Víkurfréttir - 27.03.2003, Side 26
::Fyrst og fremst
Logi Gunnarsson skoraöi 20
stig fyrir Ulm í 105:76 sigri
liðsins á Crailsheim Merlins.
Ulm er i 2. sæti riðilsins sem
fyrr með jafn mörg stig og
Knrlsrtthe.
Jóhann 15. Guömundsson
skoraði tvö mörk fyrir Lyn í
sigri liðsins á Molde i æfinga-
leik liðanna um sl. helgi.
Jóhann lck í fremsto viglínti
og þótti leika mjög vel.
Grindavík sigraði Hauka 2-0
i deildarbikarnum i fótbolta á
dögunum. Grétar lljartarson
og Alfreð Jóhannsson skortiðu
mörkin. Grjndavik er sem fyrr
í efsta sæti B-riðils með 12
stig eftir Ijóra leiki, fullt hús
sliga!
16 gull hjá
ÍRB í Eyjum
Sundmenn ÍRB stóðu sig
frábærlega á innanhúss-
meistaramóti fslands í
sundi í 25 metra laug sem fram
fór í Vestmannaeyjum um
helgina. Samtais unnu sund-
menn ÍRB tii 16 gullverðiauna.
Örn Arnarson vann til flestra
gullverólauna af sundmönnum
IRB eða átta, fimm í einstak-
lingsgreinum. Atta ísiandsmet
voru sett um helgina og átti
Örn Amarson tvö þeirra, í 200
metra flugsundi og 200 metra
fjórsundi, og Iris Edda
Heimisdóttir eitt, en hún bætti
14 ára gamalt ísiandsmet
Ragnheiðar Runólfsdóttur í
200 metra bringusundi.
Fimm ÍRB sundmenn
í iandsliðið
Steindór Gunnarsson, þjálfari
sundlandsliðsins og IRB, segir að
liðið sem heild hafi staðið sig
frábærlega. „Meirihlutinn með
góða bætingu og stóðu sig hreint
frábærlega í gegnum allt mótið.
Framfarir hjá hópnum hafa verið
jafnar og góðar í gegnum tíma-
bilið og hreint út sagt stórkost-
legar hjá nokkrum", sagði
Steindór í samtali við
Víkurfréttir.
Þrir sundmenn frá IRB náðu lág-
mörkum fyrir heimsmeistaramót
en það voru þau Iris Edda
Heimisdóttir, Jón Oddur
Sigurðsson og Öm Amarson en
þau syntu öll mjög vel á mótinu.
Fimm af sundmönnum IRB eru í
landsliði íslands sem tekur þátt á
Smáþjóðaleikunum en það eru
Erla Dögg Haraldsdóttir og
Birkir Már Jónsson ásamt hinum
þremur fyrmefudu.
Þá segir Steindór að þau Erla og
Birkir séu einnig í unglingalands-
liði Islands sem keppir í
Lúxemborg rétt eftir páska.
„Birkir bætti einmítt sína tíma
verulega og tryggði sig inn í
Smáþjóðaleikaliðið. Erla var
alveg við sína þrátt fyrir að hafa
verið ný stigin upp úr viku
veikindum".
IRB er einnig með átta sund-
menn inni í yngri æfingahópum
SSÍ. Steindór segir að Guðni
Emilsson hafi komið sér hvað
mest á óvart með árangri sínum.
„Sá sem kom hvað mest á óvart
var Guðni Emilsson en hann fór
hreinlega á kostum og setti þijú
aldursflokkamet í 50, 100 og 200
metra bringusundi. Hann er ein-
ungis 14 ára gamall og er
kominn
í ffemstu röð“, sagði Steindór.
Hilmar Pétur Sigurðsson bætti
sig einnig talsvert og sýndi það
að hann er kóngurinn í íslensk-
um langsundum eins og Steindór
orðaði það. „Yfirburðir hans
voru ótrúlegir, heilum 30 sek. á
undan næsta manni og með
þessu sundi varði hann titil sinn
frá því í fýrra“.
