Víkurfréttir - 23.08.2001, Qupperneq 10
VF LESENDUR
M AÐ U R VIKUNNAR
Jk
Glasið en fullt
af jákvæðni
- segir Guðmundur Maríasson,
myndlistarmaður
Guðniundur Maríasson cr maður vikunnar.
Hann átti hugmyndina að því að félagar í
Myndlistarfélagi Reykjanesbæjar myndu
mála myndir fyrir Ljósanótt, sem væri ekki
bara augnayndi heldur einnig auglýsing fyrir
Ljósanótt. Myndunum er stilit upp í fyrír-
tækjum víða um bæinn en þær eru þrettán
talsins. Guðmundur málaði sjálfur eina mynd
og hún hangi uppi í bæjarskrifstofum
Reykjanesbæjar við Tjamargötu.
Nafn: Guðmundur Maríasson
Fædd/-ur hvar og hvenær: 7. júh' á Flateyri
við Önundarí jörð
Atvinna: Eingöngu við málverkið
Maki: Sigurrós Sæmundsdóttir, d. 3. apríl
1973
Börn: Anna Margrét og Ingigerður
Hvcmig býrð þú? Bý einn í eigin húsnæði
Hvaða bækur ertu að lesa núna? Biblíuna
Hvaða mynd er á músamottunni? Á ekki
tölvu
Uppáhalds spil? Hjartadrottningin
Uppáhalds tímarit? Eráskrifandi af TVF
Uppáhalds ilmur? Sjávarilmur
Uppáhalds hljóð? Að hlusta á kyrrðina í nátt-
úrunni
Hræðilegasta tilfinning í heirni? Að missa sína
nánustu
Hvað er það fyrsta sem þér kemur í hug, þeg-
ar þú vaknar á morgnana? Að láta jákvæðar
hugsanir fylgja mér.
Rússíbani, hræðilegur eða spennandi? Hef
aldrei faríð í rússíbana
Hvað hringir síminn þinn oft áður en að þú
svarar? 2-3 var, þó eftir því hvað er að gera.
Uppáhalds matur? Ný ýsa
Súkkulaði eða vanillu? Súkkulaði
Finnst þér gaman að keyra hratt? Nei
Sefur þú með tuskudýr? Nei
Óveður, spennandi eða hræðilegt? Óvcður
getur aldrei verið spennandi
Hver var fyrsti billinn þinn? VW bjalla
Ef þú mættir hitta hvem sem er? Nelson
Mandela, þann mikla mannvin
Áfengur drykkur? Eg segi eins og Flosi Ólafs-
son sagði forðum; „ég er þorstaheftur“.
I hvaða stjörnumerki ertu? Krabbanum
Borðarþú stönglana af brokkólí? Nei
Ef þú gætir unniö við hvað sem er, hvað væri
það? Málvcrkið og leirmótun
Ef þú mættir velja hárlit þinn hver væri
hann? Þegar é hafði hár var það dökkt, ég
kunni vel við það.
Er glasið hálf tómt cða hálf fullt? Ég reyni að
hafa það fullt af jákvæðni
Uppáhalds bíómyndir? Myndirsem eru
byggðar á sannsögulegum atburðum
Notarðu fingrasetningu á lyklaborð? Ekki til
staðar
Hvað er undir rúminu þínu? Ryk
Uppáhalds talan þín? 7
Byggðahort EFIA og Reyhjanes
Beinir styrkir hafa þó verið litlir
samanberað á árinu 2000 er
Sæbýli í Vogum styrkt um kr. .
500.000 en útborgaðir styrkir
Byggðastofnunar alls voru '
33 milljónir það árið.
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur
tekið í notkun nýtt byggðarkort fyrir
Island og mun það gilda til ársins
2006. Samkvæmt reglum Evrópu-
sambandssins eru byggðastyrkir í
rauninni bannaðir en þó heimilir
með ákveðnum undantekningum.
Sveitarfélögin á Suðumesjuni hafa
verið á byggðakortinu hingað til og
því fengið styrki, nú eru þau utan
kortsins nema Grindavík. Sambandi
sveitarfélaga á Suðurnesjum var
ekki kynnt þetta breytta tyrirkomu-
lag né það borið undir sambandið né
sveitarfélögin á Suðumesjum hvert
fyrir sig. Sveitarstjómarmenn lásu
fréttirnar í fjölmiðlum. Byggða-
styrkimir hafa þó verið tiltölulega
lítill þáttur af samstarfi okkar við
Byggðastofnun en af sjálfsögðu
skipt máli. Áhyggjur okkar hljóta að
beinast að því hvort breytingar verði
á öðru mikilvægu samstarfi
Byggðastofnunar og sveitarfélaga á
Reykjanesi.
Verða Suðurnesin afgangsstærð?
I mínum huga vakna ótal spumingar
í Ijósi þessara breytinga og mun
stjóm SSS leita svara hjá Byggða-
stofnun og Iðnaðarráðuneyti svo
ljóst megi verða hvað eftirlitsstofn-
unin á í raun við jregar talað er um
styrkveitingar. Þá er afar brýnt að fá
skýrt viðhorf Byggðastofnunar um
með hvað hætti stofnunin sem fyrir
er fjárvana og með ótal byggðamál
óleyst mun horfa til svæðisins fram-
vegis. Verða Suðumesin afgangs-
stærð hjá Byggðastofnun?
Þá skýtur það skökku við þegar
horft er til nýsamþykktrar kjör-
dæmabreytingar þar sem Suðumes-
in eru staðfest sem hluti lands-
byggðar en ekki hluti höfuðborgar-
svæðis. Merki um geðþóttaáhrif em
í niðurstöðum um byggðakortið þar
sem sýnt er að íbúar Vatnsleysu-
strandarhrepps dreifast talsvert og
em minni en sem neniur 12.5 ein-
staklingum á ferkílómetra.
