Fréttablaðið - 14.01.2017, Side 88

Fréttablaðið - 14.01.2017, Side 88
Menntaskólinn í Skálholti Árið 1846 tók Lærði skólinn eða Latínuskólinn til starfa í Reykjavík í glænýju húsi, sem þá var stærsta bygging á Íslandi. Menntaskólinn í Reykjavík miðar stofnár sitt yfir- leitt við þessi tímamót, þótt sumir vilji halda því til haga að skólinn í Lækjargötu sé í raun framhald af eldri skólum sem starfræktir voru á Bessastöðum, Hólavöllum og í Skál- holti allt frá elleftu öld. Óhætt er að segja að dönsk yfir- völd hafi byggt af metnaði yfir skól- ann í Reykjavík. Húsinu var ætlað að hýsa allt að hundrað nemendur, sem talið var ærið nóg til langrar fram- tíðar, enda tilgangurinn með slíkri skólastofnun einvörðungu sú að framleiða embættismenn, einkum presta, sýslumenn og lækna. Fólksfjölgun og breytingar á sam- félagsgerð leiddu með tímanum til þess að nemendum fjölgaði og stúlkur fengu jafnvel að setjast á skólabekk. Áhersla á latínu og grísku snarminnkaði, en raunvísindi og hin svokölluðu „yngri tungumál“ (enska, franska og þýska) urðu fyrirferðar- meiri á námsskránni. Árið 1904 var nafninu svo breytt í Hinn almenni menntaskóli í Reykjavík, sem fljót- lega var stytt í Menntaskólinn eða bara MR. Þrátt fyrir nemendafjölgunina og fjölbreyttari námsgreinar bar lítið á umræðum um húsnæðismál skólans. Reist var bókhlaða sunnan við skóla- húsið og lítið íþróttahús þar fyrir aftan. Að öðru leyti sættu kennarar og nemendur sig við gamla húsið, enda mörg önnur brýnni verkefni í samfélaginu. Það var fyrst í tíð Jónasar Jóns- sonar frá Hriflu sem ráðherra menntamála að farið var að huga að húsakosti MR. Jónasi var löngum legið á hálsi fyrir að vera andsnúinn stofnunum í Reykjavík, en hann lét þó sinna brýnu viðhaldi. Jafnframt beitti hann sér fyrir því að heimavist yrði á ný komið fyrir í skólahúsinu og var það í samræmi við þá stefnu hans að skólinn skyldi aðgengi- legur efnilegum sveitapiltum en ekki verða reykvískur elítuskóli borgara- stéttarinnar. Það kom líka í hlut Hriflu-Jónasar að skipa nýjan rektor Menntaskól- ans. Úr ýmsum reynslumiklum kenn- urum skólans var að velja, en Jónas hafði annað í hyggju. Hann sótti til starfans ungan náttúrufræðikennara úr Gagnfræðaskólanum á Akureyri, sem var um þær mundir að fá leyfi til að útskrifa stúdenta. Rektorinn nýi, Pálmi Hannesson, var rétt um þrí- tugt. Hann hafði verið hallur undir jafnaðarstefnu en gerðist nú dyggur Framsóknarmaður og sat síðar á þingi og í bæjarstjórn fyrir flokkinn. Siðspilling á mölinni Það kom snemma í ljós að sýn Pálma rektors á skólastarfið var um margt önnur og ferskari en þeirra sem þar höfðu starfað í áratugi. Hann var frjálsari af ýmsum hefðum og óflekk- aður af gildismati reykvískra brodd- borgara. Raunar hafði rektorinn ungi talsverðar efasemdir um hversu heil- brigt samfélagið væri á mölinni. Í ræðum rektors komu ítrekað fram áhyggjur af drykkjuskap nem- enda, tóbaksreykingum, slæpings- skap og innihaldsrýru tómstunda- lífi. Að hans mati fullorðnuðust ungmenni of hratt, fengu ekki að njóta æskuáranna en tileinkuðu sér snemma ósiði þéttbýlisins. Var sú sýn í fullu samræmi við afstöðu Hriflu-Jónasar sem kappkostaði að byggja upp net héraðsskóla til sveita þar sem ungmenni gætu numið í guðsgrænni náttúrunni, laus úr soll- inum. Á fjórða áratugnum, í heimskrepp- unni miðri, komu