Víkurfréttir - 23.08.2001, Page 2
Hjá okkurfærðu alltaf
r^ýja rtlmu i vi - • un
með hverri framköllun.„
íkveihja og mihið tjón í Grindavíh
Eldur kom upp í frystihúsi
Fiskimjöls og Lýsis við Ægis-
götu í Grindavík á aðfaranótt
sunnudags en fyrirtækið er í
eigu Samherja. Tilkynnt var
um eldinn laust eftir miðnætti
og slökkvistarfi var að mestu
lokið um sexleytið um morg-
uninn. Ekki vitað til að neinn
hafí verið inni í húsinu þegar
eldurinn kom upp en talið er að
um íkveikju hafi verið að ræða.
Rannsókn málsins stendur nú
yfir.
Slökkvilið Grindavíkur og
slökkviliðið í Keflavík börðust
við eldinn auk varaliðs frá
Keflavíkurflugvelli og björgun-
arsveitir voru einnig í við-
bragðsstöðu. I húsinu, sem er á
þremur hæðum, var frysti-
geymsla, félagsmiðstöð og á
efstu hæðinni var gistirými.
Sjávarafurðir sem geymdar
voru í frystigeymslu á neðstu
hæð hússins, uðu ekki fyrir
skemmdum. Oskar Ævarsson
rekstrarstjóri fyrirtæksisins seg-
ir að tjónið á húsnæðinu hlaupi
á einhverjum milljónum.
Ungir piltar sem stunduðu
hljómsveitaræfingar á efstu
hæð í húsnæðinu í Grindavík,
misstu tækin sín í eldsvoðan-
um, en þeir meta tjónið á um
600 þúsund krónur
Aðstæður til slökkvistarfs voru
ekki góðar í Grindavík þessa
nótt en mjög hvasst var á
staðnum. Fólk frá björgunar-
sveitunum gekk á milli húsa og
hvatti fólk í grenndinni til að
hafa lokaða glugga því mikinn
reyk og óþef lagði yfir nær-
liggjandi hverfi. Mikil ofan-
koma var þessa nótt sem hjálp-
aði til við að halda reyk og
ösku í skefjum, íbúum til mik-
ils léttis.
VF FRÉTTIR
■ Þrír eldsvoðar á nokkrum dögum á Suðurnesjum:
Betur fór en á horfðist
Eldur kom upp í skuttogaran-
um Flaraldi Böðvarssyni AK
sem stendur í bátaskýlinu við
Skipasmíðastöðina í Njarðvík,
um hálfáttaleytið sl. þriðju-
dagsmorgun. Engann sakaði
og tjón á togaranum er lítið.
Eldurinn kom upp þegar verið
var að logskera og er talið víst
að hitaleiðni járnsins hafi
kveikt í nælonnetum í veiða-
færageymslu.
Starfsmenn voru um borð í
bátnum þegar eldurinn kom
upp og sluppu þeir allir út
ómeiddir. Einn þeirra varð var
við ntikinn reyk og við nánari
athugun sá hann eld loga í
veiðafærageymslu á millidekki
í afturenda bátsins. Hann lét
samstarfsmenn sína vita og
reyndu þeir árangurslaust að
slökkva eldinn, þar til slökkvi-
liðið kom á staðinn.
Að sögn Sigmundar Eyþórs-
sonar slökkviliðsstjóra BS kom
eldurinn upp þegar verið var að
logskera og er talið víst að
hitaleiðni jámsins hafi kveikt í
nælonnetum í veiðafæra-
geymslu. „Geymslan er
aðliggjandi vélarrúmi og lager-
rými. Þama em einnig hólf fyr-
ir keðjur þar sem er mikil feiti
og olía og þriggja tonna olíu-
tankur fyrir ljósavél. Eldhætta
var því mikil. I geymslunni
vom m.a. tóg til að binda skip-
ið og fleiri brennanlegir hlutir,
t.d. málningadósir, þynnisbrús-
ar o.fl. Starfsmenn skipsins
höfðu verið að vinna að endu-
bótum í þessum hluta skipsins
og var fjöldi gaskúta á víð og
dreif‘, segir Sigmundur um að-
stæður þegar BS kom á vett-
vang.
