Víkurfréttir - 13.01.2000, Qupperneq 18
Jóhanna Margrét Stefánsdóttir
Vallarbraut 2,
áður Völlum,
Njarðvík
lést 12. janúar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Katrín Björk Friðjónsdóttir, Páimi Viðar
Sigríður Friðjónsdóttir, Þórhallur Guðmundsson
Sigurbjörn Smári Friðjónsson, Jenný Lárusdóttir
Eiín Þórðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Raðauglýsingar
Siglingafræði
Námskeið í siglingafræði fyrir
30 tonna próf hefst í Keflavík,
fimmtudaginn 20. janúar.
Upplýsingar í síma 421 1609.
Tkyggingm-
ráðmjmímr
Alþjóða líftryggingarfélagið leitar að
starfsmönnum til starfa við ráðgjöf og
sölu á ýmsum tryggingum.
Við leitum að skemmtilegu og jákvæðu
fólki sem býr yfir þjónustulund, getur
unnið sjálfstætt og er vel máli farið.
Tölvukunnátta er skilyrði.
í boði eru spennandi störf, góð
starfsaðstaða ásamt miklum
tekjumöguleikum. Launagreiðslur
byggjast bæði upp á föstum launum
og sölutengdum árangri.
Nánari upplýsingar veitir
Vala Ingimarsdóttir
í síma 540-1400
eða í tölvupósti, vaia@aiif.is.
Umsóknir er hægt að nálgast á skrifstofu
félagsins eða fá sendar með tölvupósti.
ALÞTÓÐA
LÍFTRYGGINGARFÉLAGIÐ
Ók niður
í SPORTSTÚFAR ]
Ijósastaur
Maður missti vald á bifreið
sinni í Hvassahrauni og ók nið-
ur ljósastaur. Slysið varð á að-
faranótt föstudags. Bifreiðin
lenti utanvegar og lögregla og
sjúkrabifreið voru kvödd á
vettvang. Tveir farþegar vom í
bílnum og þeir voru fluttir á
sjúkrahúsið í Fossvogi.
Góðærið í
Grindavík
Ekkert lát virðist vera á
gróskunni og góðærinu í
Grindavík. Byggingarnefnd
úthlutaði 13 lóðum og veitti
átta byggingarleyfi fyrir ein-
býlis- og parhús á fundi sínum
3. janúar.
Næstum því nóg
Besti leikur Grindavíkurstúlkna í vetur nægði þeim ekki til að
slá Stúdínur út úr bikarkeppni kvenna og em þær því úr leik
48-51. Þær Svanhildur, Stefanía Jóns, Sólveig Gunnlaugs og
Sandra Guðlaugs skoruðu 46 af 48 stigum liðsins en lið IS var
jafnara og því halda þær áfram í bikamum að þessu sinni.
Kristján Brooks til Grikklands
Keflvíkingurinn Kristjáns Brooks gerir það víðreist á þessu
sumri. Nú er kappinn á leið í B-deildina í Grikklandi þar sem
hann hyggst spreyta sig í nokkra mánuði. Samkvæmt
upplýsingum VF hefur verið gerður leigusamningur við gríska
liðið.
íslandsmótið innanhúss um helgina
Keflvíkingar taka þátt í íslandsmótinu í innanhússknattspymu
um helgina en keppt verður í höllinni sem endranær. Okkar
nienn hafa æft af kappi undir stjóm Páls Guðlaugssonar og
forvitnilegt að fylgjast með árangri liðsins í mótinu.
Háifur mánuður í„brasilísku innrásina“
Brasilísku leikmennimir þrír sem Páll Guðlaugsson, þjálfari
Keflavíkur, skoðaði í vor eru væntanlegir til landsins í byijun
febrúar. Subbi gamli hefur það fyrir víst að liðið sé að hugsa
urn að leigja einn þeirra til annars liðs hérlendis.