Menntskælingar sér upp afdrepi í Reykjadal inn af Hveragerði. Selið, eins og skálinn var fljótlega nefndur, varð vettvangur ótal skemmtiferða stúdenta og efldi þannig skólaandann. Rektor taldi þetta hins vegar bara fyrsta skrefið og óskaði eftir stærra landi frá rík- inu með það fyrir augum að skólinn starfrækti sitt eigið bú með hvers kyns landbúnaðarframleiðslu. Með tíð og tíma yrðu sveitastörfin svo hluti af námsskrá skólans og nem- endur dveldu þar mun lengur en bara eina og eina helgi. Búskapardraumar rektors virtust hálfgerðir loftkastalar, þar til atburð- ir í alþjóðamálum beindu kastljósinu að húsnæðismálum skólans. Ísland var hernumið af Bretum vorið 1940 og fljótlega var skólahúsið gamla tekið í þjónustu stríðsrekstursins. Næstu tvö árin var MR að mestu starfræktur í glænýrri aðalbyggingu Háskólans. Óvissan um hvort og hvenær Bret- arnir létu skólabygginguna aftur af hendi og samanburðurinn við nýtt og fullkomið háskólahúsið kom af stað umræðum um framtíðarað- stöðu skólans. Í fyrsta sinn var farið að tala á þeim nótum að gamli skól- inn væri óhentugur og úreltur. Jónas Jónsson var með frumlega lausn á málinu. Hann skrifaði hug- vekju í Tímann og lagði til að mis- tökin frá árinu 1786 yrðu leiðrétt, en þá var Skálholtsskóli fyrst fluttur til Reykjavíkur eftir að öll skólahúsin hrundu í Suðurlandsskjálftanum tveimur árum fyrr. Skömmu síðar gerði Pálmi rektor hugmyndina að sinni. Með því að flytja Menntaskól- ann í Skálholt mætti hrinda í fram- kvæmd draumnum um stórfelldan búrekstur samhliða skólastarfinu. Á nýja staðnum myndu allir nem- endur búa á heimavist, sem myndi efla skólaandann og þroska skóla- piltana – sem yrðu vel að merkja allt piltar, því á nýja staðnum yrðu engar stúlkur en Kvennaskólanum í Reykjavík þess í stað heimilað að útskrifa stúdenta. Ekki var þessari hugmynd Fram- sóknarmannanna tekið með neinum húrrahrópum af stúdentum og kenn- araliði. Bentu ýmsir á að hvað sem sveitarómantík liði, væri Skálholt afleitur staður fyrir framhaldsskóla, enda bæði afskekktur og öfugt við héraðsskólana byði staðsetningin ekki upp á nýtingu jarðhita eða greiðan aðgang að raforku. En boltinn var farinn að rúlla og skyndilega virtist samstaða um að úrbóta væri þörf í húsnæðismálum Menntaskólans. Var hart tekist á um málið á næstu árum. Heimir Þor- leifsson rakti þá sögu vel í verki sínu Sögu Reykjavíkurskóla og er einkum stuðst við frásögn hans í þessari grein. Einn skóli eða fleiri? Ný fræðslulöggjöf var tekin upp árið 1946 með landsprófi. Menntaskól- inn var þar með styttur úr sex árum í fjögur, en fljótlega varð ljóst að fjölg- un nemenda í framhaldsnámi yrði meiri en sem næmi styttingunni. Rektor og ráðherra menntamála, sósíalistinn Brynjólfur Bjarnason, voru sammála um að alltof dýrt yrði að kaupa upp hús í námunda við MR til stækkunar. Betra væri að byggja af metnaði þar sem plássið væri nægi- legt. Í þessu skyni festi Nýsköpunar- stjórnin kaup á landi Laugarness og skyldi skólahúsinu fundinn staður rétt norðan við núverandi húsnæði Listaháskólans. Á svipuðum slóðum hafði Sjómannadagsráð hug á að koma fyrir Dvalarheimili aldraðra sjómanna og gerði skipulagsstjóri ráð fyrir framtíðarstað bæjarsjúkra- húss Reykvíkinga á svæðinu. Um sama leyti voru settar fram hugmyndir um skólabyggingar á Golfskálahæð, á sömu slóðum og höfuðstöðvar