Steindór segir að framundan séu
síðan æfingabúðir erlendis til
þess að ná góðum æfingum í 50
metra laug til undirbúnings fyrir
smáþjóðaleika og heimsmeistara-
mótið.
varfrábært
us sleöii íris Edda er
Iris Edda Heimisdóttir var að vonum ánægð
að loknu móti. Hún sagði að það hefði verið
frábært að siá íslandsmet Ragnheiðar
Runólfsdóttur enda hafl hún lengi rcynt við
þetta met. „Ég var búin að æfa stíft fyrir þetta
mót og oft verið náiægt metinu, aðeins nokkrum
sekúndubrotum. Loksins tókst það og nú tók
ég það með stæl“, sagði íris í samtaii við
Víkurfréttir.
Hver voru þín iýrstu viðbrögð?
Þegar ég kom að bakkanum Ieit ég ekki á
klukkuna heldur beið og hlustaði á áhor-
fendur og þjálfarann hvort fagnaðarlætin
væru mikil eða ekki, og þá leit ég á
klukkuna. Mér var brugðið þegar ég sá
tímann því ég bjóst ekki við því að vera
1.5 sekúndu undir metinu. Þetta var bara
frábært, endalaus gleði.,
Er ekki gaman að slá íslandsmet?
Jú það er yndisleg tilfínning, ég er satt að
segja enn að melta þetta. Þetta er líka
mitt fyrsta einstaklings íslandsmet í
fullorðinsflokki en ég á nokkur í
boðsundi og svo á ég nokkur stúlk-
namet.
Hvernig metur þú árangur þinn á
mótinu?
Ég er mjög sátt við árangurinn. Ég synti 100
metra bringusund á laugardeginum en var aðeins
frá íslandsmetinu þar og var ekki sátt með það. Ég
ákvað því að bæta um betur og taka hitt sundið með
trompi. Ég synti einnig 50 metra bringusund. Ég er ekki
þekkt fyrir að vera mikil sprettsundskona en bætti mig nú
samt!
Hvað er næst á dagskrá hjá þér?
Næst á dagskrá hjá mér er Ungfrú Suðumes sem er 12.apríl. Það er ekkert mikilvægt í
sundinu ffarn að því þannig að ég get einbeitt mér að keppninni. Smáþjóðaleikamir í
Möltu í byijun júní er annars það sem er næst á dagskrá í sundinu.
Ætlaru að halda áfram að synda næstu árin?
Já, já, svo lengi sem það gengur vel og áhuginn er til staðar seiglast ég áfram.
sigursæl og glöð
sundkona
Grindavíkurstúlkur urðu íslandsmeistarar í körfubolta í 7.
flokki um síðastliðna helgi. Þær Iéku fjóra leiki í síöustu
turneringunni og unnu þá alla, og það mjög stórt.
Körfuboltakappinn Páll Axel Vilbergsson er þjálfari liðsins og
hefur hann náð frábærum árangri með stúlkurnar sem eru
nánast ósigrandi frá því þær byrjuðu. Þær eru taplausar á þessu
tímabili.
Fyrsta mót Golfklúbbs
Grindavíkur á árinu var
haidið um helgina.
Veðurguðirnir sýndu allar
sínar bestu og verstu hliðar og
gáfu góðan vind, ásamt sói og
haglél komu svífandi á tíma-
bili. Davíð Friðriksson sigraði
á mótinu en það var Samkaup
sem styrkti mótið.
Völlurinn þykir mjög góður
miðað við árstíma og flatirnar
allar að komast í gott horf.
Urslit i Vormóti Samkaupa voru
eftirfarandi:
1. Davíð A. Friðriksson 38 pk.
2. Bjami Ólason 37 pk.
3. Bjöm Birgisson 37 pk.
4. Leifur Guðjónsson 36 pk.
Næstur holu á 4/17 var Guðjón
Einarsson en hann var 5,7 metra
ffá holunni.
26
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!