Víkurfréttir - 23.08.2001, Qupperneq 5
■ Hugmyndir að safnahúsum og ferðaþjónustu í Garði:
SumarlwstaAatniei’fi m 1000 fn safmw
Síðastliðinn miðvikudag fór
fram kynning á hugmynd um
safnahús og ferðaþjónustu í
Garðinum. VA arkitektar sáu
um útfærslu hugmyndanna en
Sigríður Sigþórsdóttir, verkefh-
isstjóri verkefnisins kynnti
hugmyndimar í Byggðasafninu
í Garði. Hreppsnefnd Gerða-
hrepps ákvað á fundi sínum 10.
janúar sl. að fá hugmyndir að
uppbyggingu safnasvæðis á
Garðskaga og að ferðaþjónustu
í hreppnum. Engar ákvarðanir
hafa verið teknar um fram-
kvæmdir en að sögn Sigurðar
Jónssonar, sveitarstjóra hefur
Gerðahreppur ekki bolmagn til
þess að standa undir kostnaði
við framkvæmdina.
í hugmyndinni er gert ráð fyrir
byggingu 1000 fm safnahúss
en núverandi hús byggðasafns-
ins rýma ekki alla muni í eigu
safnsins og lítið pláss er fyrir
fyrirlestra og kynningar í hús-
inu. Húsið myndi sömuleiðis
rýma ferðaþjónustu og veit-
ingaþjónustu. Húsið yrði án-
ingarstaður fyrir þá fjölmörgu
ferðamenn sem leggja leið sína
í Garðinn. Staðseming er áætl-
uð mitt á milli vitanna á Garð-
skaga, f flæðamálinu með sterk
tengsl við sjóinn og fuglalífið í
kring. í húsinu er gert ráð fyrir
samkomustað fyrir heimamenn
en slík þjónusta er ekki til stað-
ar í Garðinum. Við hlið svæðis-
ins yrði tjaldstæði með allri
nauðsynlegri þjónustu fyrir
tjaldferðalanga, húsbíla og
tjaldvagna.
Þá er einnig áætlað að breyta
aðkomu að safninu þannig að
vegurinn lægi á milli núverandi
húss byggðasafnsins og húss
vitavarðar, afmarka göngu- og
hjólaleiðir um svæðið og
tengja þær Sandgerði og
Reykjanesbæ. Á leiðinni væru
áningarstaðir þar sem fólk gæti
sest niður og leitað upplýsinga
um staðinn, fuglalíf og dýralíf
á þar til gerðum skilmm.
Á kynningarfundinum var
mikið fjallað um sumarbú-
staðabyggð en í máli Sigríðar
kom fram að eftirspurn eftir
sumarhúsum fýrir erlenda gesti
væri mikil á landinu. Gert er
ráð fyrir sumarbústaðabyggð í
Leiru þar sem 12-20 sumarhús
væru til útleigu fyrir fjölskyld-
ur. Húsin yrðu í hæfilegri fjar-
lægð hvert frá öðru. I miðju
landinu væri komið upp útiað-
stöðu með leiksvæði og grill-
stæði.
Hugmyndirnar lögðust vel í
viðstadda og ljóst að uppgang-
ur ferðaþjónustu á svæðinu er
mikill. Ljóst er að þessar fram-
kvæmdir eru dýrar og ekki á
færi Gerðahrepps að standa
undir kostnaðin-
um en til greina
kæmi að fjár-
magna uppbygg-
inguna í samstarfi
við yfirvöld eða
aðra aðila. Engar
ákvarðanir hafa
verið teknar um
framkvæmdir og
einingis um hug-
myndir að ræða.
Hrásalat
Aviko
Franskar
KS Lambalæri
og
Lambahryggir
Sími 421 3655
• Njarðvík •
HAGKAUP
Meira úrval - betri kaup
www.hagkaup.is
• Njarðvík •
Daglegar fréttir frá Suðumesium á www.vf.is
5