Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.03.1997, Side 15

Víkurfréttir - 20.03.1997, Side 15
■ Köifíiknattleikur DHL-deildin, undanúrslit KR-ingar snéru dæminu við gegn Keflavík KR jafnaði metin gegn Keflavík á Seltjamamesi á þriðjudagskvöld í annarri viðureign liðanna um rétt- inn til að leika til úrslita um íslandsmeistaratitilinn í körfuk- nattleik karla. Lokatölur urðu 103:93 en staðan í hálfleik var 57:51. „Við fengum á okkur 103 stig sem er alltof mikið og segir okkur það að vörnin var ekki nógu góð. Svæðisvömin klikkaði í seinni hálfleik en þá vomm við ekki nógu hreifanleigir og féllum of langt inn. Við það losnaði um Hermann og hann fékk frið til að skjóta sem gengur ekki. Bow fékk einnig of mikinn frið og því töpuðum við leiknum. 1 kvöld kemur ekkert annað en sigur til greina. Þá verðum við búnir að kippa því sem aflaga fór í síðasta leik í liðinn og munurn beita mör- gum afbrigðum af vamarleik og keyra upp hraðann. Við gerum okkur grein íyrir því að KR-ingar em með mjög gott lið. Leikurinn í kvöld er sá mikilvægasti á tíma- bilinu því verður allt gefið í hann,“ sagði Guðjón Skúlason fyrirliði Ketlavíkur. Staðan í ein- víginu er nú 1:1 og ljóst að liðin þurfa að eigast við a.m.k. tvisvar í viðbót. Næsti leikur fer fram í Keflavík í kvöld kl. 20.00 og sá fjórði á Seltjamamesi á sunnudag kl. 16:00. Komi til ftmmta leiks verður hann í Keflavík á þriðjudag kl. 20.00. I öðrum leiknum snérist dæmið við því nú var það KR sem tryggði sér sigurinn á fyrstu 10 mín seinni hálfleiks, þá skorðu þeir 20 stig á móti 5 Kefla- víkurstigum. Fyrri hálfleikur var mjög skemmtilegur. liðin skomðu grimmt, leikinn var hraður og skemmtilegur bolti sem áhor- fendur kunnu vel að meta. Stórskotalið Keflavíkur sankaði niður þriggja stiga körfum og þar var Falur Harðarson fremstur í flokki og setti niður 20 stig, aftur á móti skoraði hann ekki stig í þeim síðari. Eins og áður segir gerði KR út um leikinn á fyrstu 10 mínútum seinni hálfleiks en þá klikkaði einnig svæðisvörn Keflavíkur og með öguðum leik síðustu 10 mínútumar tryggði KR sér sanngjaman sigur. Stigahæstu menn Keflavíkur: Guðjón Skúlason 22, Falur Harðarson 20, Damon Johnson 20. Grindvíkingar meö þægilega stööu I hinni viðureigninni í fjögurra liða úrslitunum eigast við Grindavík og Njarðvík. Þar eru Grindvíkingar komnir með þægi- lega forystu, 2:0 eftir að hafa sigrað í Njarðvík á þriðjudag 77:90, hálfleikstölur 43:44. Það er ljóst að róðurinn verður eifiður fyrir Njarðvíkinga sem þurfa nú að vinna þtjá leiki í röð ætli þeir sér í úrslitaleikinn og þar af tvo á heimavelli Grindvíkninga. Næsti leikur liðanna fer fram í Grindavík í kvöld kl. 20.00. Fjórði leikurinn, komi til hans verður á sunnudag í Njarðvík en þegar blaðið fór í prentun var ekki vitað hvort hann yrði kl. 16.00 eða 20.00. Komi til fimmta leiks verður hann í Grindavík á þriðjudag kl. 20.00. | Grindvíkingar byrjuðu betur á þriðjudaginn í öðmm leiknum og náðu strax 7 stiga forystu 4:11. Þá gerðu Njarðvíkingar 7 stig í röð og jöfnuðu leikinn 11:11. Það sem eftir lifði fyrri hálfleiks skiptust liðin á að leiða. í seinni hálfleik var jafnræði með liðunum