Fréttablaðið - 14.01.2017, Page 51

Fréttablaðið - 14.01.2017, Page 51
Þjóðskrá Íslands leitar að öflugum liðsmönnum Hlutverk Þjóðskrár Íslands er að varðveita og miðla upplýsingum um einstaklinga og eignir. Framtíðarsýn okkar er að vera fyrirmyndarvinnustaður, fremst á sviði rafrænna lausna og upplýsingaveita sem innviðir samfélagsins reiða sig á. Hjá Þjóðskrá Íslands starfa yfir 100 öflugir starfsmenn á tveimur starfsstöðvum, í Reykjavík og á Akureyri. Áhersla er lögð á jákvæðan starfsanda og góða vinnuaðstöðu. Gildi Þjóðskrár Íslands eru virðing, sköpunargleði og áreiðanleiki. Almannaskráningardeild er 14 manna deild sem sér um skráningu og upplýsingagjöf úr þjóðskrá. Þar eru skráðar allar upplýsingar um lífsferil einstaklinga. Rétt skráning í þjóðskrá er grunnur allra réttinda einstaklinga í samfélaginu. Starfið felst í daglegri stjórnun og eftirliti með skráningu í þjóðskrá, útgáfu vottorða og gerð og þróun gæðaferla og verklagsreglna. Deildarstjóri almannaskráningar. Reykjavík Menntunar- og hæfniskröfur: • Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi • Marktæk stjórnunarreynsla • Þekking og reynsla af gæðamálum, greiningu og gerð verkferla • Góð færni í að greina og finna lausnir til úrbóta • Þekking og/eða reynsla af opinberri stjórnsýslu • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum • Góð tölvufærni og geta til að tileinka sér nýja tölvutækni • Góð kunnátta í íslensku og hæfni til að miðla upplýsingum í rituðu og töluðu máli • Góð kunnátta í ensku er skilyrði og kunnátta í einu Norðurlandamáli æskileg • Þekking á umhverfi upplýsingaöryggis er kostur Viðkomandi þarf að hafa ríka þjónustulund og vera lausnamiðaður. Um er að ræða starf á stjórnsýslusviði sem felst m.a. í úrlausn lögfræðilegra viðfangsefna á fag- og framleiðslusviðum Þjóðskrár Íslands s.s. á sviði fasteignaskráningar og skráningar í þjóðskrá. Starfið felur í sér málsmeðferð vegna stjórnsýslumála er varða verkefni stofnunarinnar, ráðgjöf innan sem utan stofnunar og samskipti og þjónustu við önnur stjórnvöld, sveitarfélög og almenning. Í starfinu getur einnig falist gerð gæðaferla, verklagsreglna og ritun umsagna við lagafrumvörp og reglugerðardrög. Lögfræðingur. Reykjavík Menntunar- og hæfniskröfur: • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði • Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu • Góð almenn tölvukunnátta og skilningur á upplýsingatækni • Góð kunnátta í íslensku og hæfni til að miðla upplýsingum í rituðu og töluðu máli • Góð kunnátta í ensku er skilyrði og kunnátta í einu Norðurlandamáli æskileg • Þekking og reynsla tengd starfsemi Þjóðskrár Íslands, s.s. á sviði eignaréttar og persónuréttar er kostur • Reynsla af gerð lagafrumvarpa er kostur • Þekking á umhverfi gæðastjórnunar upplýsingaöryggis er kostur • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum Leitað er að einstaklingi sem hefur til að bera ríka þjónustulund, hefur sýnt fram á framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og hefur metnað fyrir verkefnum hverju sinni. Viðkomandi þarf að vera vandvirkur, hafa mikla skipulagshæfileika og getu til að leysa verkefni sjálfstætt og í teymisvinnu. Helstu verkefni eru yfirferð eignaskiptayfirlýsinga, skráning og skoðun mannvirkja, útreikningur fasteignamats og brunabótamats, skráning landfræðilegra upplýsinga, vinnsla í sérhæfðum tölvukerfum, samskipti við fasteignaeigendur og sveitarfélög auk gæða- og þróunarstarfs. Starfsmenn á fasteignaskrársvið. Reykjavík og Akureyri Menntunar- og hæfniskröfur: • Menntun sem nýtist í starfi, til að mynda iðnmeistari, byggingafræðingur, verkfræðingur, landfræðingur • Reynsla af matsstörfum eða