Tilboð í viðbyggingu
Bæjarráð Reykjanesbæjar
samþykkti á fundi sínum 8.
desember s.l. að taka tilboði
Hjalta Guðmundssonar í við-
byggingu og endurbætur á
Njarðvíkurskóla. Tilboð Hjalta
var lægsta tilboðið sem barst
en það hljóðaði uppá tæpar
150 milljónir eða 95, 2% af
kostnaðaráætlun hönnuða.
Meistarahús lagði einnig fram
tilboð en það var ívið hærra,
eða rúmar 160 milljónir, þ.e.
109,3% af kostnaðaráætlun.
Fyrsta æfingin í næstu viku
I Reykjaneshöllin verður vígð í næstu viku. Jú, garnla fólkið er *
búið að fara í vítaspymukeppni en í næstu viku, þegar fyrsta !
. meistaraflokksæfing Keflvíkinga í knattspymu fer ffam í hús- ,
I inu, þá verður hún loksins vígð. Spuming hvort Kjartan "nagli" |
| Másson gerist vemdari gervigrassins rétt eins og grasvallarins |
I við Sunnubraut. I
Mætir Gunnleifur í Reykjaneshöllina
Subbi gamli leggur alltaf við eyrun þegar íþróttir eru annars
vegar og barst honum til eyma að varamarkvörður KR-inga, .
I Gunnleifur Gunnlaugsson, hefði sést á vappi í kringum \
| Reykjaneshöllina. Hver veit nema handboltahetjan fyrrverandi |
I mæti á fyrstu æfingu Keflavíkurliðsins í Reykjaneshöllinni. I
I_____________________________________________________________I
Happdrætti SÍBS 50 ára
Samband ísl. berklasjúklinga
- SÍBS - var stofnað árið
1938. Þeim hugsjónamönn-
um, sem að þeim samtökum
stóðu, var frá upphafi ljóst að
brýnust væri sú nauðsyn að
koma upp vinnuheimli -
endurhæfingaheimili fyrir þá
sjúklinga sem útskrifuðust af
berklasjúkrahúsunum.
Hugsjónir og stórhugur fóru
saman. Hafist var handa um
uppbyggingu á Reykjalundi
og heimilið tók til starfa hinn
1. febrúar 1945.
En reksturinn og áframhald-
andi uppbygging krafðist
tekna. Þetta var að miklum
hluta tryggt með stofnun
Happdrættis SÍBS. Þörfin
fyrir endurhæfingaraðstöðu
jókst stöðugt enda þótt tækist
að útrýma berklum. Á
Reykjarlundi var þjónustan
stöðugt aukin, nýir sjúklin-
gahópar nutu endurhæfmgar.
Hjarta- og æðasjúklingar og
aðrir brjóstholssjúklingar
njóta þar nú frábærrar þjón-
ustu.
Reykjalundur er í raun alhliða
endurhæfingastofnun - heil-
suþjálfunarstofnun, sem rekin
er með slíkum sóma og myn-
darbrag að til fyrirmyndar er
langt út fyrir landsteinana. Nú
er að rísa nýr leikfimi- og
tækjasalur og sundlaug sem
starfsmenn segja að líkja
megi við byltingu í starfsemi
Reykjalundar.
Landsmenn hafa ávallt staðið
vel við bak hinnar þýðin-
garmiklu starfsemi SIBS og
sýndu það enn með fjármög-
nunarátaki vegna þeirra
framkvæmda sem nú standa
fyrir dyrum. Happdrætti
SÍBS er raunverulega eina
fasta tekjulind samtakanna.
Þjóðin tók happdrættinu strax
afar vel. Kunni að meta
hugsjónir þær sem að baki
lágu, að styðja sjúka til sjálfs-
bjargar.
Með áframhaldandi samstöðu
SÍBS fólks og annarra lands-
manna um að styrkja happ-
drættið þá eflum við heillaríkt
starf SIBS og endurhæfin-
gamiðstöðina á Reykjalundi
enda veit enginn hvort eða
hvenær hann gæti þurft á
þeirri aðstöðu að halda. Svo
er miði einnig möguleiki,
gleymum því ekki.