Veðurstofunnar standa í dag. Þær teikningar gerðu ráð fyrir gríðarmiklu íþrótta- svæði í tengslum við skólann, enda horfðu íslenskir skólamenn um þessar mundir mikið til bandarískra háskóla sem fyrirmynda og þeirrar íþróttaáherslu sem þar ríkti. Nýsköpunarstjórnin var fram- kvæmdaglöð með eindæmum en vannst ekki tími til að hefjast handa við smíði nýja skólans. Árið 1947 tók við ríkisstjórn Stefáns Jóhanns Stefánssonar sem reyndist mun aðhaldssamari. Gilti það ekki hvað síst um menntamálaráðherrann Eystein Jónsson sem taldi ódýrara að byggja í smærri skrefum innan gamla Menntaskólareitsins. Ekki skorti arkitektana þó metnaðinn þar heldur og til er stórkarlaleg hug- mynd frá Einari Sveinssyni, húsa- meistara Reykjavíkurbæjar. Hún gerði ráð fyrir að gamla skólahúsið yrði fært úr stað og látið liggja með- fram Bókhlöðustíg, bókhlöðunni gömlu yrði hins vegar komið fyrir við Amtmannsstíginn en á grunni gamla skólans risi sex hæða ferlíki. Myndi það húsnæði duga mennt- skælingum höfuðborgarinnar til langrar framtíðar. Féllu hugmyndir af þessu tagi vel í geð hjá stúdentum og kennaraliði sem vildu halda skólanum miðsvæðis og á fornum slóðum. Enn varð stefnubreyting í málinu með stjórnarskiptum árið 1949. Björn Ólafsson, sem tók við ráðu- neyti kennslumála, reyndist sam- mála rektor um skynsemi þess að flytja skólann. Þrýsti ríkið á um það að Reykjavíkurbær legði til landspildu, helst á Klambratúni en til vara á Skildinganesmelum, þar sem Hjónagarðar háskólastúdenta standa nú. Niðurstaðan, eftir nokkurt stapp, varð á árinu 1953 sú að nýr MR skyldi rísa í Hlíðahverfi, nánar tiltekið við Hamrahlíð. Teiknað var gríðarstórt skólahúsnæði ásamt heimavistum, íþróttasvæði, sundlaug og grasagarði. Þá var gert ráð fyrir rektorsbústað syðst á lóðinni. Rektorsbústaðurinn var þó eina mannvirkið sem reis samkvæmt þessum teikningum. Gegnir það í dag hlutverki skátaheimilis fyrir Hlíðarnar. Enn ein stjórnarskiptin komu í veg fyrir að draumur Pálma Hannessonar rættist. Bjarni Bene- diktsson tók við sem menntamála- ráðherra, en hann var andsnúinn flutningum. Hinn nýi ráðherra leitaði álits kennarafundar á því á hvorum staðnum skólinn skyldi vera. Kenn- ararnir völdu Lækjargötu og fól sú ákvörðun jafnframt í sér að einn eða fleiri nýir menntaskólar yrðu á næstu árum stofnaðir í Reykjavík, fyrst MH og því næst Menntaskól- inn við Tjörnina. Hefði vafalaust margt þróast á annan veg ef þessar stofnanir hefðu myndað saman einn risaskóla í Reykjavík. Rektor reyndi sitt besta til að telja kennaraliðinu hughvarf. Hann óttaðist að loforð um miklar nýbygg- ingar á gamla MR-reitnum reyndust lítils virði og skólinn myndi búa við þrengsli næstu áratugina. Sú spá átti líka eftir að rætast. drykkjuskap nemenda, tóbaksreykingum, slæpingsskap og innihaldsrýru tómstundalífi. 1 4 . j a n ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r36 h e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð saga til næsta bæjar stefán pálsson skrifar um frumlegar hug- myndir í skólamálum. 1 4 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :2 4 F B 1 1 2 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B F 2 -3 8 7 4 1 B F 2 -3 7 3 8 1 B F 2 -3 5 F C 1 B F 2 -3 4 C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 1 2 s _ 1 3 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.