Breytast forsendur
fyrir starfsemi MOA?
Meginhlutverk Byggðastofnunar,
samkvæmt lögum um stofnunina, er
að skipuleggja og vinna að ráðgjöf
við atvinnulífið á landsbyggðinni í
samstarfi við atvinnuþróunarfélög
(eignarhaldsfélög), sveitarfélög og
aðra. Hún getur líka gert samninga
við sömu aðila um að annast ráð-
gjöfina. Þetta er ein af forsendum
fyrir starfsemi MOA í nafni sveitar-
félaganna á Suðurnesjum og
Byggðastofnunar. Framlag Byggða-
stofnunar í þetta hlutverk MOA hef-
ur verið 9.120.000,- á ári síðustu ár.
Mun þetta breytast ? Þeirri spum-
ingu er ósvarað í dag og nauðsyn-
legt á fá skýrar línur í.
Þá er vert að hafa í huga að árlegt
framlag til MOA er sameiginlegt
fyrir öll sveitarfélögin á Suðumesj-
um en nú er Grindavík eina sveitar-
félagið inni á byggðakortinu. Raskar
það forsendum fyrir því samkomu-
lagi sem verið hefur? Það væri af-
leitt þar sem ljóst er að markviss
uppbygging atvinnulífs og betri nýt-
ing fjármuna hefur óumdeild fylgt
því fyrirkomulagi sem verið hefur.
Þá er vert að hafa í huga að í reglu-
gerð fyrir Byggðastofnun segir að
stofnunin skal vinna að því að efla
samstarf og samhæfingu í atvinnu-
þróunarstarfsemi. En með starfsemi
og skipulagi MOA hafa sveitarfé-
lögin á Suðurnesjum verið fyrir-
mynd annarra sveitarfélaga um
markvisst samstarf og samhæfingu í
atvinnuþróunarstarfi.
Leiðir Byggðastofnunar
Byggðastofnun aðstoðar fjárhags-
lega með þrennum hætti samkvæmt
nánari reglum þar um, fjárhagsað-
stoðin endurspeglast í 3 leiðum:
1. Stofnunin veitir framlög til verk-
efna á sviði atvinnuuppbyggingar
og nýsköpunar.
2. Stofnunin veitir lán eða ábyigðir.
3. Stofnuninni er heimilt að fjár-
magna áhættusöm verkefni á sviði
atvinnuþróunar og nýsköpunar.
Nauðsynlegt er að Byggðastofnun
og Iðnaðarráðuneyti svari því hvað
nákvæmlega er átt við með orðinu
„Byggðastyrkur “. Eru það ein-
göngu einstök framlög samkvæmt
1. lið hér að ofan og svipar til fram-
lags í töflunni hér fyrir neðan merkt
„Björg-handverkshópur“ kr.
200.000,- á árinu 1999. Eða fellur
undir skilgreininguna líka framlag
til menningarmála á landsbyggð
(fengum 1.000.000 á árinu 2000) og
hugsanlega fleira? Hefur ákvörðun
eftirlitsstofnunar EFTA jafnvel álirif
á allar þrjár leiðimar hvað varðar
Suðumesin utan Grindavíkur? Suð-
urnesjamenn þurfa skýr svör og
stjórn Sambands sveitarfélaga á
Suðumesjum mun kreíjast jteirra.
35 milljónir á 3 árum
Á árunum 1998 - 2000 runnu 35
milljónir til Suðumesja ffá Byggða-
stofnun. Fjármunimir skiptust með
neðangreindum hætti:
1998
Fjarfundabúnaður MOA
1.096.000
Sig. Holm vistvæn Hreinsiefni
500.000
Skrautfiskaeldi Vogum 500.000
Samningur við MOA
9.121.000
Samtals: 11.217.000
1999
Björg handverkshópur 200.000
Laxfiskasafn Jónas P. 300.000
Sjóskoðun ehf. 300.000
Samningur við MOA
9.120.000
Samtals: 9.920.000
2000
MOA menning á landsbyggð
1.000.000
Sæbýli í Vogum 500.000
Eignarhaldsfélag stofnkostn.
3.000.000
Samningur við MOA
9.120.000
Samtals: 13.620.000
Eins og sést á töflunni hefur sam-
starf við Byggðastofhun skipt okk-
ur nokkru máli undanfarin ár. Bein-
ir styrkir hafa þó verið litlir saman-
ber að á árinu 2000 er Sæbýli í
Vogum styrkt um kr. 500.000 en út-
borgaðir styrkir Byggðastofnunar
alls voru 33 milljónir það árið. Nú
er í gangi ákveðið ferli hjá Eignar-
haldsfélagi Suðumesja til að styrkja
félagið og hefur verið unnið eftir
forskrift Byggðastofnunar, sveitarfé-
lögin hafa gert þær breytingar sem
óskað var eftir en nú stendur á
Byggðastofnun að efna sinn hlut.
Þetta er í tengslum við þingsálykt-
unartillögu frá 1999 um byggðamál
þar sem gert er ráð fyrir að Byggða-
stofnun kaupi hlutafé í eignarhalds-
félögum fyrir 40 milljónir á ári.
Verður það vandamál? Ljóst er að
sú ákvörðun Eftirlitsstofnunar
EFTA að taka hluta sveitarfélaga hér
á Suðurnesjum út af svokölluðu
byggðakorti kallar fram nokkra
óvissu um stöðu okkar hér á Suður-
nesjum. Samband sveitarfélaga á
Suðumesjum mun kalla eftir skýr-
um svörum á
næstu dögum.
10