framan af hálfleiknum en síðan dró í sundur og Grindvíkingar tryggðu sér sanngjaman sigur með skyn- sömum leik. Bestir hjá Grindavík voru þeir Jón Kr. og Herman Myers en hjá Njarðvík var Sverrir Þór Sverrisson áberandi bestur. , J>að er erfitt að lenda undir gegn Grindavík en við náðum alltaf að jafna í fyrri leiknum og með smá heppni hefðum við getað unnið þótt það hefði verið stuldur á sigri því þeir vom alltaf yfir. Þetta er þó ekki búið fyrr en Sigga (stuðn- ingsmaður nr. 1 hjá Grindavík) fer að syngja og það hefur hún ekki gert enn þannig að við eigum enn möguleika. Það er ekki uppgjöf í liðinu og ef okkur tekst að vinna í kvöld þá er þetta allt opið á ný. Það er rétt að það er erfitt fyrir okkur að stöðva Herman Myers þar sem hann er stór og sterkur og fær í ofanálag að ýta okkur til og frá en okkur leyfist ekki að gera það sama á móti. Við ætlum þó í sameiningu að stöðva hann því það er ekki fyrir neinn einn mann að stöðva hann með þessu móti,“ sagði Ástþór Ingason þjálfari Njarðvíkinga. Stigahæstu menn Njarðvíkur: Torrey John 18, Friðrik Ragnarsson 17, Kristinn Einarsson 10. Stigahæstu menn Grindavíkur: Herman Myers 31, Jón Kr. Gíslason 14, Helgi Jónas Guðfinsson 11. Anna María hefur ekki gefið út yfirlýsingu um að hún ætli að hætta ! I Morgunblaðinu á þriðjudag ■ birtist grein um það að I burðarásar hjá kvennaliði I Keflavtkur í körfuknattleik | haft ákveðið að hætta. Voru í | þessu sambandi nefndar þær ■ Anna María Sveinsdóttir, ■ Björg Hafsteinsdóttir, Anna ^JVlaría Sigurðardóttir og Mar- grét Sturlaugsdóttir. Víkur- fréttir hefur það eftir áreiðan- legurn heimildum stuðnings- manna að Anna María Sveinsdóttir haft ekki gel'ið út neinar yftrlýsingar um að hún hyggðist hætta körfuk- nattleik og engin ákvörðun um það hafi verið tekin. Anna María Sigurðardóttir ! og Björg Hafsteinsdóttir ■ sögðust vera hættar og I Margrét Sturlaugsdóttir var I óákveðin vegna þess að hún | hafði sagst ætla að hætta sem | Islandsmeistari eins og stóð í ■ Morgunblaðinu. ___________________________I / Hátídarkaffid erfyllt og ilmandi þ með Ijúffengu eftirbragði. ÍÞað nýtur sín best með tertum og eftirréttum. Sannkallað veislu- og páskakaffi. KAFFI T Á R Ferða- og Fræðasetrið m Sandgerði Frædasetrid býður upp á tengsl við náttúru staðarins með áherslu á „effin fjögur" sem eru fjaran, fiskurinn, fuglinn og ferskvatnslífið. Boðið er upp á fjöruferðir, tjarnarferðir og fuglaskoðunarferðir með leiðsögumönnum. I vor og sumar verður auk þess boðið upp á hvalaskoðunarferðir. Inni í Fræðasetrinu er sýning á fuglum frá svæðinu, sýnum frá Botndýrarannsóknarstöðinni (BIOICE), steinasafni og sjóbúrum með sjávardýrum. Auk þess eru víðsjár og gott safn bóka og fræðirita sem gestir geta notað eftir þörfum og margt, margt fleira. Opnunartímar: Laugardaga og sunnudaga kl. 13-17. Frá 1. júní - 31. ágúst er opið virka daga kl. 9-17 og um helgar kl. 13-17. Aðrir tímar eftir samkomulagi. Gjald: Fullorðnir kr. 200, börn 12 ára og yngri kr. 100. Sími/fax: 423-7551 og 897-8007. Ferða- og Fræðasetrið - Fyrir alla! Geymið auglýsinguna. Víkurfréttir 15

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.