Fréttablaðið - 14.01.2017, Síða 108
Sæunn Ingibjörg Marinósdóttir er upp lýsinga full trúi Sam taka græn met isæta á Íslandi. Sam tök in standa fyr ir Veganú aráskor un inni í
annað sinn í ár. Fjölmargir Íslend
ingar taka þátt í áskoruninni þótt
víst sé að mörgum finnist erfitt að
takast á við meiriháttar lífsstíls
breytingar. Umskiptin úr óhófi
desembermánaðar yfir í grænmetis
fæði í janúar er enda stórt stökk.
Sæunn segir mikilvægt að fólk láti
ekki áhyggjur af því að gera rétt eða
rangt ráða för. „Mig langar að gefa
fólki leyfi til að treysta eigin innsæi,
prófa sig áfram og hlusta vandlega
á viðbrögð líkamans við þeirri fæðu
sem í hann er látið. Við erum allt of
fljót að vantreysta okkur sjálfum og
erum almennt allt of áhyggjufull
þegar kemur að næringu og heilsu.
Ef við borðum nóg af heilli jurta
fæðu í alls konar litum og af góðri
fjölbreytni þurfum við ekki að
stressa okkur mikið,“ segir Sæunn
og segir gott að huga að því að borða
á hverjum degi eitthvað af ávöxtum,
grænmeti, hnetum, fræjum og korni.
„En ekki missa okkur í skipulagi
og skráningu. Ekki hafa of miklar
áhyggjur af nýjustu fréttum úr heimi
næringarfræðanna heldur muna
að innst inni vitum við sjálf hvað
er okkur og umhverfi okkar fyrir
bestu,“ segir Sæunn, sem lumar á
góðum ráðum fyrir byrjendur.
„Mörgum finnst erfitt að skipta
um gír í mataræðinu því það tekur
bragðlaukana nokkrar vikur að
venjast nýjum áherslum. Þá flýtir oft
verulega fyrir að taka einn dag eða
nokkra á nýpressuðum safa, þeyt
ingum og e.t.v. yljandi grænmetis
súpum. Það auðveldar umskiptin frá
sætu, sykruðu og feitu mataræði yfir
í hreinni og heilnæmari valkost að
fara í tímabundinn einfaldleika og
í framhaldinu bragðast einfaldasti
matur eins og dýrindis veisla,“ lofar
Sæunn.
„Ég legg áherslu á að fólk næri sig
vel, drekki hágæða safa og þeytinga,
fái sér jafnvel ávexti og grænmeti til
að fylla magann en líti alls ekki á
safadagana sem skyndimegrun eða
átak. Mér finnst t.d. gott að hefja
daginn á næringarbombu sem inni
heldur bæði prótein og góða fitu, fá
mér súpu í hádeginu og næra mig
svo á kaldpressuðum rauðrófusafa,
grænum safa og narta í vatnsmel
ónu fram á kvöldið.“
Hún segir hugarfarið mikilvægt.
Sjálf hugsar hún um það í hvert
skipti sem hún eldar og borðar að
hún geti valið um kosti sem bæta
heilsuna eða aðra sem gera það ekki.
„Þar með er ekki sagt að síðarnefndi
valkosturinn sé bannaður, stundum
tek ég meðvitaða ákvörðun um að
borða óhollari fæðu en venjulega
og þá kýs ég að njóta þess,“ segir
Sæunn. „Almennt legg ég mig fram
um að borða sem mest heila fæðu
úr jurtaríkinu, þ.e. úr hráefnum
sem hafa verið sem minnst unnin
og innihalda alla þá næringu sem
þeim fylgdi frá náttúrunnar hendi.
Ég elska einfaldleika og reyni alltaf
að þróa uppskriftir sem krefjast ekki
meira en 1015 mínútna vinnu enda
njóta góð hráefni sín best þegar
eldunaraðferðirnar eru einfaldar
og innihaldslistarnir stuttir.“
Sæunn lifir vegan lífi og borðar
engar dýraafurðir. „En ég hef aldrei
litið þannig á að eitthvað sé bannað,
heldur einfaldlega eru dýraafurðir
nokkuð sem mig langar aldrei í.
Það er mikilvægt að hafa bannlist
ann sem stystan, helst tóman, en
minna sig á það hvers vegna sumt
er ákjósanlegra en annað þegar mis
munandi möguleikar eru vegnir og
metnir. Smám saman dettur hitt og
þetta út af radarnum og í dag finnst
mér það fjarstæðukennd tilhugsun
að fá mér t.a.m. glas af kóki eða bita
af vínarpylsu, þetta er einfaldlega
ekki lengur hluti af menginu matur
í mínum huga,“ segir Sæunn.
kristjanabjorg@frettabladid.is
Lítil en
farsæl skref
að betri heilsu
Sæunn Ingibjörg Marinósdóttir er veganisti
og gefur þeim góð ráð sem vilja breyta um
lífsstíl á nýju ári. Hún segir mikilvægt að
fara ekki of geyst og gera nokkrar einfaldar
breytingar í einu á mataræðinu. Með tím-
anum detti óhollustan út af matseðlinum.