fasteignasölu er kostur • Reynsla af útreikningi byggingarkostnaðar er æskileg • Æskilegt að hafa lokið námskeiði í gerð eignaskiptayfirlýsinga • Reynsla af landupplýsingakerfum • Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp • Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum • Talnaglöggur • Gott vald á talaðri og ritaðri íslensku • Góð kunnátta í ensku er skilyrði og kunnátta í einu Norðurlandamáli æskileg Leitað er að einstaklingi sem hefur góða skipulagshæfileika, sýnir frumkvæði, nákvæmni og hraða í vinnubrögðum og hefur ríka þjónustulund. www.skra.is - www.island.is Nánari upplýsingar um störfin má finna á www.skra.is. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar starfsferilskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknir skulu sendar á netfangið starfsumsoknir@skra.is. Umsóknarfrestur er til og með 30. janúar 2017. Athygli er vakin á því, að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum, nr. 464/1996, sem settar eru samkvæmt heimild í 2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. SKÖPUNARGLEÐI ÁREIÐANLEIKI VIRÐING www.skra.is www.island.is Þjónustuver Þjóðskrár Íslands sér um afgreiðslu og upplýsingagjöf til viðskiptavina stofnunarinnar. Afgreiðslur stofnunarinnar eru staðsettar í Reykjavík og á Akureyri og símaver á Akureyri. Starfið felst í daglegri verkstjórn þjónustuvera. Í starfinu felst m.a. að tryggja framúrskarandi þjónustu í framlínu ÞÍ og annast gerð verklagsreglna þjónustuvers. Einnig felst í starfinu umsjón með vinnslu bakvinnsluverkefna sem falin eru þjónustuveri. Deildarstjóri Þjónustuvers. Reykjavík Menntunar- og hæfniskröfur: • Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi • Marktæk stjórnunarreynsla • Reynsla af rekstri þjónustuvers æskileg • Þekking og reynsla af gæðamálum, greiningu og gerð verkferla • Góð færni í að greina og finna lausnir til úrbóta • Þekking og/eða reynsla af opinberri stjórnsýslu • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum • Góð tölvufærni og geta til að tileinka sér nýja tölvutækni • Gott vald á talaðri og ritaðri íslensku • Góð kunnátta í ensku er skilyrði og kunnátta í einu Norðurlandamáli æskileg • Hæfni til að miðla upplýsingum í ræðu og riti Viðkomandi þarf að hafa ríka þjónustulund og vera lausnamiðaður. Verkefnastjóri. Reykjavík Um er að ræða starf á sviði rafrænnar stjórnsýslu. Meginverkefni sviðsins snúa að þróun og rekstri hugbúnaðar undir merkjum upplýsinga- og þjónustuveitunnar Ísland.is. Starfið er fjölbreytt og felst meðal annars í að greina ný þróunarverkefni og stýra þeim, veita ráðgjöf til ráðuneyta, stofnana, þjónustuveitenda og notenda, ásamt því að bregðast við rekstrarvandamálum. Menntunar- og hæfniskröfur: • Próf á háskólastigi, tölvunarfræði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi • Þekking og reynsla af verkefnastjórnun upplýsingatækniverkefna • Frumkvæði, metnaður og nákvæm vinnubrögð • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum • Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp • Góð kunnátta í íslensku og ensku og hæfni til að miðla upplýsingum í rituðu og töluðu máli Leitað er að traustum einstaklingi sem tekur ábyrgð á verkefnum, heldur þeim á áætlun og fylgir þeim eftir til loka. Viðkomandi þarf að hafa skipulagshæfileika, vera lausnamiðaður og geta unnið eftir skilgreindum gæða- og öryggisferlum. 1 4 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :2 4 F B 1 1 2 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B F 2 -7 3 B 4 1 B F 2 -7 2 7 8 1 B F 2 -7 1 3 C 1 B F 2 -7 0 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 1 2 s _ 1 3 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.