Víkurfréttir - 23.08.2001, Síða 19
UMFN vann Arborg
Njarðvíkingar unnu lið Árborgar 4-1 á Njarðvíkusvelli sl. laugar-
dag. Lcikurinn var liður í síðustu uniferð b-riðils 3. deilda. Kvrir
leikinn var Ijóst að Njarðvíkingar kæmust áfrani í dcildinni.
Fyrsta mark leiksins átti Sævar Gunnarsson þegar rúniur bálftími
var liðinn af leiknuin. Nokkruni mínútuin seinna náðu gestirnir síð-
an að jafna með marki Jens Hjiirleifs Hárðarsonar. Staðan í bállleik
var því 1-1. Á 76. mínútii skoruðu Njarðvíkingar síðan annað mark
sitt en þar var á ferð Kristinn Örn Sævarsson. Stuttu seinna bætti
Sævar Eyjólfsson þriðja markinu við. Sævar gerði síöan út um leik-
inn á 87. mínútu þegar liann skoraði fjóða mark Njarövíkur, 4-1.
Nesprýðismót um helgina
Laugurduginn 23. ágúst verður liuldið knallspymuniót í 3. Ilokki ilrengja a veg-
um knaltspymudeildar Kellavíkur, í boði Nesprýði ehl. Mótið lielsl klukkan
l():(H) og því lýkur um kl 16:20 með verðlaunaalhendmeii oe grillveislu I .eikið
verður á aðalvellinum við 1 Irmgbraut og á Iðuvöllum, el' illa viðrur verður larið i
Reykjuneshöllinu. Þátttökulið verða: Kellavík, Njarðvík. Viðir. Cirindavik,
Þróllur Vogum. Reynir, Sandgerði og I laukar. ar.
Víðismenn í ham og lögðu Sindra
Víðis menn heimsóttu Sindra á laugardag þegar liðinn mættust í 15. umferð
2. deildar Islandsmótsins í knattspymu. Leiknum lauk með 1-2 sigri Víðis
sem er nú í 8. sæti deildarinnar.
Fyrri hálfleikur var rólegur og ekki fyrr en í seinni hálfleik sem líf tók að
færast í leikinn. Víðismenn skoruðu fyrsta markið á 48. mínútu en þar var
að verki Ásgrímur Stefán Waltersson. Heimamenn náðu síðan að jafna þeg-
ar Goran Nikolic skoraði á 60. mínútu. Á 84. mínútu tryggðu gestimir sigur-
inn með marki Atla Vilbergs Vilhelmssonar en þeir vom þá einum færri.
Júlíusi Frey Valgeirssyni úr Sindra var vikið af velli á 8ö. mínútu. Næsti
leikur Víðis er í Garðinum nk. fóstudag gegn Leikni úr Reykjavík en Leikn-
ir er nú með einu stig meira en Víðir.
Reynir kemst ekki í úslit
K.F.S. tryggði sér sæti í úrslitum 3. deildar karla þrátt fyrir tap á móti Reyni.
Liðin em jöfn að stigum í 2 og 3 sæti, en Vestmannaeyjaliðið kemst
áfram á betra markahlutfalli. K.F.S. byrjaði leikinn af krafd, en Reynisliðið
komst þó inn í hann þegar leið á fyrri hálfleikinn. Vestmannaeyingamir
náðu þó að skora á 35. mín þegar Magnús Steindórsson náði að koma knett-
inum í markið hjá Ólafi Viggó Sigurðssyni. Sandgerðingar mótmæltu þó
markinu kröftulega þar sem Magnús virtist leggja boltann fyrir sig með
hendinni. Reynismenn tóku öll völd á vellinum eftir markið og Marteinn
Guðjónsson jafnaði metin tveimur mínútum seinna.
I seinni hálfleik sótti Reynir stanslaust og komst K.F.S. vart yftr miðju..
Reynismenn náðu þó ekki að nýta sér þau fjöldamörgu færi sem gáfust fyrr
en tveimur mínútum fyrir leikslok. Þá náði Ari Gylfason að renna boltanum
í homið hjá Papa Ndaw í marki K.F.S. Það mark kom of seint fyrir Reynis-
menn. Þeir unnu leikinn, en vantaði tvö mörk til viðbótar til að komast upp
fyrir K.F.S. Þess má geta að leikurinn tafðist um 50 mínútur þar sem dómari
leiksins mætti of seint.
RKV í baráttu um úrslitasæti
Sameiginlegt lið Reynis, Keflavíkur og Víðis í meistaraflokki kvenna er nú í
hörkubaráttu um að komast í úrslitakeppni 1. deildar kvenna. Liðið
á nú tvo leiki eftir í riðlakeppninni, sem báðir þurfa að vinnast ef úrslitasæt-
ið á að nást.
