Víkurfréttir - 14.04.1994, Síða 20
| Fyrirtæki,
i stofnanir.
i Getum bætt
við okkur
i bakkamatí
Bilabiónustan
GLJÁI
ÞVOTTUR
BÓN
RYÐVÖRN
DJÚPHREINSUN
BÍIAKRINGLAN
GRÓFIN 8 - S: 14299
Ekið inn frá Bergvegi
98542917
Beint samband
við fréttamann
á kvöldin og um
helgar
OPNUNARTÍMI í
HEIMSENDINGUM
Mánud.- fimmtud. 11:00 - 23:30
Föstud.-laugard. 11:00 - 05:00
Sunnudaga 11:00-01:00
SÍMI 14067
Stœrsta frétta- og auglýsingablaðid á Suðurnesjum
F R E T T I R
/ 5/15 Fimmtudagur 14/4
♦ Séð yfir hið nýja íþróttamannvirki í Grindavík ofan úr vatnsrennibrautinni. Sundlaugin cr 25 metra
löng, alvöru sundlaug.
Myndir: Pnll Ketilsson
Glæsileg sundlavg
vígð á 20 ára
afmæli bæjaríns
Nýtt glæsilegt sundlaugar-
mannvirki í Grindavík var
tekið í notkun sl. laugardag í
tengslum við afmæli bæjarfé-
lagsins. Fyrsta skóflustunga
að sundlauginni var tekin um
mitt ár 1992. Eðvarð Júlíus-
son. forseti bæjarstjórnar
Grindavíkur sagði við vígslu
laugarinnar að með þessu
væri langþráður draumur að
rætast og að sú góða aðstaða
sem nú skapast, verði íþrótta-
fólki hvatning til að skara
frarnúr í sundi, eins og
íþróttafólk í Grindavík hefur
gert á landsvísu, í öðrum
keppnisgreinum.
Aðalverktaki við bygging-
una var Hilmar Hafsteinsson.
Sundlaugin er 25x12,5 metr-
ar. Tveir heitir pottar eru við
hana og vaðlaug með „svepp"
að ógleymdri vatnsrennibraut.
Húsið er ein hæð. með bún-
ingsklefum. tækjarými og
þrekþjálfun í kjallara. Heild-
arkostnaður er um 140 millj-
ónir kr. Kvenfélag Grindavík-
ur og slysavarnardeildin Þór-
katla gaf eftirlitsmyndavélar
af fullkomnustu gerð og þá
gaf Hilmar Hafsteinsson, að-
alverktaki stóra loftljósmynd
af svæðinu.
Að loknum ávörpum og
ræðum blessaði séra Jóna
Kristín Þorvaldsdóttir, sóknar-
prestur sundlaugina. Hjónin
Guðrún Jóelsdóttir og Þorlákur
Gíslason klipptu á borða og
opnuðu laugina formlega.
Fyrsta sprettinn tók svo sund-
konan frækna, Sigrún Huld
Hrafnsdóttir. Grunnskólanem-
ar fengu svo að dýfa fótum
sínum í herlegheitin og prófa
rennibrautina.
♦ Hjónin Guðrún Jóclsdóttir og Þorlákur Gíslason. Þau klipptu á
borða sem strengdur var við enda laugarinnar og opnuðu laugina
þannig formlega.
Innbrot við Seltjörn
Brotist var inn í veiðihúsið við Sel-
tjörn um helgina. Þaðan var stolið
spúnum og ýmsum stangveiðibúnaði.
einnig var útvarpi og fleiru stolið.
Ekki er vitað hver var þarna að verki.
Stálu nammi og
peningum
Tveir 18 ára piltar viðurkenndu
innbrot á Knattborðsstofuna í Sand-
gerði um helgina. Þar stálu þeir sæl-
gæti og einhverju af peningum. Pilt-
arnir voru grunaðir um innbrotið og
það staðfestist við yfirheyrslur.
Brutu póstkassa
Ungir drengir unnu nokkrar
skemmdir á tíu póstkössum í íbúðum
aldraðra í Sandgerði á þriðjudag.
Drengirnir brutu póstkassana sem
voru úr plexigleri. Lögreglan veitti
skemmdarvörgunum tiltal.
Lögreglan:
w
Atak gegn
hraðakstri
-alhr spenni beltin
Lögreglan í Keflavík. Grindavík og
víðar á SV-horninu efnir til sérstaks
umferðarátaks dagana 14.-20. apríl nk.
Þá verður mældur ökuhraði og fylgst
með því hvort menn eru í öryggisbelt-
um. Nú verður sektað grimmt og engir
„sénsar" gefnir. Það er því kominn
tími til að létta á bensínfætinum og
spenna beltin.
MUNDI
Hitar Grindavíkurliðið
upp í nýju vatnsrennibraut-
inni fyrir leikinn i kvöld?
Landsbanki
íslands
Útibúin á Suðurnesjum
Bjóðum góða, ódýra og fljótvirka þjónustu \
i
• Keflavík - Sími 11288 • Leifsstöð - Sími 50350« Sandgerói - Sími 37800 • Grindavík - Sími 68799 ^