Fréttablaðið - 10.01.2017, Side 34
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
stjúpfaðir, tengdafaðir og afi,
Gunnar Þórir Þórmundsson
Bakkatjörn 10, Selfossi,
lést á heimili sínu að kvöldi nýársdags.
Útförin fer fram frá Selfosskirkju
fimmtudaginn 12. janúar kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hans
er bent á Krabbameinsfélagið.
Sólrún Ragnarsdóttir
Stefán Þór Gunnarsson Elísa Rós Jónsdóttir
Þórmundur Ingi Gunnarsson
Lilja Björg Gunnarsdóttir
Sigurbjörg Tinna Gunnarsdóttir
Lilja Björk Arnardóttir Bjarni Tómas Jónsson
Ragna Björg Arnardóttir Tyrfingur Guðmundsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts
ástkærs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
Hannesar E. Aðalbjörnssonar
bílamálarameistara,
síðast til heimilis að Heiðarlundi 9.
Sérstakar þakkir fær starfsfólkið á Vífilsstöðum sem og
allir þeir sem gerðu útför hans fallega og hlýlega í alla
staði. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Guðrún Árnadóttir
Árni Hannesson Anna María Emilsdóttir
Sveinbjörn Hannesson Svandís Dagbjartsdóttir
Björn Þór Hannesson
Kristín Halla Hannesdóttir Árni Jón Eggertsson
og barnabörn.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Þór Pálsson
dvalarheimilinu Bæjarási,
Hverahlíð 24, Hveragerði,
lést 4. janúar. Jarðarförin fer fram
16. janúar kl. 13.00 frá Fossvogskirkju.
Atli Heiðar Þórsson
Árni Þórsson Lilja Guðmundsdóttir
Kittý Arnars Árnadóttir
Eyrún Arnars Árnadóttir
og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Sigfríð Lárusdóttir
sjúkraliði,
Reykjaflöt, Hrunamannahreppi,
verður jarðsungin miðvikudaginn
11. janúar kl. 13.00.
Finnbogi Jóhannsson
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigríður Kjartansdóttir
hjúkrunarheimilinu Eir, áður til
heimilis á Aflagranda 40, Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir
31. desember sl. Útför hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sveinbjörg Guðmundsdóttir Jan Ólafsson
Steinunn Þorsteinsdóttir Kristján Pálmar Arnarsson
Guðbjörn Þorsteinsson
barnabörn og langömmubörn.
Ari V. Ragnarsson
fyrrverandi kennari frá
Naustahvammi, Norðfirði,
til heimilis að Lynghólum 24,
Garðabæ,
lést á Sólvangi í Hafnarfirði 1. janúar
2017. Útförin fer fram frá Garðakirkju
mánudaginn 16. janúar kl. 13.00.
Gyða Guðmundsdóttir
Kristrún Halldórsdóttir
Hulda Halldórsdóttir
Sigurður B. Halldórsson
Inga S. Ragnarsdóttir
Gestur J. Ragnarsson
Ástkær móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Margrét Kristjánsdóttir
frá Höfn, Dýrafirði,
Lönguhlíð 3, Reykjavík,
andaðist aðfaranótt 31. desember á
Landspítalanum, Vífilsstöðum. Útförin fer
fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 12. janúar
klukkan 13.00.
Ólafur Halldór Georgsson María Inga Hannesdóttir
Auðun Georg Ólafsson Ásta Einarsdóttir
Kári Pétur Ólafsson Hugrún Birgisdóttir
og langömmubörn.
Ástkær eiginmaður, faðir, stjúpfaðir,
tengdafaðir, afi og sonur,
Þórarinn Viðar Hjaltason
sálfræðingur,
lést á líknardeild LSH í Kópavogi
laugardaginn 17. desember. Útförin
verður gerð frá Neskirkju fimmtudaginn
12. janúar kl. 13.00.
Helga Kristinsdóttir
Elías Pétur Þórarinsson Íris Svala Gunnarsdóttir
Jón Orri Jónsson Margrét Sæný Gísladóttir
Jökull Máni Jónsson
Ólöf Erla Þórarinsdóttir
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir
síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
„Ég og bóndinn erum jafngömul og
eigum afmæli með viku millibili. Við
héldum vígalega veislu þegar við urðum
100 ára saman en nú ætlum við að hafa
annan hátt á,“ segir hestakonan Krist-
björg Eyvindsdóttir á Grænhóli í Ölfusi
sem er sextug í dag. Bóndi hennar er
Gunnar Arnarsson. Saman stunda þau
hrossarækt, útflutning, tamningu, stóð-
hestahald og þjálfun og eru margverð-
launuð fyrir ræktun sína sem lengst af
hefur verið kennd við Auðsholtshjáleigu.
Börnin þeirra tvö, Eyvindur Hrannar og
Þórdís Erla, starfa bæði með þeim.
Nú hyggjast þau hjón fagna árinu
í heild og brydda upp á einhverju
skemmtilegu í hverjum mánuði, saman
og með fjölskyldunni. Þegar er búið að
plana ferð til Eyja í febrúar. „Sonur okkar
spilar með meistaraflokki Selfoss, við
ætlum að fylgjast með strákunum og
gera smá menningar- og frændræknis-
ferð úr þessu,“ segir Kristbjörg, sem er
fædd í Vestmannaeyjum. En hvernig
kynntist hún hestamennskunni?
„Pabbi hafði verið í sveit sem strákur
og ákvað að fá sér hest þegar ég var um
sjö ára. Þá var fyrir aðeins einn hestur í
Eyjum, Gamli Rauður í Gerði, 32 vetra
dráttarklár sem var fyrir löngu kominn á
eftirlaun. Þar með hófst hestamennskan
sem síðan hefur fylgt mér bæði í leik og
starfi. Hún hefur veitt mér ótrúlega lífs-
fyllingu og leitt til kynna af mögnuðu
fólki og hestum, byrjaði sem áhugamál
en breyttist smátt og smátt í að verða
lífsviðurværi.“
Enga tölu kveðst Kristbjörg hafa á
verðlaununum sem þau Gunnar hafa
fengið. „Búið og hrossin okkar hafa
unnið til fjölda verðlauna og auðvitað er
gaman að fá viðurkenningar en ánægjan
kemur þó fyrst og fremst þegar gripirnir
okkar blómstra og fylla okkur stolti.“
gun@frettabladid.is
Heldur upp á árið í heild
Hestakonan Kristbjörg Eyvindsdóttir á Grænhóli í Ölfusi er sextug í dag. Hún heldur upp
á það með markmiðum um að gera eitthvað skemmtilegt í hverjum mánuði ársins.
Hestamennskan hefur fylgt Kristbjörgu frá sjö ára aldri bæði í leik og starfi. Hér er hún að afmarka skeiðvöll.
Við héldum vígalega veislu
þegar við urðum 100 ára saman
en nú ætlum við að hafa annan
hátt á.
1 0 . j a n ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð j U D a G U r18 t í m a m ó t ∙ F r É t t a B L a Ð I Ð
tímamót
1
0
-0
1
-2
0
1
7
0
5
:4
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
E
5
-8
1
6
8
1
B
E
5
-8
0
2
C
1
B
E
5
-7
E
F
0
1
B
E
5
-7
D
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
9
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K