Þriðjudaginn 14. ágúst vann RKV stórsigur á liði HKWíkings á Sandgerðis-
velli. Lokatölur urðu 12-1, en í hálfleik höfðu stelpumar okkar 6-0 forystu.
Nína Kristinsdóttir fór á kostum og skoraði 4 mörk, Lilja Iris Gunnarsdóttir
skoraði tvisvar eins og þær Hjördís Reynisdóttir og Eyrún Sigurðardóttir.
Inga L. Jónsdóttir og Lóa B. Gestsdóttir þjálfari skomðu jafnframt sitt hvort
markið.
Föstudagskvöldið 17. ágúst kl. 19:00 leikur RKV við Þrótt R. á Valbjamar-
velli í Laugardalnum. Sunnudaginn 19. ágúst kl. 14:00 er leikur RKV við
Hauka á Ásvöllum í Hafnarfirði.
Eigum inni hjá IBV
Keflvíkingar mæta Vest-
manneyingum í Keflavík
nk. sunnudag. Leikurinn
er 15. leikur liðanna en
Keflvíkingar eru í 5. sæti
með 19 stig og ÍBV í öðm
með 26 stig. „Við ætlum
að vinna leikinrí', segir
Jón Örvar Arason, aðstoð-
arþjálfari Keflvíkinga.
Allir leikmenn Keflavíkur
em heilir og klárir í slag-
inn gegn Vestmannaeying-
um en síðasta leik liðanna
í fslandsmótinu lauk með
1-0 sigri ÍBV. „Við áttum
góðan leik við KR og ætl-
um að gera okkar besta í
leiknum gegn ÍBV. Það er
bjart yfir mannskapnum
og við erum óðum að ná
okkur eftir áfallið í
Kaplakrika. Við ætlum að
halda okkur í deildinni og
vera á meðal tíu efstu á
næsta ári.“, segir Jón Örv-
ar og bætir við að ekki séu
vonbrigði með gengi liðs-
ins þó þeir hefði vissulega
viljað vera ofar í deildinni.
„Við eigum inni hjá Vest-
mannaeyingum“, segir Jón
Örvar að lokum bjartsýnn
á leikinn.
Góður sigur á KR
KR-ingar tókst ekki að
rífa sig upp úr lægðinni í
leiknum gegn Keflvíking-
um á sunnudag. Leikurinn
var fjórði tapleikur KR-
inga í röð en lokatölur
urðu 3-1 fyrir Keflavík.
Keflvíkingar kom mun
sterkari inn á í fyrri hálf-
leik og sýndu mikla yfir-
burði. Fyrsta markið leit
dagsins ljós á 25. mínútu
þegar Þórarinn Kristjáns-
son skoraði eftir skot af
markteig. Nokkrum mín-
útum seinna árri Guð-
mundur Steinarsson gull-
fallegt skot úr aukaspymu
af 30 metra færi, sam-
skeytin og inn. Staðan í
hálfleik var því 2-0 fyrir
heimamenn. KR-inga
náðu síðan að minnka
munin á 61. mínútu.
Gunnar Oddson braut á
Guðmundi Benediktssyni
innan vítateigs en Gunn-
leifur Gunnleifsson,
markvörður varði vel.
Andrew Roodie fylgdi
boltanum vel á eftir og
tókst að skora. Eftir það
hresstist leikur KR-inga
nokkuð. Á 77. mínútu
sendi Zoran Daníel Lju-
bicic á Þórarinn Kristjáns-
son inn í vítateig, skot
Kristjáns rataði rétta leið
og tryggði Keflvflcingum
sigurinn. Keflvíkingar eru
einu stigi fyrir ofan
Grindvíkinga, í 5. sæti
með 19 stig.
Slakt hjá
Grindavík í
roki og
rigning
í Eyjum
(.niidx ikiugai m.i 11n
\ cslmnmiuc) iiigiiin i
roki o” rigningii i \esl-
iiiaiiuaei juili a siiiiiiu
dag I illlnaO \irdisl mk
iö lial'a hindrnO (.rind
>ikingaiia en IB\ kmii
iii11n sli rkari iiin a i l\ rri
li.illhik I eikiiiiin l.iuk
3 0 l\ ru heiiiiaiiieiin.
° »" vt •»* -4 -ir° fi ° Pi
•, # JL # & ^ # m \
4 4.4-^ 4 4 4? ’
s4- r /- '■ W'i&: w p
*• lé % /'H 'M A
Símadeildin 15. umferð
Keflavíkurvöllur
Keflavík - ÍBV
Sunnudagur 26 ágúst kl. 18:00
KEFLAVÍK LEIKUR
A F ÖLLU H ) A RTA Sparisjóðurinn í Keflavík
Daglegar fréttir frá Suðurnesjum á www.vf.is
19