Aðgengi var sérstaklega erfitt
en mikill hiti var á millidekk-
inu. Sex reykkafarar voru
sendir inn og þurftu að kafa á
móti hitanum í kolsvartan
reykinn. „Ljóst var að mikill
eldur væri í veiðafærageymslu
og aðstæður því mjög hættu-
legar. Uppi á aðaldekki skips-
ins var unnið að því að opna
lúgur til að hleypa
hitanum út, sem var
grundvallaratriði til
að komast mætti nið-
ur í skipið. Þess má
geta að hitinn í
stáldekkinu, þar sem
slökkviliðsmenn
gengu á, var það
mikill að stígvél,
slöngur og annar
búnaður varð fyrir
miklu hitaálagi", seg-
ir Sigmundur og vil
ítreka að þar sem
unnið er með log-
skurðartæki komi
menn sér upp föstum
vinnureglum og var-
úðarráðstöfunum
sem fyrirbyggi svona
uppákomur, því
þarna mátti litlu
muna.
Eyðibýlið Bæjarsker í Sandgcrði varð eldi að bráð á aðfaranótt sl. laugardags.
Slökkvilið Sandgerðis barðlst við eldinn sem um tíma var inikill í búsinu. Þar hefur ekki ver-
ið búið iini margra ára skcið en liúsið hefur verið vinsæll siðkomustaður ungmenna og talið
að eldur hafi verið borinn að búsinu í nótt. Slökkvilið Sandgerðis naut aðstoðar Brunavarna
Suðurnrnesja við vatnsöfhm til slökkvistarfsins.
GOÐUR TÆKJABUNAÐUR OG HRAUSTUR MANNSKAPUR
Margir stórbrunar hafa orð-
ið á Suðurnesjum á skömm-
um tíma. Þá ber fyrst að
nefna bruna á fiskverkunar-
húsi við Framnesveg í Kefla-
vík, síðan brann eyðibýlið
Bæjarsker við Sandgerði,
Fiskimjöl og Lýsi í Grinda-
vík og nú síðast Haraldur
Böðvarsson AK. Sigmundur
telur það vera hreina tilvilj-
un að þessir brunar hafi
komið upp með svo stuttu
millibili, en suma þeirra niá
rekja til íkveikju.
„Mjög góður árangur hefur
náðst í öllum þessum brun-
um og vil ég þakka það góð-
um og vel þjálfuðum mann-
skap og nýjum búnaði
slökkviliðsins.
Körfubíllinn okkar átti stór-
an þátt í því að slökkvistarf
gekk vel við Framnesveg og í
Grindavík. í Grindavík
þurftum við að koma vatni
upp á þriðju hæð og ég tel
bílinn eiga stóran þátt í
hversu slökkvistarfið gekk
vel þar.“
VIKUR
PRÉTTIR
Útgefandi: Víkurfráttir ehf. kt. 710183-0319, Grundarvegi 23, 260 Njarðvik, simi 421 4717, fax 421 2777
Ritstjóri: Páll Ketilsson, sími 893 3717 pket@vf.is • Framleiðslustjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, simi 898 2222 hbb@vf.is •
Fréttastjóri: Silja Dögg Gunnarsdóttir, sími 890 2222 silja@vf.is • Blaðamaður: Svandis Helga Halldórsdóttir, svandis@vf.is •
Auglýsingar: Jónas Franz Sigurjónsson, franz@vf.is, Hristín Njálsdóttir kristin@vf.is, Jófriður Leifsdóttir, jofridur@vf.is •
Hönnunardeild: Skarphéðinn Jónsson skarpi@vf.is • Kolbrún Pétursdóttir kolla@vf.is Útht, umbrot og prentvistun: Vikurfréttir
ehf. • Prentvinnsla: Oddi hf • Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is eða vikurfrettir.is
2