Ægir - 01.08.2015, Page 10
10
fyrst og fremst sú að um þessar
mundir væri staðan góð og þá
liggi ekkert á. Íslensk sjávarút-
vegsfyrirtæki þurfi að vanda sig
en ekki ráðast í slíkar aðgerðir í
einhverri panik. Alla vega ætti
ekki að fara af stað á þeirri for-
sendu að hér sé allt ómögulegt.
„Ef við eigum að velja á milli
þess að fara í stóra flugeldasýn-
ingu eða að taka verkfærakist-
una sem Jens ræddi um áðan
þá eigum við miklu frekar að
eiga litla verkfærakistu sem fyr-
irtækin geta notað úti á mörk-
uðunum,“ sagði Brynjólfur Eyj-
ólfsson hjá HB Granda.
Inspired by Iceland
Í erindi sínu á ráðstefnunni
greindi Inga Hlín Pálsdóttir for-
stöðumaður ferðaþjónustu og
skapandi greina Íslandsstofu
meðal annars frá vinnu við
markaðsátakið Inspired by Icel-
and sem hefur skilað miklum
árangri. Kynning hennar mælt-
ist vel fyrir og var meðal annars
lagt til utan úr sal að sjávarút-
vegurinn nýtti sér lógo Inspired
by Iceland í sinni markaðssetn-
ingu erlendis. Inga Hlín sagði
lógóið hins vegar ekki aðalat-
riðið. „Það er Ísland sem er að-
almálið og hvaða markaðsað-
gerðir við veljum til að koma
skilaboðum á framfæri.“ Hún
sagði að sjávarútvegurinn þyrfti
meðal annars að velta fyrir sér
heimsóknum erlendra fjölmiðla
til að koma skilaboðum á fram-
færi. „Hver eru skilaboðin frá ís-
lenskum sjávarútvegi? Það er
það sem skiptir máli en ekki
lógóið. Við erum ekki að mæla
vitundina um þetta lógó sér-
staklega heldur vitundina og
þekkinguna á Íslandi,“ sagði
Inga Hlín Pálsdóttir hjá Íslands-
stofu.
Sigurður Ingi Jóhannsson
sjávarútvegsráðherra átti loka-
orðin á sjávarútvegsráðstefn-
unni að þessu sinni. Hann sagði
gríðarlega mikilvægt að nýta
þann meðbyr sem myndast
hefur meðal annars hjá ferða-
þjónustunni og vegna mark-
aðsstarfs sjávarútvegsins á liðn-
um árum og tengja þetta allt
saman. „Við eigum að einhenda
okkur í að finna það merki sem
við viljum selja vörur og ímynd
landsins undir. Við eigum ekki
að flýta okkur heldur gefa okkur
þann tíma sem við þurfum. Þá
getum við sett okkur háleit
markmið um að hækka verð á
þeim afurðum sem vil seljum til
dæmis í sjávarútvegi,“ sagði
Sigurður Ingi Jóhannsson sjáv-
arútvegsráðherra.
„Hver eru skilaboðin frá íslenskum sjávarútvegi? Það eru þau sem skipta máli en ekki lógóið,“ sagði Inga Hlín Pálsdóttir hjá Íslandsstofu.
Það var fjölmenni mætt á lokamálstofu sjávarútvegsráðstefnunnar um sameiginlega markaðssetningu í ís-
lenskum sjávarútvegi.