumsýningar
og forsýningar, auk þess sem
forsala hefst á ótrúlega flottum
bílum. Ókrýnd frumsýningar-
stjarna dagsins er án efa nýjasti
Q-meðlimur Audi, jepplingurinn
Audi Q2, sem Íslendingar hafa
beðið eftir með óþreyju frá því til-
kynnt var um komu hans á síðasta
ári. Mitsubishi frumsýnir jepp-
linginn ASX með nýju útliti og nýr
Volkswagen up! verður kynntur
til leiks. Volkswagen atvinnubílar
forsýna svo aðra kynslóð lúxus-
pallbílsins Amarok.
skoda kodiaq jeppinn frum-
sýndur
Fyrsti jeppinn í fullri stærð frá
Skoda, Skoda Kodiaq, verður án
efa einn heitasti bíll ársins. Við
höfum fengið gríðarlega mikið af
fyrirspurnum um bílinn og ætlum
að nýta tækifærið og hefja forsölu
á honum á stórsýningunni. Að
auki verður forsala hafin á nýjum
e-Golf með mikið auknu drægi en
samkvæmt NEDC-staðlinum (New
European Driving Cycle) kemst
hann nú allt að 300 kílómetra. Það
verður margt um að vera í sýn-
ingarsölunum; veitingar, tattúbar
fyrir börnin, veltibíllinn verður á
staðnum og reynsluakstur í boði.
Stórsýning
HEKLU 2017
næsta laugardag
Eftir 12 ára veru sem stærsti
lúxusbílaframleiðandi heims
hefur BMW nú fallið í annað sætið
á eftir Mercedes Benz. Benz náði
að selja 2,08 milljónir bíla í fyrra
og þó svo að endanlegar sölutölur
frá BMW séu ekki ljósar enn þá
er alveg víst að Benz hefur tekið
fram úr BMW þetta árið. Þegar
nóvembertölurnar voru ljósar
hafði Mercedes Benz tæplega
70.000 bíla forskot á BMW, en
þá hafði Benz selt 1.993.619 bíla
á móti 1.824.490 bílum BMW. Í
þriðja sæti kom svo Audi með rétt
um 1,8 milljóna bíla sölu. Vöxtur
Mercedes Benz hefur á síðustu
árum verið nokkru hraðari en
hjá bæði BMW og Audi og allar
líkur eru á því að Benz sé komið á
toppinn til að vera og láta þessa
kórónu ekki svo auðveldlega af
hendi á næstu árum.
Mercedes Benz
framúr BMW
1 0 . j a n ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð j U D a G U r12 Bílar
1
0
-0
1
-2
0
1
7
0
5
:4
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
E
5
-9
A
1
8
1
B
E
5
-9
8
D
C
1
B
E
5
-9
7
A
0
1
B
E
5
-9
6
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
9
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K