Náttúrufræðingurinn - 2016, Síða 65
65
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Fundir stjórnar
Síðasti aðalfundur Hins íslenska
náttúrufræðifélags var haldinn fyrir
rúmu ári, hinn 21. febrúar 2015.
Kjörtímabil þriggja stjórnarmanna
rann út á aðalfundinum. Þetta
voru Ester Ýr Jónsdóttir, Hilmar
J. Malmquist og Herdís Helga
Schopka. Herdís baðst undan
endurkjöri en í hennar stað gaf
Bryndís Marteinsdóttir líffræðingur
hjá Háskóla Íslands kost á sér.
Á fyrsta stjórnarfundi starfsársins
2015–2016 skipti stjórnin með sér
verkum, öðrum en formannsstarfinu
en aðalfundurinn kýs formann.
Hlutverkaskipan breyttist lítið eitt
frá síðasta ári. Árni Hjartarson er
formaður sem fyrr og Hafdís Hanna
Ægisdóttir varaformaður, Ester Ýr
Jónsdóttir tók að sér ritarastörf,
Kristján Jónasson er gjaldkeri sem
áður, Bryndís Marteinsdóttir tók við
fræðslustjórninni af Ester, Jóhann
Þórsson var áfram félagsvörður og
Hilmar J. Malmquist meðstjórnandi.
Frá síðasta aðalfundi hefur
stjórn haldið níu venjubundna
stjórnarfundi. Fundirnir voru
haldnir í húsnæði Náttúru minja-
safns Íslands í Loftskeytastöðinni
gömlu á Melunum.
Félagsmenn
Félagsmönnum hefur haldið áfram
að fækka og voru 1190 í árslok 2015.
Það er fækkun um 11 frá fyrra ári,
38 nýir bættust í hópinn en 49 hættu
– þar af létust 8. Fjöldi félagsmanna
fór því niður fyrir 1200 á árinu,
sem er viðvörunarmerki. Í raun
hefur fjöldinn þó verið að sveiflast
í kringum 1200 allt frá aldamótum.
Ljóst er að fara þarf í kröftugt átak
til að laða fólk að félaginu og fá það
til inngöngu.
Fræðsluerindin
Fræðslufundir félagsins voru
haldnir í stofu 132 í Öskju að
fyrsta fundi starfsársins undan-
skildum sem haldinn var á undan
aðalfundinum í ráðstefnusal Þjóð-
minjasafns Íslands (það er því
skilgreiningaratriði hvort þetta var
síðasti fundur starfsársins eða fyrsti
fundur næsta árs eins og hér er
talið). Frá síðasta aðalfundi hafa
fundirnir verið sjö. Aðsókn á þessa
fundi hefur heldur farið dvínandi. Í
ár voru fundargestir 270 (362 í fyrra,
324 í hittifyrra).
Eftirfarandi erindi voru haldin:
21. febrúar 2015. Ólafur Arnalds,
jarðvegsfræðingur. Því af mold ert
þú ...
30. mars. Anna Dóra Sæþórsdóttir,
landfræðingur. Vaxandi ferða-
mennska: Er gjaldtaka að náttúrunni
lausnin?
28. apríl. Ester Rut Unnsteinsdóttir,
líffræðingur. Rannsóknir á stofnvist-
fræði refa á Íslandi.
28. september. Stefán Einarsson,
efnafræðingur. Loftslagsbreytingar.
Orsakir og afleiðingar í ljósi viðræðna
um nýtt alþjóðlegt samkomulag 2015.
26. október. Hlynur Bárðarson,
umhverfis- og auðlindafræðingur.
Hvernig þekkir maður þorska í sundur?
30. nóvember. Friðþór Sófus Sigur-
mundsson, landfræðingur. Með
Skýrsla stjórnar
Hins íslenska náttúrufræði-
félags fyrir árið 2015
Stjórn HÍN starfsárið 2015–2016. Frá vinstri: Hilmar J. Malmquist, Árni Hjartarson,
Jóhann Þórsson, Hafdís Hanna Ægisdóttir, Kristján Jónasson, Bryndís Marteinsdóttir og
Ester Ýr Jónsdóttir.
Náttúrufræðingurinn 86 (1–2), bls. 65–68, 2016