Sæunn Ingibjörg Marinósdóttir segir gott að missa sig ekki í skipulagi og skráningu og hafa ekki áhyggjur af nýjustu fréttum um næringu. FréttablaðIð/anton brInk
Álfrún Tryggvadóttir, sérfræð-
ingur á skrifstofu fjármála- og
efnahagsráðuneytis, hleypur
úti allt árið og gefur lesendum
góð ráð og lagalistann sem
hvetur hana áfram í kuldanum.
Hún hleypur allt árið og tekur
þátt í flestum þeim keppnis-
hlaupum sem eru í boði yfir
árið.
„Yfir veturinn held ég mér
við með því að taka þátt í
Powerade-vetrarhlaupunum
sem eru einu sinni í mánuði, frá
október til mars. Ég hleyp allan
ársins hring en þó viðurkenni
ég að það er erfiðara að koma
sér af stað i kuldanum, en
alltaf jafn gott þegar hlaupið
er byrjað. Mér finnst best að
hlaupa meðfram sjávarsíðunni
en hleyp i logninu i Þing-
holtunum þegar það er mikill
vindur úti,“ segir Álfrún sem
segir gott að búa sig vel. „Á
veturna er ég i þykkum Nike-
hlaupabuxum, ullarbol og með
góða vettlinga.“
HLeypur útI
aLLt árIð
Mér fInnSt
beSt að
HLaupa
MeðfraM
SjávarSíð-
unnI.
álfrún tryggvadóttir
viðurkennir að það sé
erfiðara að koma sér út
að hlaupa í kuldanum á
veturna. Góður lagalisti hjálpar til.
LagaLIStI áLfrúnar
Freedom! '90
George Michael 93
'til Infinity Souls of Mischief
lovely Day Bill Withers
Call of the Wild GusGus
Paper Planes M.I.A
Hollaback Girl Gwen Stefani
MC's act like they Don't
know KRS-One
fIMM fæðutegundIr SeM Sæunn MæLIr Með
avókaDó
Dásamlega næringarrík fæða sem
ég elska að bæta við matinn minn,
ýmist í þeytinga, sem meðlæti með
kvöldmatnum eða hreinlega ofan
á gott súrdeigsbrauð með ferskum
sítrónusafa og örlitlu flögusalti.
kínóa
Frábær grunnur að máltíð eða stað-
gengill fyrir meðlæti á borð við hrís-
grjón og kúskús. Það er próteinríkt
og nærandi, passar vel með flestu
og má meira að segja skella soðnu
kínóa út í morgunþeytinginn!
Gerjaður Matur
Gerjaður matur er ómissandi og
auðvelt er að auka inntöku góð-
gerla með því að fá sér matskeið af
súrkáli með kvöldmatnum, vegan
kókosjógúrt í morgunmat, kom-
bucha-drykk í hádeginu eða þar til
gerð gerlaskot eftir hentisemi.
baunIr
Baunir eru sífellt að koma sterkari
inn sem einföld og mikilvæg
hollustufæða. Þær eru ekki bara
prótein- og næringarríkar heldur
hefur komið í ljós að þær eru mjög
mikilvægar varðandi stjórn blóð-
sykurs og hafa dempandi áhrif á
blóðsykursveiflur mörgum klukku-
stundum eftir að þeirra er neytt.
Það er auðvelt að bæta baunum
í flestan mat og upplagt að prófa
nokkrar tegundir til skiptis. Fersk
eða frosin ber ættu að vera dagleg
fæða hjá flestum, þau eru svo upp-
full af næringu og andoxunarefnum
auk þess hvað þau eru dásamlega
ljúffeng. Frosin, lífræn ber út í
þeytinginn eða hrærð saman við
morgungrautinn eru gott veganesti
út í daginn.
í dag fInnSt Mér
það fjarStæðu-
kennd tILHugSun að fá Mér
t.a.M. gLaS af kókI eða bIta
af vínarpyLSu.
1 4 . j a n ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r56 L í f i ð ∙ f r É T T a B L a ð i ð
Lífið
1
4
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
F
2
-1
5
E
4
1
B
F
2
-1
4
A
8
1
B
F
2
-1
3
6
C
1
B
F
2
-1
2
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
1
2
s
_
1
3
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K